Vikan - 15.01.1987, Page 6
í desember, rétt áður en
daginn tók að lengja um eitt
hænufet á dag, fjölmenntu
dansunnendur í dans- og leik-
smiðjuna Kramhúsið til að
læra undirstöðuatriðin í ekta
rúmbu. Það er óhætt að segja
að gömlu, góðu samkvæmis-
dansarnir séu að vinna á
aftur, eftir tveggja áratuga
skakdans í sitt hvoru horninu.
Tangóinn kom í vor og sigr-
aði marga danselska Islend-
inga. Nú varþað rúmban.
Til landsins voru komnir tíu
kúbanskir tónlistarmenn til
að kynna suður-ameríska
tónlist og spiluðu þeir á
nokkrum stöðum í borginni.
Það voru þeir sem tóku að
sér að sýna og kenna rúrnb-
una eins og hún gerist best i
Suður-Ameríku. Aðalatriðið
er takturinn, fastur og ákveð-
inn, en sporin spinnast
nokkuð frjálslega út frá hon-
um. Það þarf ekki að orð-
lengja að þátttakendur
smituðust fljótt af hinum
grípandi takti og ekki leið á
löngu uns svitaperlur runnu
afiðandi, áhugasömum nem-
endum - og kennurum.
Takturinn sleginn af krafti.
Þetta verður
greinilega
spennandi...
6 VIKAN 3. TBL
!