Vikan - 23.10.1986, Blaðsíða 8
KODAK EN 100 5039 KODAK E
\
Myndband: Sagan gerist í hugar-
heimi drengs. Hreyfing, nálægð,
fjarlægð og sú spurning hvernig og
hvort megi stöðva þessa hringrás
er þema verksins.
sýninguna. Gallinn við galleríin er
sá að fólk þorir ekki að skilja ekki.
Því líður oft illa, kemur inn með
vanmáttarkennd. - Hvað er ég að
gera hér? Ég hef ekkert vit á þessu.
En það er ekki það sem skiptir
máli heldur hitt að hver og einn
geti séð eitthvað út úr verkunum,
eftir því hvernig þau höfða til hans.
Maður verður að vera velkominn,
fá að þegja - láta sér líða vel. Það
skiptir til dæmis máli að það sé
hljótt, loftið sé svalt og gott og að
listamaðurinn sé viðstaddur. Einn
daginn kom til dæmis dauðadrukk-
inn maður inn á sýninguna hjá
Mynd úr geimnum.
mér. Hann sat lengi, horfði og hlust-
aði. Honum leið vel þarna inni og
það gladdi mig.
Nú ertu með mismunandi verk á
sýningunni og ert greinilega mjög
upptekin af þrivídd, hljóði og hreyf-
ingu. Ertu í mörgu? „Ég nota
blandaða tækni og mismunandi
miðia. Það sem ég geri er eiginlega
meira huglægt. Ég veit eiginlega
ekki af hverju ég geri það sem ég
geri. Þegar ég mála er ég frekar að
prófa liti og form. Mér finnst töfr-
andi að mála. Þá er eins og tengist
saman það sem gerist fyrir utan
mann og það sem gerist innra með
manni. Eg vil gjarnan erta skyn-
taugarnar á þægilegan hátt. Mest
gaman finnst mér að það sé hreyfing
eða breyting í vcrkinu. Einhveiju
sinni fór ég að velta því fyrir mér
hvernig hljóð litu út. Hvernig er
hægt að gera hljóð sjáanleg? Svo
var það allt i einu að ég sá þetta
svo skýrt, skynjaði að svona litu
þau út. Líklega gerðist það rétt
áður en ég fór að sofa á kvöldin,
þegar allt var fallið íjó. Þetta verk
reyndist mér erfitt. Ég hafði aldrei
fengist við svona efni áður. Þetta
eju skálduð form eftir tilfinningu.
Ári eftir að ég gerði þessa skúlptúra
sá ég í bók að til eru mörg þúsund
ára gamlar teikningar af hljóði og
þau voru nákvæmlega svona
gagnsæ."
Þú hefur líka unnið með mynd-
mínum tíma, sem þátttakandi í
þessum heimi, best varið með því
að byggja upp, stuðla að fallegra
mannlífi. Það er ósk mín og tilgang-
ur með verkum mínum að ég sé
með þeim að bjóða fólki upp á
stund þar sem verkin veki upp eitt-
hvað gott."
Ertu þá alltaf að tjá eitthvað fall-
egt?
„Tilfinningaskali manneskjunnar
er svo breiður. Lífið er erfitt og sam-
keppnin svo hörð. Þegar maður
kemur inn á myndlistarsýningu og
sér eitthvert verk sem-tengist hans
bönd? „Já, en ekki eins mikið og
ég vildi og það síðasta af vanefnum.
Það er þannig með vídeóið að hver
manneskja sér í því það sem hún
er að fást við í sjálfri sér hverju
sinni. Það má segja að það sé nokk-
urs konar spegill á sálarlífið. Ég hef
gert það að reglu að gera ekki list
úr vondum tilfinningum. Ég er ekki
sátt við að listamenn geri góðum
og vondurn tilfinningum jafnhátt
undir höfði. Ég trúi þvi að hver
maður sé í eðli sínu gullgerðar-
manneskja og geti inni í sér breytt
illu í gott. Af hverju þarf að tjá
slæmar tilfmningar? Af hverju
sparkar þá fólk ekki bara hvert í
annað úti á götu? Við höfum næg
tækifæri til að láta okkur líða vel.
Hver manneskja þarf að finna og
yrkja sina góðu kosti. Mér finnst
Mynd af atburði.
8 VIKAN 43. TBL