Vikan

Útgáva

Vikan - 23.10.1986, Síða 16

Vikan - 23.10.1986, Síða 16
NAFN VIKUNNAR: ÞORGILS ÓTTAR MATHIESEN Hef ekkert að sækja út eins og er Þorgils Óttar Mathiesen er orðinn gamalreynd- ur leikmaður í íslenska handboltanum, þrátt fyrir nokkuð ungan aldur, og einn af fáum „gömlum jöxlum“ sem eftir eru í áhugamennskunni hér heima. Hann byrjaði að æfa níu til tíu ára gam- all og síðan hefur handboltinn verið hans aðal- áhugamál. í byrjun keppnistímabils nú í haust var hann svo skipaður fyrirliði íslenska landsliðs- ins í handbolta. En hann er lika á endaspreltinum í viðskiptafræðinámi - hvernig skyldi handboltan- um og viðskiptafræðinni koma saman? „Samkomulagið er nú svona og svona því handboltinn hefur alltaf setið í fyrirrúmi. En með góðum vilja hefur þetta gengið upp og nýjustu fréttir herma að ég ljúki þeim prófum, sem eftir eru, í janúar." - Hvernig leggst í þig að vera orðinn fyrirliði - og hvað þarf góður fyrirliði að hafa til að bera? „Starfið leggst mjög vel í mig. Fyrirliði þarf að hafa umsjón með ákveðnum hagsmunaatrið- um leikmanna utan vallar og getu til að leysa ýmis mál sem geta komið upp á. Hann þarf að sýna gott fordæmi og vera það ákveðinn og stað- fastur að menn fylgi því fordæmi. Og hann er að sjálfsögðu síðasti maður til að gefast upp. Það fer annars mikið eftir því hvernig hópurinn er hve mikið reynir á fyrirliðann. Samstaðan ræður því miklu. í mínu tilfelli kvíði ég engu, hópurinn er samstilltur og hefur spilað mikið saman, þar af leiðandi verður starfið mun auðveldara." - Er þegar farið að æfa stíft fyrir ólympíuleik- ana í Seoul ’88? „Já, það er búið að skipuleggja allan undirbún- ing og æfingar fyrir þau tvö ár sem eru til stefnu. Síðara árið, sérstaklega sumarið fyrir leikana, verða æfingar nánast fullt starf. Meirihluti gömlu leikmannanna verður áfram í landsliðinu en þó bætast nokkrir nýir i hópinn. Nokkuð ljóst er að flestir „útlendingarnir" verða með í Seoul. Næstu verkefnin eru tveir leikir við Austur-Þjóðverja nú í lok október. Svo er keppnisferð til Hollands í nóvemberbyrjun og eftir áramótin er Baltic-cup og Flugleiðamótið. Um það leyti getur landsliðið æft saman í um mánaðartíma, meðan Vestur- Þjóðverjarnir eru að undirbúa B-keppnina og fyrsta deiidin þeirra liggur niðri. Reynt er að haga skipulagningunni samkvæmt því. HSÍ hefur unnið mjög gott starf í sambandi v'ið fjáröflun sem fyrirtæki og almenningur hafa stutt vel. Nú er bara að vonast eftir sams konar stuðningi og fyrir heimsmeistaramótið." - Hvernig líst þér almennt á handboltaverliðina sem í vændum er? „Mér líst bara alveg Ijómandi vel á hana. Vetur- inn verður spennandi og væntanlega skémmtilegur þar eð búið er að fjölga liðum í fyrstu deildinni úr átta í tíu. Liðin eru að verða mun jafnari getu- lega séð og mikið af ungum og efnilegum leik- ntönnum að koma inn. Það eru að verða viss kynslóðaskipti. íslandsmótið er nýhafið og það mætti segja mér að liðin verði mjög jöfn. þó erf- ilt sé að spá einu eða neinu. Eins og er virðast Stjarnan og Valur vera hvað sterkustu liðin." - Hefur atvinnumennska í útlandinu ekkert heillað þig? „Ég hef í rauninni ekkerl að sækja út eins og er. Takmarkið þrátt fyrir allt er auðvitað að klára námið. Svo kann ég mjög vel við að spila hér heima með landsliðinu og það fullnægir mínum þörfum ennþá. Hvað maður gerir síðar meir er aldrei að vita - en allavega ekkert á næstunni." En ertu eitthvað að lauma þér í pólitíkina varstu ekki í framboði til síðustu sveitarstjórnar- kosninga? „Jú, ég var á lista sjálfstæðismanna í Hafnar- firði. Það var mjög gaman og lærdómsríkt að kynnast starfinu í kringum kosningar. Hvort ég sé að lauma mér i pólitíkina veit ég ekki en ég hef mjög gaman af stjórnmálum og það er ekkert úlilokað að maður beini einhvern tíma kröftunum þangað. En meðan ég er í handboltanum er hann númer eitt, tvö og þrjú - allavega meðan maður er í landsliðinu." - Ein bráðnauðsynleg spurning að lokum, ertu enn ólofaður? ,,No comment" En þar sem ómögulega er liægt að sleppa fyrir- liðanum út í stranga vertíðina með svo billegt svar var reynt aftur... Ógiftur? „Já, en ætli maður sé ekki alltaf að reyna að gefa sér tíma fyrir vangaveltur í þá áltina." Mynd: Helgi Friðjónsson Viðtal: Guðrún Alfreðsdóttir

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.