Vikan

Útgáva

Vikan - 23.10.1986, Síða 46

Vikan - 23.10.1986, Síða 46
Mynd vikunnar Köld spennumynd FLÓTTALESTIN (RUNAWAY TRAIN) ★★★ Leikstjóri: Andrei Konchalovsky. Aðalleikarar: Jon Voight, Eric Roberts og Rebecca DeMorney. Sýningartimi: 105 min. Andrei Konchalovsky hefur greinilega aðlagast bandarískum lifs- venjum nokkuð vel þvi Flóttalestin er fyrst og fremst vel heppnuð spennumynd á bandaríska vísu. Horfinn er rómantíski blærinn sem einkenndi Elskhuga Maríu (Maria's Lovers) og gerði þá mynd rneira evr- ópska. I staðinn er komin köld spenna sem heltekur áhorfandann allan þann tíma sem Flóttalestin tek- ur í sýningu. Flótlalestin gerist í Alaska. í rammgerðu fangelsi situr Mannheim (Jon Voight). fangi sem hafði verið lokaður af í þrjú ár vegna stroktil- rauna. Honum er, þvert gegn vilja yfirmanns fangelsisins, hleypt úr klefa sínum. Fangelsisstjórinn, sem hatar Mannheim, egnir hann til flótta. Hann gerir það með aðstoð ungs fanga, Buck Logan (Eric Ro- berts). Þeir ná að flýja úr fangelsinu út í kuldann og halda til næstu járn- brautarstöðvar. Þar velja þeir sér lest lil að fiýja í. Svo illa vill til að stjórn- andi lestarinnar deyr meðan lestin er á fullri ferð og æðir nú lestin stjórnlaus um auðnir Alaska og eyk- ur jafnt og þétt hraðann. Reynt er að stöðva lestina en allar tilraunir til þess mistakast. Þeir vita ekki í byrjun að þriðji farþeginn er í lestinni. Það er ung stúlka sem var aðstoðarmaður ekils- ins. Allar tilraunir þeirra þriggja til að stöðva lestina mistakast og virðist ekkert nema dauðinn bíða þeirra... Það verður að segjast eins og er að Flóttalestin er mögnuð spennu- mynd. Allt hjálpast að, frábær kvikmyndataka þar sem kuldalegt landslag Alaska nýtur sín, lestin er ógnvekjandi og síðast en ekki síst frábær leikur þeirra Jons Voight og Erics Robertsí hlutverkumstórhættu- legra glæpamanna sem bera enga virðingu fyrir lífinu. Jon Voight tekst ávallt að skapa sterkar persónur i myndum sínum. Hér hefur honum tekist að skapa sérstaklega eftirminnilega persónu. Mannheim er dýr á yfirborðinu, maður sem hefur alla ævi lifað glæp- samlegu lífi og er harður sem stál en þótt langt sé í lilfinningarnar eru þær fyrir hendi eins og kemur í Ijós í síð- asta hluta myndarinnar. Þótt Eric Roberts falli aðeins í skugga Jons Voight tekst honum samt vel að lýsa þessari einskis nýtu persónu sem Logan er. Andrei Konchalovsky er með Flóttalestinni kominn nokkuð langt frá uppruna sínum í rússneskri kvik- myndagerð þar sem hann var talinn meðal meistara. í staðinn hefur hon- um tekist með tveimur fyrstu myndum sínum i Bandaríkjunum að skapa sér nafn og á örugglega eftir að kveða mikið að honum í framtíð- inni. VEIÐIHÁR OG BAUNIR ★★★ Leikstjórí: Gösta Ekrnan. Aðalleikarar: Gösta Ekman, Margaretha Krook og Lena Nyntan. Sýningartimi: 98 mín. SJÁLFBOÐALIÐ- ARNIR ★ Leikstjóri: Nicholas Meyer. Aðalhlutverk: Tom Hanks og John Candy. Sýningartimi: 84min. Oft er talað um að sænskar gamanmyndir séu um leið vandamálamyndir og er nokkuð til i þvi. Veiðihár og baunir cr blcssunarlega laus við allar skoðanir. Hér er á ferðinni létt og virkilega skemmtileg gamanmynd þar sent Gösta Ekman, sem bæði er leikstjóri og aðalleikari. fer á kostum. Hér leikur hann iðjuleysingja sem býr hjá ráð- rikri móður sinni. Honum er nú ekki sérlega vel við móður sína og gerir allt til að losna við hana, um stundarsakjr allavega. Það mistekst honum á spaugilegan hátt. Hann kynnist einstæðri móður og verður hrifinn en meðfætt kjarklcysi gcrir hon- um erfitt um vik að koma sér i mjúkinn hjá hcnni. Veiðihár og baunir er algjörlega verk Gösta Ekman þar sem hann er bæði leikstjóri og aðal- leikari. Hann fær þó góða aðstoð frá kvenleikur- um sínum. Margaretha Krook er leikur móður hans og Lena Nyman sem hrífur hann upp úr skónum. Með Veiðihárum og baunum tekst það sem til stóð - að fá fólk til að hlæja. Þeir sem scð hafa gamanmyndina Splash niuna sjálfsagt eftir félögunum tveim, Tom Hanks og John Candy, er fóru á kostum í þessari ágætu mynd. Þeir eru nú mættir aftur saman i Sjálf- boðaliðunum (Volunteers). Sú mynd íjallar um sjálfboðaliða í friðarsveitum Bandaríkjanna sem sendir eru til Thailands á þvi herrans ári 1962. Eins og við má búast lenda þeir félagar i tuiklum ævintýrum. Verkefni þcirra er að byggja brú fyrir innfædda þorpsbúa. Þorpsbúarnir hafa engttti áhuga á brúnni cn það hafa aftur á móti skæru- liðallokkur og eiturlyljasmyglarar sem hugsa gott til glóðarinnar og John Candy er meira að segja heilaþveginn al' rauðliðutn. Það vantar ekki viljann við að reyna að gera hlægilega mynd en því miður mistekst ficst sem rcynt cr. Þrátt fyrir ótvíræða hæfileika lil gaman- lciks hafa þeir Tom Hanks og John Candy ekki crindi sem erfiði, til þess er handritið of villaust. Útkoman er þvi mynd sem miklu púðri hefur verið cytt í árangurslausl. Þótt Steven Spielbcrg komi ckki nálægt Ex- plorcrs sér maður hversu slyngur leikstjóri hann er eftir að hafa séð þcssa niynd sem greinilega hefur átt að beina að þeim áhorfendum scm fiykktust til að sjá E.T. Þcir sem standa að Ex- plorers ná nefnilega alls ekki þeirri ætlun sinni að gcra skemmtilega barnamynd. Til þcss er hún of þung i vöfum. F.xplorers fjallar um þrjá drcngi sem komasl í samband við verur úti i heimi. Mcð þeirra hjálp tekst drengjunum að smíða geimfar og ætlunin cr að hitta þessa vini sína. Það tekst þeim og ævintýraheimurinn. sem þeir voru búnir að ímynda sér. hrynur þegar þeir komast á leiðar- enda. Geimfar veranna er að innan eins og vélarrúm skips og gcimvcrurnar cru með því Ijót- asta sem skapað hefur verið hingað til i kvikmynd- um. Að skapa svo óaðlaðandi veröld er ekki aðferðin til að fá geimþyrsta krakka á bió. Þar fyrir utan er myndin allt of fiókin i allri upp- byggingu og þrátt fyrir margar slórlenglegar senur er Explorcs i heild ein allsherjar mistök. 46 VIKAN 43. TBL

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.