Vikan - 15.01.1987, Blaðsíða 31
Donald Sutherland fer með hlutverk Pauls Gauguin í myndinni Oviri
eftir Henning Carlsen.
ir Bernard Tavernier. Þar segir frá
gömlum tenórsaxófónleikara sem
missir fótanna eftir erfiðan feril
senr „Be-bop“ listamaður. Hann
fer þá til Parísar, þar sem hann
hafði verið mjög vinsæll fjórtán
árum áður. En honum er ekki eins
vel tekið og hann vonaðist til. Þá
rekst hann á unglinginn Francis
sem var og er mikill aðdáandi
listamannsins. Myndin lýsir sanr-
skiptum þeirra.
Það var djasskonungurinn
Dcxter Gordon sem lék hlutverk
gamla saxófónleikarans og þótti
hann standa sig með eindæmum
vel. Myndin er full af tregatónlist
og þeirri sérstæðu tilfinningu sem
hún gefur.
Bretinn Ken Loach sýndi
myndina Fatherland. í henni er
rakin saga vísnasmiðs senr er
fæddur og uppalinn í Austur-
Þýskalandi. Hann flýr þaðan til
Vestur-Þýskalands. Fyrsta hugs-
un hans er að leita uppi föður sinn
sem hafði flúið land fyrir 30 árum.
Athyglisvert er að aðalleikarinn í
myndinni, Gerulf Pannach, er
einnig flóttamaður og vísnasmið-
ur. Hann semur tónlistina við
myndina ásamt Christian Kunert.
Bandaríkjamenn voru líka í
Feneyjum. Þeir tóku þó ekki þátt
í keppninni en sýndu myndina
Heartburn með Maryl Streep og
Jack Nicholson í aðalhlutverkum.
Bandaríkjamenn hafa ekki mikið
að sækja til Feneyja en ef nriðað
er við áhuga ljósmyndara á
bandarísku stórstjörnunum má
ætla að talsvert sé ennþá eftir af
þeirri virðingu sem Hollywood
naut á árum áður.
Þótt margar þær myndir, sem
sýndar voru á hátíðinni, væru
íburðarmiklar, leikendur stjörnur
og rniklir fjárnrunir væru lagðir í
þær þá sannaðist að dómnefndin
tekur ekki mið af slíku. Sigurveg-
ari hátíðarinnar var franska
myndin Le Rayon Vert - Græni
geislinn. Það er einföld og ódýr
mynd eftir Eric Rohmer.
Gleðilegt er til þess að hugsa
að listrænn metnaður skuli vera
hafður í hávegum á þessari merku
hátíð.
BIFREIÐA VARAHLUTIR
•4^
J2
ro
J. Sveinsson & Co.
Hverfisgötu 116
Símar 15171 —22509
3. TBL VIKAN 31