Vikan - 15.01.1987, Page 20
E L D H U S
Pöstu veisl a
í síðustu Viku vorum við með uppskrift að
pöstudeigi og leiðbeiningar um hvernig bera
skuli sig að við framleiðsluna. í þessari Viku
höldum við áfram og komum með bráð-
skemmtilega hugmynd að góðri pastamáltíð.
Þetta er tilvalin hugmynd þegar við ætlum
að hafa gesti í mat án þess að hafa of mikið
fyrir. Nota má ýmsar tegundir af pöstu, allt
eftir smekk og hentugleikum. Best er að sjálf-
sögðu að nota nýjar pöstur en að sjálfsögðu
má líka nota þurrkaðar pöstur úr pökkum.
Pösturnar eru settar í stóra skál, munið að
setja smjörklipur út í. Með eru svo bornar
kaldar og heitar sósur, parmesanostur og ekki
sakar að skola kræsingunum niður með góðu
rauðvíni. Til að slá botninn í vel heppnaða
máltíð má bera fram eitthvað sætt og létt,
eins og ís eða léttan súkkulaðirétt.
Hér á eftir fylgja uppskriftir að pöstum og
sósum sem bera má með.
1 kíló pöstur (nægir fyrir 6-8 manns)
6 lítrar vatn
salt
Sjóðið pösturnar í stórum potti og saltið
vatnið. Setjið örlitla olíu út í vatnið. Látið
suðuna koma upp. Hrærið í með tveim göfTl-
um og notið báðar hendurnar, þá klístrast
pösturnar ekki saman. Lækkið hitann og látið
pösturnar sjóða á lágum hita. Gætið þess vel
að ofsjóða þær ekki. Besta ráðið til að fylgj-
ast með því er einfaldlega að bragða á þeim.
Hnetusósa:
1 'A bolli saxaðar hnetur
4 franskbrauðssneiðar (án skorpu)
% bolli mjólk
1 hvitlauksrif
'A bolli rifmn parmesanostur
salt og pipar eftir smekk
Bleytið brauðið i mjólkinni í nokkrar
klukkustundir. Pressið hvítlauksrifið og saxið
hneturnar. Blandið saman við uppbleytt
brauðið og hrærið saman. Bætið því sem eftir
er saman við og ef til vill dálítilli mjólk ef
með þarf.
Tómatsósa:
1 finsaxaður laukur
'á fínsaxaður rauður pipar
2 msk. tómatsafi
1 lárviðarlauf
1 'A bolli tómatmauk
salt, pipar og oreganokrydd cftir smekk
2 msk. olía
Hitið olíuna í potti, setjið fínsaxaðan lauk-
inn út í og steikið i fimm mínútur. Bætið rauða
piparnum út í og hrærið í þrjár mínútur. Setj-
ið loks tómatsafa, tómatmauk og krydd
saman við. Látið sjóða við vægan hita í fimmt-
án mínútur. Þessa grunnsósu má nota þegar
búin er til svokölluð „vongole“-sósa. Þá er
bætt út í einni dós af kræklingum. Krækling-
arnir eru látnir hitna í gegn. Sósan borin fram
strax.
Pestosósa:
1 Vi bolli basilikumblöð (helst fersk)
1 hvítlauksrif
3/a bolli hnetur
I Vi bolli olía
salt eftir smekk
Vi bolli rifinn parmesanostur
Steytið basilikumlaufin og hvítlauksrifið í
mortéli. Bætið hnetunum í. Steytið og hrærið
vel saman. Bætið út í salti og osti og hrærið
vel saman. Setjið í skál og bætið rniklu af
olíu út í. Þessi sósa er borin fram köld.
Djöflasósa:
2 msk. olía
1 finsaxaður laukur
1 pressað hvitlauksrif
ansjósa úr dós (má nota gaffalbita í stað
í staðinn)
4 msk. söxuð steinselja
4 msk. majoram
'/4 bolli kapers
1 dós túnfiskur
1 dós tómatmauk
!4 bolli saxaðar svartar ólífur
Hitið olíuna í pönnu, setjið laukinn og hvít-
laukinn út í og hrærið í nokkrar minútur.
Takið pönnuna af hitanum og setjið ansjósu
eða gaffalbita út í og kremjið vel. Setjið pönn-
una aftur á hilann og bætið kapers, ólífunt
og túnfiski sarnan við. Hrærið vel í þrjár mín-
útur yfir hitanum. Setjið tómatmaukið saman
við. Þekið og látið sjóða við vægan hita í fjöru-
tíu mínútur. Kryddið eftir smekk og bætið
steinselju og majoram út í áður en sósan er
borin fram.
Osta- og sveppasósa:
1 bolli brætt smjör
'/1 tsk. salt
'A tsk. pipar
100 g sterkur ostur, t.d. óðalsostur eða
gráðaostur, skorinn í teninga
100 g rifinn sterkur ostur
100 g rifinn parmesanostur
'/2 bolli heit mjólk
125 g svcppir í sneiðum
Bræðið helminginn af smjörinu og bætið
salti og pipar út í. Skerið ostinn í teninga og
hrærið þar til osturinn er næstum bráðnaður.
Setjið rifna ostinn og það sem eftir er af smjör-
inu saman við og hrærið. Bætið parmesanost-
inum í og loks sveppunum og mjólkinni. Berið
sósuna fram sjóðheita. í stað sveppanna má
nota rækjur.
Steinselju- og eggjasósa:
4 brauðsneiðar (án skorpu)
'A bolli edik
4 bollar ósöxuð steinselja
4 hvítlauksrif
salt og pipar eftir smekk
Va bolli olía
I harðsoðið egg
Leggið brauðsneiðarnar hverja ofan á aðra
í skál. Hellið edikinu yfir brauðið. Setjið hvít-
laukinn, steinseljuna, brauð og dálitla oliu í
blandara. Hrærið saman. Bætið meiri olíu út
í smátt og smátt. Kryddið eftir smekk. Setjið
í skál og dreifið harðsoðnu, söxuðu egginu
yíir. Þessi sósa þarf að standa yfir nótt og er
borin frani köld með heitum pöstum.
20 VIKAN 3. TBL