Vikan - 23.10.1986, Side 4
Hótel á íslandi
Hótel
Loftleiðir
Anddyrið og gestamóttakan.
Veitingabúðin, en þar er opnað klukkan fimm á morgnana.
Hótel Loftleiðir- heill heimur
út af fyrir sig, segir í auglýsing-
unni. Þetta eru orð að sönnu.
Hótel Loftleiðir er heill heimur
fyrir sig. Fyrir utan allt sem hótel-
ið hefur upp á að bjóða innandyra
má skokka á sérstökum skokk-
brautum í Öskjuhlíðinni og slappa
síðan af í heita læknum á eftir.
Auk þess er hótelið ekki nema í
um það bil fimmtán mínútna
göngufjarlægð frá miðbænum. Allt
þetta kunna útlendir hótelgestir vel
að meta.
Hótel Loftleiðir var byggt árið
1966. Átta árum síðar var bætt við
nýrri álmu og er hótelið nú stærsta
hótel landsins. Þareru tvö hundr-
uð og átján herbergi. Þar af eru
tuttugu og fjögur lúxusherbergi,
eða stór herbergi, og ein svíta eða
íbúð. Undanfarið hefur farið fram
gagnger endurnýjun á herbergjum
hótelsins. Herbergin, sem öll eru
með baði, eru nú búin léttum hús-
gögnum. Teppi, gluggatjöld,
rúmábreiður, lampar og fleira eru
í hlýjum pastellitum. Öll herbergin
eru búin sjónvarpi, síma og verið
er að koma fyrir buxnapressu í
þeim öllum.
Hótel Loftleiðir býður upp á
margs konar þjónustu. Meðal þess
sem boðið er upp á er mjög full-
komin fundar- og ráðstefnuþjón-
usta. Stærsti fundarsalurinn,
Auditorium, rúmar hundrað
manns í sæti. Kristalssalnum, sem
er stærsti salur hótelsins, má skipta
í þrennt og þar hefur verið komið
upp tveim mjög fullkomnum
tækjaklefum. í kjallara hússins er
Eiríksbúð 1-3, þrír minni fundar-
salir. Auk þess er í kjallaranum
prentstofa sem sér um allt prent-
verk fyrir hótelið og ráðstefnugesti.
Nýlega hefur farið fram gagnger
endurnýjun á allri fundaraðstöðu
hótelsins. Salirnir eru allir búnir
4 VIKAN 43. TBL