Vikan - 18.09.1986, Qupperneq 20
Matur frá Mið-Austurlöndum hefur til
skamms tíma verið lítt kunnur hér á landi en
nú hefur orðið breyting á því pítubrauðin, sem
eiga rætur sínar að rekja þangað, eru orðin
vinsæl fæða, að minnsta kosti á Reykjavíkur-
svæðinu. Björg Theódórsdóttir bjó í ísrael um
nokkurt skeið ásamt foreldrum sínum, en faðir
hennar vann fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Björg
vann um tíma á ísraelskum veitingastað, Nof-
hof-Haddecel í Nahariya, og lærði þar ýmislegt
um þarlenda matargerð. Pítubrauð með ýmiss
konar fyllingum er eins konar þjóðarréttur í
ísrael og nálægum löndum og Björg útbjó fyrir
okkur mjög dæmigerðar fyllingar, falafel og
grænmeti, sem vantar alveg á veitingastaðina
hér sem kenna sig við pítubrauðið.
Falafel
500 g hvítar baunir eða kjúklingabaunir
2 litlir laukar, rauðir, smátt saxaðir
2 stórir hvítlauksgeirar, marðir
1 búnt steinselja, söxuð
1-2 tsk. kúmen, mulið
1-2 tsk. coriander, mulinn
/2 tsk. lyftiduft
salt og cayennepipar
olía til steikingar_____________________
Baunirnar lagðar í bleyti í 24 klst. Hvítu baun-
irnar þarf að afhýða. Vatnið síað frá og
baunirnar hakkaðar eða settar í blandara. Öllu
nema olíu blandað saman við í blandaranum
eða hakkað tvisvar.
Hnoðað aðeins saman og látið bíða í /1 klst.
Mótaðar bollur á stærð við valhnetur og látnar
bíða aðrar 15 riynútur. Bollurnar eru steiktar
í heitri olíu þar til þær verða dökkbrúnar.
Pítubrauðin er hægt að kaupa mjög viða og
þar sem töluverður tími fer í að baka þau þá
keypti Björg brauðin tilbúin. Pítubrauðin eru
Umsjón:
Bryndís Kristjánsdóttir
hituð og síðan fyllt með bollum, salati, agúrku
og tómötum að ógleymdum bragðmiklum
kryddsósum.
Agúrkusósa
2 dl jógúrt, án bragðefna
2 tsk. sinnep
'/2 tsk. salt
pipar
1 lítill laukur, saxaður smátt
100 g agúrka, skorin í strimla
Jógúrt og kryddi hrært saman og síðan agúrku
og lauk.
Epla-karrísósa
100 g majones
2 msk. rjómi
1 msk. mango chutney
1-2 msk. karrí
'A tsk. salt
'/2 tsk. sykur
'/2 tsk. engifer
1 lítið epli
Eplið rifið smátt og síðan er öllu blandað sam-
an.
20 VIKAN 38. TBL