Vikan - 18.09.1986, Síða 22
Mynd vikunnar
AÐAI.HLUTVERK
IjJV XíJJjMANN ' JCIQTR SimBERXJlND
>jnniB353Baaá
ÖRLAGARÍK UNGLINGSÁR
THE BAY BOY
★ ★ ★
Leikstjóri: Daniel Petrie.
Aðalleikarar: Kiefer Sutherland og Liv
Ullmann.
Sýningartimi: 94 min.
The Bay Boy gerist nyrst í Kanada,
nánar tiltekið i smábænum Nova Scot-
ia. Donald Campell ertáningspiltursem
þar býr með fjölskyldu sinni sem sam-
anstendur af föður, móður og bróður
sem er alvarlega veikur. Lifsbaráttan
er hörð á þessum slóðum og stendur
Campell í ströngu við að hjálpa föður
sinum. Nágranni þeirra er lögreglumað-
urinn Coldwell. Hann á tvær dætur og
er Donald mjög hrifinn af annarri þeirra.
Hin systirinn sýnir honum aftur á móti
umtalsverðan áhuga.
Breyting verður á lifi Donalds þegar
hann kvöld eitt verður vitni að þvi þeg-
ar nágranninn myrðir gyðingahjón ein.
Vegna vinskapar sins við systurnar
þorir hann ekki og vill ekki segja hver
morðinginn er. Morðinginn aftur á móti
stjórnar sjálfur rannsókn á morðunum.
Hann grunar að Donald viti meira en
hann segir. Verður þetta til þess að
Donald fer að óttast um sjálfan sig...
The Bay Boy er þægileg tilbreyting
frá hinum hefðbundnu bandarísku kvik-
myndum. Hér er allt smátt í sniðum
og leikstjórinn, Daniel Petrie, gerir
meira úr þvi að koma persónum sögunn-
ar vel til skila heldur en að velta sér
upp úr morðinu. Því er það að myndin
fær á sig frekar evrópskan blæ og er
ekki laust við að landslagið og öll rign-
ingin minni nokkuð á föðurlandið. Um
leið og myndin er sakamálamynd er hún
einnig mynd sem segir frá unglingum
sem eru að stíga sín fyrstu spor i að
verða fullorðnir. Og samband Donalds
við stúlkur á sama aldri er blanda af
kimni og alvöru.
Það er Kiefer Sutherland er leikur
aðalhlutverkið. Það þarf ekki annað en
lita á hann einu sinni til að sjá hverra
manna hann er. Hann er eftirmynd föð-
ur sins, Donalds Sutherland. Hann fer
mjög vel með hlutverk sitt. Svo er einn-
ig um aðra leikara, sem allir eru
óþekktir að undanskilinni Liv Ullmann
er leikur móður hans. The Bay Boy er
mynd sem kemur á óvart og er óhætt
að mæla með henni við hvern sem er.
THE GREAT
GOLD SWINDLE
★ ★
Leikstjóri: John Power.
Aðalhlutverk: John
Hargreaves, Robert Hughes
og Tony Richards.
Sýningartimi 96 min.
LOST IN
AMERICA
★ ★
Leikstjóri: Albert Brooks.
Aðalhlutverk: Albert Brooks
og Julie Hagerty.
Sýningartími: 88 mín.
M—
^ six **.
L SEW TALÉS
FROM...
TWILIGHT ZONE
★ ★ ★
Leikstjórar: Wiiliam Fried-
kin, Wes Craven og fleiri.
Aðalhlutverk: Melinda Dill-
on. Robert Klein og fleiri.
Sýningartími: 180 min. (2
spólur).
The Great Gold Swindle er áströlsk sakamálamynd
sem byggir á sönnum atburðum, segir frá þremur
bræðrum sem hafa ekki farið hinn þrönga veg réttvis-
innar. Þeir undirbúa rán mikið. Ræna skal frá fyrir-
tæki sem selur gullstangir. Það sem meira er, þeir
munu i raun ekki koma nálægt ráninu sjálfu, ætla
aðeins að sjá um undirbúninginn og hirða svo gullið
frá öðrum sem ekki vita hvað þeir eru að gera.
Þessi áætlun virðist pottþétt í fyrstu. En eins og
með svo mörg snilldarrán eru það smáatriðin sem
koma upp um þá bræður i lokin. The Great Gold
Swindle er ágæt sakamálamynd, hefði kannski mátt
vera eilitið hraðari. Atburðarásin vill vera nokkuð
hæg á köflum en ágætur leikur aðalleikaranna held-
ur myndinni á floti. John Hargreaves er sérlega góður
í hlutverki elsta bróðurins sem er skipuleggjandinn
á bak við ránið.
David og Linda eru amerisk hjón sem allt hefur geng-
ið i haginn fyrir hingað til. Bæði eru i vel launuðum
stöðum og hamingjan brosir við þeim. Það verða þvi
mikil vonbrigði fyrir David þegar hann missir af
stöðuhækkun sem hann taldi vera sina. Hann segir
upp i fússi og ákveður að selja ameriska drauminn,
einbýlishúsið og allt sem innanstokks er, og halda
á vit náttúrunnar i húsbil. Linda hrifst með honum
og saman fara þau með mikla peninga i ævintýraleit.
Þau koma aðeins við i Las Vegas þar sem Lindu
tekst að eyða öllum peningum þeirra á einni nóttu.
Þau stansa næst i smábæ þar sem þau ætla að vinna
sér inn fyrir þvi allra nauðsynlegasta. David færvinnu
sem gatnavörður og Linda sem aðstoðarkona hjá
pylsusala. Þau verða fljótlega leið á þessu liferni og
er stefnan tekin á New York. . .
Lost in America er gamanmynd þar sem gert er
grin að millistéttarfólkinu. Albert Brooks og Julie
Hagerty leika David og Lindu af fjöri og þrátt fyrir
að myndin sé í heild brokkgeng má hafa gaman af,
þvi þrátt fyrir grinið er stutt i alvöruna.
Twilight Zone voru vel gerðir og vinsælir sjónvarps-
þættir á sjötta og sjöunda áratugnum. Þeir voru siðan
endurvaktir fyrir fáum árum i kvikmynd er bar sama
nafn. Leikstjórar þar voru Steven Spielberg og fleiri.
Þetta varð til þess að farið var aftur að gera sjón-
varpsþætti er báru nafnið The Twilight Zone.
Eins og áður fjalla þessar myndir um óskýranlega
atburði. Ellefu stuttum þáttum hefur verið komið fyr-
ir á tveimur spólum og eru þessar myndir sannkallað-
ur fjársjóður fyrir þá sem unna visindaskáldskap.
Það er komið viða við, ókunnir gestir heimsækja
okkur utan úr geimnum, krakki velur sér nýja for-
eldra, maður hringir heim til sin og heyrir sjálfan
sig svara og afbrotamaður fær allt i einu lækninga-
mátt svo eitthvað sé nefnt.
Þættirnir, sem eru ekki nema fimmtán til tuttugu
mínútna langir, eru góð afþreying og öll vinna og
leikur er fyrsta flokks.
22 VIKAN 38. TBL