Vikan


Vikan - 15.01.1987, Side 53

Vikan - 15.01.1987, Side 53
vitið hefði meira, fór inn í stofu og settist í sófann. Andartaki síðar korn hún á eftir hon- um og settist í hornið gegnt honum. Og þau horfðust þegjandi í augu. Lengi. Loks stóð hann upp, fór fram í eldhús, lok- aði á eftir sér og fór að þrífa eftir hana. Hún sat eftir og horfði í gaupnir sér. Þegar hann hafði fleygt diskabrotunum í ruslið, sópað gólfið og meira að segja farið yfir það með blautum klút - og gengið frá þeim áhöldum sem heil voru - fór hann inn til hennar og settist hjá henni í sófann. Hún leit upp og strauk hálsinn aftanverðan þar sem hann hafði gripið hana steinbítstaki. Hann færði sig nær henni, rétti fram höndina og þau féllust í faðma! Og svo fór hann að kyssa á henni hálsinn, strjúka henni um vanga og áður en leið á löngu tók hann hana í fangið og bar inn í svefnherbergi. Ljósin loguðu í stofunni, en inni hjá þeim var myrkur. Við Hilda gátum ekki séð hvað fram fór, en áttum ekki erfitt með að ímynda okkur það. Hún stundi lágt og þegar ég leit á hana sýndist mér ég sjá tár í augum hennar. Svo stóð hún á fætur, tók saman ílátin undan kvöldverðinum og fór fram. Skömmu seinna heyrði ég hana leggjast til svefns. Ég vakti lengi frameftir við að bókfæra við- burði kvöldsins í lífi Guðgeirs og Stellu. Átökunum milli hjónanna lauk ekki með atlotum þeirra þetta kvöld. Næstu daga var stundum eins og allt væri í hers höndum á heimili þeirra. Ég var raunar nokkuð viss um það á tímabili að þá og þegar myndi slitna upp úr hjónabandinu, því mér fannst ótrúlegt að svo viðkvæm kona sem Stella var myndi þola svona slagsmál. Hún var vön góðu at- læti og eftirlæti umhverfisins og hafði aldrei tekið þátt í hversdagslegum störfum á heim- ili. Hún hafði ekki tekið ábyrgð á neinu nema sjálfri sér - ef ég undanskil afrek hennar á vinnustað, sem mér skildist að væru fyrir ofan meðallag. Vinnufélagi hennar hafði sagt mér að á skrifstofu Skógræktarinnar gætu menn ekki komist af án hennar. Ég óttaðist ekki um sálarheill eða úthald Guðgeirs í þessum átökum. Hann var jarn- karl. En ég undraðist að þolinmæði hans gagnvart afskiptaleysi hennar eða leti a heimil- inu skyldi bresta. Ég hafði fastlega reiknað með því að hann sætti sig við hlutskipti sitt. Þegar ég ræddi þetta einhvern tíma við Pál sagði hann eitthvað á þa leið að ekki væri hún betri sú músin sem læddist og átti þá við hvort tveggja, að Guðgeir hafði hrifsað Stellu úr höndum mínum og lika hitt að í vinnunni á blaðinu lét hann ekki fara sérlega mikið fyrir sér frá degi til dags; en hann vann stöð- ugt á. Hann stóð til dæmis nærri því að verða ritstjóri þá daga sem mest gekk á heima fyrir. Á meðan stríðið milli þeirra var kalt, var samlíf þeirra að mestu í settlegum skorðum. Þau komu til dæntis ævinlega saman heim í bílnum, gengu þegjandaleg inn í húsið og Guðgeir hóf sitt eldhússtell. Stella hvíldi sig í stofu og ekki fyrr en undarlegt, og á stund- um tilþrifamikið kynlíf þeirra upphófst í upplýstu svefnherberginu, að í ljós kom að þótt hún hefði hægt um sig við sjónvarpið allt kvöldið, þá rann nú í henni blóðið! En nú var þetta allt komið í vitleysu. Guð- geir var greinilega hættur að sækja hana í vinnuna. Stundum kom hann heim á undan henni og var að dunda sér við matseld eða jafnvel viðhald á íbúðinni, þegar hún kom gangandi eða með strætisvagninum og honurn hafði að því er virtist ekki flogið í hug að sækja hana; og skipti engu þótt úrhelli væri eða norðan kaldi. Aðra daga kom hún á und- an og hann löngu seinna. Þann tíma sem hún var ein einhverja stund áður en hann kom lét hún eldhúsið í friði, enda kunni hún fátt til verka á þeim stað, en þess í stað var hún tek- in til við prjónaskap. Ég trúði ekki mínum eigin augum þegar ég sá hana taka fram garn og fara að fitja upp á prjón. Rifrildi á milli þeirra voru ákaflega algeng þennan tíma. Ég sé það í dagbók minni að þau hafa farið í hár saman svo að segja á hverju kvöldi. En það sauð aldrei eins ræki- lega upp úr og fyrsta kvöldið. Daginn eftir I 3. TBL VIKAN 53

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.