Vikan


Vikan - 15.01.1987, Side 55

Vikan - 15.01.1987, Side 55
og fyrst eftir að hún fór frá mér. Tilfinningin var önnur og alvarlegri. Mér leið illa - og vanlíðanin fór í skapið á mér. Það er ekki gott að segja hvernig hefði farið fyrir okkur Hildu saman, hefði hún ekki verið svo önnunt kafin í vinnunni og sjaldan heirna. Og þegar hún loks kom vorum við hreint ekki að troða hvort öðru um tær! Stundum kom hún og fór án þess að tala við mig. Stundum kom hún upp í rúm til mín, við lukum okkur af og sofnuðum svo. Nei; hún sofnaði, en ég lá andvaka og hugsaði um það sem kannski væri að gerast fyrir handan. Kvöld nokkurt, þegar þau skokkuðu af stað í svitabúningum sínum og skildu mig einan eftir, fylltist ég slíkri vanlíðan og örvæntingu að ég eirði ekki að bíða þeirra. Ég ráfaði fyrst um íbúðina í öngum mínum, en hugsaði svo með mér að úr því þeim fyndist skemmtilegt að hlaupa um göturnar, gæti ég svo sem reynt það líka. Ég gróf upp gamla strigaskó i geymslunni, fór í gallabuxur og peysu. Þegar ég leit í spegilinn í forstofunni áður en ég fór út, fannst mér ég svo furðulegur álitum í þess- um búningi að cg vildi ekki kannast við sjálfan mig. Ég leitaði betur í geymslunni og fann lambhúshettu trúlega frá unglingsárum mín- um þegar ég stundaði útburð á blöðum og þurfti að vera á ferli hvernig sem viðraði. Ég dró hettuna yfir höfuð mér og leit ekki aftur í spegilinn. Ég hljóp al' stað niður götuna og var víst hálfvegis að svipast um eftir þeim. Auðvitað ætlaði ég ekki að gefa mig fram við þau, en hafði í hyggju að hlaupa í humátt á eftir þeim og komast þannig að því hvaða leið þau skokkuðu. En það er um margar leiðir að velja í stórum bæ. Ég gerði mér fijótt grein fyrir því að ég yrði að hlaupa hverja götu aftur og fram og ekki endast til þess vikan ætti ég að finna þau. Og ég varð æ gramari, gramur viö sjálfan mig, gramur við Stellu að hafa espað upp í mér lilfinningu sem ég réð ekki við. Ég hljóp fram á par sem kom gang- andi frá biðstöö strætisvagna. Og gat ekki á mér setiö að ýta duglega aftan á konuna. Svo hljóp ég niína leið gegnum húsagarð, yfir barnaleikvöll og komst þannig kringum hverf- ið og heim. Þau voru ekki komin þegar ég settist við gluggann. En mér leiö betur eftir hlaupin, þótt vissulega væri ég móður og fyndi fyrir verkjum í fótleggjum. Ég beið þeirra og var á einhvern hátt hughægara en áður. Þegar þau svo birtusl greip ég þegar dagbók mina og bókfærði athafnir þeirra: steypibað, svefn- herbergið, löng bið, matseld. Næsta kvöld brá ég á sama ráð og daginn áður. Eg batt strigaskóna á l'ætur ntér, dró kimbhúshettuna ylir höfuðið og hljóp af stað. Að þessu sinni var ég lljótari út en áður og sá því til þeirra viö endann á götunni. Ég hélt Ijarlægðinni á milli okkar og hljóp í söntu áll og þau, en gætti þess jafnlVamt að vera viöbúinn að hlaupa inn í næstu hliöargötu ef þau tækju upp á því að snúa viö. Þannig gekk þetta kvöld eftir kvöld. Og þar kom að ég var kominn í svo góða æf- ingu, að ég gat leikið ntér að því að hlaupa kringum hverfið og koma framan að þeim. Auðvitað í hæfilegri íjarlægð. Og þegar ég tók þannig hliðarspor út frá braut þeirra og æddi á fullri ferð eftir götum sem voru á hlið við götuna sem þau skokkuðu eftir, sætti ég iðu- lega færis að berja eða hrinda harkalega fólki sem ég hljóp framhjá. Af einhverjum ástæðum leið mér betur eftir þannig árásir, einkurn ef vegfarandinn sem fyrir árásinni varð var kona. Hlaupin gerðu mér ákaflega gott. Mér fannst ég jafnvel hafa komist í nánari snert- ingu við viðfangsefni mitt en áður hafði verið. En þar kom að ég varð að breyta um aðferð. Kvöld nokkurt síðla kom Hilda heim og hafði með sér eintak af Kvöldblaðinu. Ég var þá fyrir nokkru kominn inn eftir hressilegan sprett og hélt mig við sjónaukann. Hún fleygði blaðinu á borðið í stofunni og fór að sofa. Um nóttina, þegar ég beið þess að þau Guð- geir kæmu fram úr svefnherberginu að fá sér síðbúinn kvöldverð, varð mér litið á blaðið. Þar var áberandi frétt um að fjölmargar kær- ur hefðu borist til lögreglunnar unt að dular- fullur maður væri á hlaupum um hverfið sem ég bjó í og hrinti konum. Þar sagði einnig að lögreglan teldi sig hafa fengið örugga vís- bendingu um þennan mann. þannig að ekki myndi á löngu líða að hann yrði handsamað- ur. Ég settist niður og hugsaði mitt ráð. Kvöldið eftir þegar hjónin fóru út að hlaupa liélt ég kyrru fyrir heima. En ég sat ekki auð- unt höndum. Ég hringdi í lögregluna, breytti rödd ntinni, og sagði varðstjóranum sem svaraði, að mér hefði verið hrint harkalega af umhlaupandi manni. Og sagði að atburðurinn hefði átt sér stað í hverfi fjarri þar sem ég bjó. Svo lagði ég á án þess að segja til nafns. Næsta kvöld endurtók ég þetta bragð, breylti rödd minni enn og sagði sömu sög- una, nefndi sama hverfi í hinum enda bæjarins og lagði svo á. Og aftur kvöldið þar á eftir. Og enn þarnæsta kvöld. Ég hringdi með nýrri rödd á hverju kvöldi í lieila viku. Þegar sá timi var liðinn taldi ég mig hafa beint athygli lögreglunnar að þessu hverfi í hinum enda bæjarins og ákvað að láta til skarar skríða. Ég batt á mig strigaskóna, dró lambhús- hettuna yfir höfuð mér og hanska á hendur. Svo beið ég þess að Guðgeir og Stella færu út að skokka eins og þau höfðu gert á hverju kvöldi um hrið. Fréttirnar í blöðunum um hlauparann sem hrinti konunt virtust ekki liafa fælt þau frá því að vera á ferli eftir að rökkva tók, enda hefur Guðgeir efiaust talið sig geta haft í fullu tré við umhlaupandi stráka; og þar að auki hafði ég ekki slasað neina svo ég vissi. Þegar þau komu út á tröppurnar sin ntegin við götuna rauk ég af stað. Úm leið og ég fór of'an stigann heima hjá mér greip ég sporjárn i hönd mér, en ég hafði lagt það á stigapallinn lyrr tim daginn. 9. hluti - sögulok Ég beið innan við útidyrnar eftir því að þau hlypu ofan götuna og kæmust niður undir horn, trúlega um hundrað metra vegalengd. Síðan tók ég á rás. Ég hljóp eftir gangstétt- inni söntu megin götunnar og þau, hljóp nærri húsagörðunum þannig að ég hefði skjól af trjákrónunum sem víða slúttu fram yfir gang- stéttina. Ég tók löng skref, spyrnti mér langt frant og sveiflaði handleggjunum í boga, langt aftur. langt fram og taldi í huganum einn, tveir. einn, tveir og náði mér á mikla ferð, hljóp eins hratt og ég gat og bar því fijótt að þeint og þegar ég kom að henni slengdi ég frarn handleggnum og sporjárnið rann inn milli rifja hennar og ég fann það snerta hjart- að, elsku hjartað sem ég hafði svo oft fundið slá bak við vinstra brjóst hennar, stöðva það með þessari léttu já raunar ástúðlegu snert- ingu og svo snerist hún í hring og var byrjuð að falla til jarðar svo ég sleppti vopninu og var aftur kominn á fljúgandi ferð og stefndi langt i burtu. Þegar ég heyrði Guðgeir reka upp dýrslegt sársaukavein gat ég ekki annað en brosað þar sem ég fieygðist áfram á sprett- inum, laus við suðu fyrir eyrunum, laus við verk yfir augununt. Frjáls maður. Það er ekki hægt annað en fyllast lotningu fyrir náttúrunni þegar hún sýnir mátt sinn. Þegar Geysir þeytti upp úr sér tonnum af sjóð- andi vatninu þannig að súlan stóð um stund þráðbein upp í loftið fannst mér hugur minn þeytast með hvítfyssandi reiði hversins. Ég stóð sem negldur niður. Og kom ekki til sjálfs mín fyrr en fólkið var farið að streyma af hverasvæðinu þangað sem langferðabílarn- ir biðu. Guðgeir sneri sér að mér, horfði á mig um hríð, en leit svo spyrjandi á manninn sern hafði komið i þyrlunni. Allt í einu var sá kominn að hlið mér og smellti á mig hand- járnum. Það er ekki hægt að gera þetta öðruvísi, sagði hann og stjakaði ntér af stað. - Nei, sagði ég stililega. - Hvernig ætti þetta að vera öðruvísi? Þegar þyrlan hóf sig á loft með mig og lög- reglumanninn hlekkjaða saman aftan við flugmanninn Iyfti ég lausu hendinni í kveðju- skyni, veifaði til þeirra Páls og Guðgeirs þar sem þeir stóðu hlið við hlið með höfuðin reigð aftur á bak. Svo tók þyrlan sveig yfir Hauka- dalinn og niðri á veginum sá ég aldraðan, japanskan bíl aka hratt til suðurs. Mér fannst ég næstum heyra í honum skröltið. Og ég hugsaði með mér að þegar þar að kæmi myndi ég berja upp á hjá stúlkunni sem hafði augu eins og opaltöflur og bjóðast til að vera góð- ur við hana. Hilda? spurði ég lögreglumanninn. Já, sagði hann. Hún kom til okkar með dagbókina þína. Það var óhugnanleg lesning. Þyrlan sveigði austurundir ólgandi jökul- fljót sem var í ani að streyma til sjávar. Svo hækkaði hún flugið og mér fannst ég svífa á skýi; áfangastaður óþekktur - en leiðangurinn sem ég hafði svo lengi beðið eftir var hafinn. 3. TBL VIKAN 55

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.