Vikan

Tölublað

Vikan - 23.10.1986, Blaðsíða 12

Vikan - 23.10.1986, Blaðsíða 12
IDugi Jökidsson - Á sólarströndu í Suður-Frakklandi - Ameríski flotínn Einu sinni lá ég á ströndinni í Villefranche í Frakklandi og var að velta fyrir mér hundraðog- elleftu meðferð á móskítóflugum. Þær voru að vísu ekkert óhemjulega margar þama suður frá en hins vegar höfðu fréttirnar um mig greinilega borist hratt út um flugnasamfélagið. Eg var varla mættur á svæðið þegar fyrstu könnunarflugumar voru komnar að taka úr mér sýnishom og eftir að það hafði verið rannsakað var ég bæði sýnd og gefin veiði. Ég geri mér ekki almennilega grein fyrir því hvemig moskítóflugur skiptast á skila- boðum en einhvern veginn fara þær að því, svo mikið er víst. Þær snertu ekki alls konar fólk sem var í kringum mig en hvar sem ég fór renndu þær sér beina leið á mig og fengu sér duglega í gogg- inn. Einn þjáningarbróðir minn, sem svipað var ástatt fyrir, mun hafa komist að þeirri niðurstöðu að þær fyndu þefinn af bláa blóðinu sem þar af leiðandi hlyti að renna í æðum okkar. Þetta var mér lítil huggun þegar kláðinn var alveg að drepa mig og ég vissi hvort sem er ekki um neitt kónga- fólk í ættinni, nema farið sé allar götur aftur til smákónganna í Noregi sem við getum víst flest- öll rakið ættir okkar til. Og þeir voru hvort sem er bara Herúlar. Þá lá ég sem sagt og var að íhuga hinar hroða- legustu aðferðir til að drepa moskítóflugur (ef ég gæti bara komið auga á einhveija þeirra!) og hafði vakandi auga með geitungum sem ég skrif- aði einu sinni æsifrétt í Vísi um að gætu drepið menn með stungum sínum. Þá renndi sér allt í einu inn á flóann fyrir utan ein hroðaleg moskító- fluga: rennileg amerísk freigáta með eldflaugar og fallbyssu til reiðu. Ég minntist þess að ég hafði lesið það í ein- hverri bók um Suður-Frakkland að í Villefranche væri skipalægi ameriska flotans en svo hafði ég ekki leitt hugann meira að því og bjóst við að flotinn væri horfinn á braut. Nú var komin þama freigáta af gerðinni Oliver Hazard Perry og varp- 12 VIKAN 43. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.