Vikan - 23.10.1986, Side 50
D R A U M A R
MAÐURSEM
REYNDIVIÐ
MIG
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi um daginn mann
sem reyndi einu sinni við mig og
heitir X. Ég er nú ekki að hugsa
um hann frá degi til dags svo mér
fannst þetta skrýtið. í draumnum
vorum við eitthvað að tala saman
og mér fannst fara vel á með okk-
ur, það kom mér bara á óvart að
dreyma þennan mann.
Kæri draumráðandi, viltu segja
mér hvort þetta er eitthvað merki-
legur draumur.
Með fyrirfram þökk.
S.K.
Nafn þessa manns er það eina
sem er merkilegt við drauminn og
það merkir að þú munir vinna sig-
ur. En mundu að það er því aðeins
táknrænt fyrir þig að þessi maður
hafi lítið komið upp i huga þinn
og um það verður þú auðvitað að
eiga við undirmeðvitund þína.
VATNI
SPRAUTAÐ
Kæri draumráðandi.
Vonandi getur þú hjálpað mér
við þennan draum.
Þetta skeði á afmælishátíð
Reykjavíkur, að kvöldi. Ég var að
labba með tvær kók, aðra í pappa-
glasi. Þegar ég var að því kallaði
fullur maður til mín: Hvernig væri
að gefa mér kók? Þá henti ég glas-
inu í hann. Svo heyrði ég hann
sötra kókið. Eftir þetta elti maður-
inn, sem við skulum kalla Jóa,
mig. Ég hljóp til vinkonu minnar
og sagði: Fljót, hlauptu, það er
kall að elta mig. En hún sagði
bara: Hvað er að þér? Það er eng-
inn. Samt hljóp ég en komst lítið
áfram. Þá sá ég allt í einu strákinn
sem ég er hrifin af, ég sá hann og
nokkra af vinum hans. Ég hljóp til
þeirra og sagði: Fljótir, felið mig,
þið getið það alveg, þið eruð fjór-
ir. Þeir sögðu mér að halda kjafti
og að ég væri rugluð, svo fóru
þeir. Allt í einu var ég komin heim.
Ég sat inni I eldhúsi og heyrði allt
í einu í póstinum. Ég fór fram en
þá var þetta Jói að reyna að
sprauta vatni í gegnum lúguna.
Ég varð svo hrædd að ég hljóp inn
í eldhús til mömmu, pabba, ömmu
og afa. Þar settist ég niður og
sagði þeim að Jói væri á eftir
mér. Síðan settist ég niður milli
ömmu og afa og faldi mig. Pabbi
fór fram en Jói kom á eftir honum
og sagði að þetta væri allt I lagi,
hann væri farinn. Svo fór pabbi
að fikta eitthvað I símanum og Jói
kom í eldhúsdyrnar. Þá stóð ég
upp og sagði: Hvernig væri að
láta mig í friði? Eftir það settist ég
niður. Þá fór Jói inn í stofu. Þá
kallaði amma: Sjáið þið, það blikk-
aði rautt Ijós í stofunni. Þá
komumst við að því að ég var eina
manneskjan sem sá Jóa. Hann var
þá draugur. Þannig lauk þessum
draumi.
Ég man að allan tímann, á með-
an mig dreymdi þennan draum,
grét ég.
Spurningar: Hvað táknar þessi
draumur um strákinn sem ég er
hrifin af?
Á ég eftir að sjá svona draug?
Vonandi getur þú hjálpað mér
með þennan draum.
Guðrún.
/ fyrsta lagi er rétt að taka fram
að draumurinn varðar strákinn
ekkert sérstaklega og hann er ekki
fyrirboði þess að þú sjáir draug.
Hins vegar máttu líta á þennan
draum sem ábendingu um að láta
ekki hafa þig út í eitthvað sem er
andstætt þinni eigin dómgreind
og vilja. Hann getur líka bent til
að þú sért óörugg með þig og
mættir við því að hafa meira sjálfs-
traust.
SKÓROG
BRÉF
Kæri draumráðandi!
Ég ætla að biðja þig að ráða
stuttan og skrýtinn draum. En fyrst
ætla ég að segja þér svolítið. Ég
skuldaði skó og fór svo I annan
þæ í sumar en svo hringdi mamma
og sagði mér það. Þegar ég fékk
útborgað sendi ég peningana til
vinkonu minnar því að hún á
heima rétt hjá þessari búð. Síðan
dreymdi mig að stelpa, sem vinnur
í búðinni, kæmi og heimsækti
mig. Ég spurði hana hvort vinkona
mín væri ekki búin að borga
skóna. Hún játaði því en það gat
ekki staðist því að það var bara
einn dagur síðan ég sendi bréfið.
Ég bið þig að ráða þennan
draum því ég er oft búin að senda
drauma en þeir hafa aldrei verið
birtir.
Bæ, bæ.
3854-2484.
P.S. Ég spyr einnar spurningar
að lokum: Er nauðsynlegt að skrifa
nafnið sitt undir bréfið? Þá meina
ég líka undir bréf til Póstsins.
/ fyrsta lagi birta hvorki Póstur-
inn né draumráðandi nafnlaus
bréf. Það er lágmark að skrifa und-
ir bréf en draumráðandi hefur það
fyrir reglu að birta drauma ekki
undir nafni, þó ekki sé beðið um
nafnleynd, og sömu sögu er
sennilega að segja um Póstinn.
Það er varla von að þú hafir
fengið nafnlausa drauma birta. Við
fáum nóg af draumum frá fólki
sem skrifar undir fullu nafni. En
við virðum sem sagt nafnleynd.
Draumurinn þinn er ekki eigin-
legur tákndraumur heldur virðist
hann afleiðing hugsana þinna I
vöku og sennilega hefur þú hugs-
að meira um þessa skó en þú
heldur sjálf.
SVARTUR
KÖTTUR
Kæri draumráðandi!
Mig er búið að dreyma nokkra
fremur skrýtna drauma og mig
langar til að biðja þig um að ráða
fram úr þessum draumi. Þannig
er mál með vexti að ég sá sætan
strák sem er sautján ára og mig
dreymdi hann líka áður en ég sá
hann. Draumurinn er þannig: Ég
var að dansa við þennan strák.
Svo hættum við og fórum út að
labba. Þá sáum við svartan kött
sem hljóp fyrir framan okkur. Við
þekktum bæði þennan kött og
fórum að tala eitthvað um hann.
Mig hefur oft dreymt þennan strák
og þá hefur svartri kötturinn oftast
verið I draumnum.
Mig langar mikið til að vita hvað
þessir draumar merkja og af hverju
þessi svarti köttur er alltaf I draum-
unum?
P.S. Ég þakka fyrir æðislega
gott blað.
Bæ, bæ.
Ein rugluð.
Fyrst svarti kötturinn fylgir alltaf
þessum draumum um strákinn
verð ég að hryggja þig með þvi
að hann er ekki fýsilegur kostur
fyrirþig, sennilega á hann létt með
að svikja I ástamálum. Það er
megininntak draumsins.
50 VIKAN 43. TBL