Vikan - 15.01.1987, Side 51
P Ó S T U R
XOGY
Kæri Póstur.
Nú komum við með þessa sömu rullu sem
þú ættir að vera orðinn vanur að fást við.
En við erum alveg í vandræðum og við verð-
um að leita ráða hjá þér. í guðs bænum
ekki henda þessu bréfi, hversu vesælt sem
það kann að vera.
Þannig er mál með vexti að við erum tvær
vinkonurnar, X og Y, og erum yfir okkur
ástfangnar af tveimur strákum. Við þekkjum
þá sæmilega en hittum þá aldrei nema við
tölum við þá að fyrra bragði.
Strákurinn, sem X er hrifin af, er mjög
feiminn og hún veit ekki hvort hann er hrif-
inn af henni. Hann hefur samt alltaf tekið vel
í að hitta hana. Á hún að hringja í hann og
ef hún gerir það, hvað á hún þá að segja? X
er líka feimin.
Hið stóra vandamál Y er þetta: Hún hefur
aldrei verið eins ástfangin og hún er nú. Hún
hefur oft hringt í hann með óvissum árangri
og þá hefur hann alltaf verið hress.
Um daginn fréttum við að þeir væru á
leiðinni í bíó ásamt öðrum krökkum og auð-
vitað fórum við líka eftir þá fregn. Okkur
fannst þeir gefa okkur oft auga og við feng-
um náttúrlega fiðring í hvert skipti sem þeir
litu á okkur. Eftir myndina spurðu þeir okkur
hvert ferðinni væri heitið og víð sögðumst
ætla á vissa skemmtun. Þá ákváðu þeir að
koma líka. Þegar á ballið kom týndi Y sínum
strák og fann hann aftur, haldandi í hönd
annarrar stelpu - þau kysstust ekki. Hann
var orðin svolítið fullur. Y varð niðurbrotin.
Svo var ballið búið og við, X og Y, löbbuð-
um áleiðis heim og hittum þá á leiðinni. Þá
var stelpan ekki með. Þetta var það sem
gerðist og því miður er Y jafnástfangin og
áður. Hún vill ekki hringja í hann eins og
gefur að skilja.
Hjálpaðu okkur, elsku Póstur, og svaraðu
okkur eins fljótt og þú getur. Bráðlega yfir-
gefur einn aðilinn, sem við skrifum um,
landið.
X og Y.
Ekki getur Pósturinn i fljótu bragði skilið
hvers vegna Y vill ekki hringja í strákinn þó
svo hann hafi haldið í höndina á stelpu á
balli. Kannski var hann bara að heilsa hennr
Kannski er hún frænka hans. Viðbrögðin
lýsa alla vega ekki miklum baráttuanda. En
ef Y er ekki hætt að hugsa um sinn strák
ætti hún að manna sig upp I að hringja í
hann og spyrja hvort hann sé til í að skreppa
I bíó með sér og X eða eitthvað álíka. Hún
hefur gert það áður svo það ætti ekki að
saka að gera það einu sinni enn. Varðandi
X er málið alveg jafneinfalt. slá á þráðinn.
Þið virðist vera kunningjakonur þessara
stráka því ekki að reyna að komast að því
á hverju þeir hafa helst áhuga og hringja
svo? Það er alltaf hægt að rabba um góða
blómynd sem hefur verið sýnd nýlega. skól-
ann eða áhugamál/n. Nú, ef þetta gengur
ekki þá eru vissulega fleiri fiskar I sjónum.
SÓLGIN í
SÆLGÆTI
Kæri Póstur.
Mig langar til að vita einn hlut. Barnið
mitt er mjög sólgið í öll sætindi. Stundum
velti ég því fyrir mér hvort þetta sé hættu-
legt, hvort það geti skaðað barnið á einhvern
hátt að vera sí og æ að fóðra það á sætind-
um.
Móðir.
Börn eru að öllum jafnaði mjög fjörug og
því þurfa þau mikla orku til að brenna. Syk-
ur er mjög auðveldur í brennslu og þvi
auðfengin orka. Þvi verða börn oft á tíðum
mjög sólgin í allt sætt. Þetta er ekki á neinn
hátt skaðlegt en börn geta sem best fengið
þessa aukaorku úr öðrum og hollari fæðu-
tegundum en sykri, svo sem úr nýjum og
þurrkuðum ávöxtum. Rúsínur eru sérlega
góðar í þessu skyni.
Fullorðið fólk gerir oftast ráð fyrir þvi að.
börnum þyki sætindi góð og er því stöðugt
að bjóða börnum þau. Staðreyndin er hins
vegar sú að börnum liði allt eins vel þó þau
smökkuðu aldrei brjóstsykur eða önnur sæt-
indi.
KENNARARN-
IR BERJA
NEMEND-
URNA
Elsku Póstur.
Við eigum við mikið vandamál að glíma
í sambandi við skólann. Það hefur v.iðgeng-
ist í skólanum að nokkrir kennarar berji
nemendurna. Er hægt að kæra þá fyrir það?
Við erum á þeirri skoðun að kennarar megi
vísa nemendum úr tíma og skrifa þá niður
en ekki berja þá. Er hægt að kæra þá fyrir
barnaverndarnefnd? Ef svo er, hvernig er
hægt að ná í einhvern þaðan sem hefur
áhrif? Elsku Póstur, viltu hjálpa okkur og
segja okkur hvað við getum gert, við þolum
þetta ekki lengur.
Þrír úr 6., 7. og 8. bekk.
Samkvæmt lögum er óheimilt að berja
nemendur í skólum eða beita þá öðru líkam-
legu ofbeldi. En það gæti reynst ykkur erfitt
að sanna að þið hafið verið beitt líkamlegu
ofbeldi i skólanum nema því aðeins að um-
merki sjáist eftir ofbeldið. Ef sú skyldi verða
raunin eigið þið að leita læknis og fá stað-
festingu hans á áverkunum.
Þið nefnið ekki hvort þið hafið rætt um
þessi mál við foreldra ykkar. Ef svo er ekki
ættuð þið að reyna það ráð. Eitthvert af for-
eldrum ykkar ætti að sýna ykkur skilning og
hjálpa ykkur að komast fyrir þetta athæfi
kennaranna.
Það er nú einu sinni svo að unglingar eru
oftá tíðum varnarlausirgagnvart fullorðnum.
sama hvort þeir eru beittir órétti eða ekki.
Með því að hafa samband við yfirvöld á
heimaslóðum ykkar getið þið komist að þvi
hverjir sitja I barnaverndarnefnd og að því
búnu verðið þið að ganga á fund einhvers
nefndarmanns eða skrifa honum eða nefnd-
inni allri og útskýra i hverju ofbeldið er fólgið.
Þá sakar ekki að vera búinn að fá einhvern
fullorðinn í lið með sér.
Ef allt um þrýtur getið þið gripið til þess
. örþrifaráðs að neita að mæta I skólann fyrr
en þetta mál hefur verið leyst.
Þannig er mál með vexti að líkamlegt of-
beldi skaðar sálina mun meira en líkamann
og það á engin manneskja að þola öðrum
að beita likamlegu ofbeldi. sama á hvaða
aldri hún er.
PENNAVINIR
Björn Sigmundur Ólafsson
Glóru
Hraungerðishreppi
801 Selfossi
Björn er þriggja ára og í bréfinu segir: Vill
einhver þriggja ára strákur verða pennavinur
m:nn. Hann verður að eiga góða systur eða
mömmu til að skrifa fyrir sig. Ég vona að
einhver skrifi. Áhugamál mín eru að fá bréf
frá pennavinum, trommur, svín, kýr og að
skemma dót.
Chris Akers
Ryan Meck
Dan Malone
Ivoy Burkholder
Ephrata Junior High Scool
Hammon Avenue
Ephrata
Pennsylvania 17522
717-733-7961
USA
Þau stunda nám í ofangreindum skóla og
langar til að eignast pennavini á íslandi á
aldrinum 12-15 ára. Þau skrifa á ensku.
Inga-Brita Gerson
Brödákra 2
S-24033 Löderöd
Skáne
Sverige
Inga er fædd 1928 og langar til að skrifast
á 'við islenskar konur. Hún skrifar á dönsku,
sænsku og norsku.
Marja Peltomaki
4. Linja 16 B 19
00530 Helsinki
Finland
Marja er 17 ára. Hún hefur áhuga á íþrótt-
um, hestum, bréfaskriftum, tónlist og fleiru.
P
3. TBL VIKAN 51