Vikan - 15.01.1987, Síða 26
íslandskynning
í Waterloo
Sunnudaginn 30. nóv-
ember var mikið um að vera
hjá íslendingafélaginu í
London en þann dag stóð
félagið fyrir veglegri ís-
landskynningu. Þetta er
þriðja árið sem félagið held-
ur slíka kynningu og hefur
hún alltaf farið fram í Wat-
erloo salnuin i Royal Festi-
val Hall.
Kynning þessi er einkum
ætluð vinum og aðdáendum
íslands og fer því dagskráin
fram á ensku. I hléi eru
bornar fram íslenskar veit-
ingar, svo sem flatkökur og
rúgbrauð með hangikjöti,
kleinur og rjómapönnukök-
ur og svo auðvitað kaffi
með.
Kynning þessi hefur alltaf
verið mjög vel sótt og núna
síðast sóttu hana um tvö
hundruð og fimmtíu manns.
Magnús Magnússon var
fenginn til að kynna atriði
þau sem á dagskránni voru
og gerði það með mikilli
prýði eins og har.s var von
og visa. Hann bauð gesti
velkomna en siðan flutti
menntamálaráðherra,
Sverrir Hermannsson, ræðu.
Þá var sýnd kvikmyndin
Frá vinstri: Olafur Egilsson sendiherra, Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra, Steindór Olafsson, formaður Islendingafelagsins i London,
og kona hans, Hulda Johansen.
Texti: Björg Árnadóttir, blaðamaður Vikunnar í London
Myndir: Kristinn Ingvarsson
26 VIKAN 3. TBL