Vikan - 26.02.1987, Side 6
U mm...
Æðislegir ef'tirrcttir!
Klúbbur matreiðslumeistara
stóð á dögunum fyrir námskeiði
sem gefur sælkerum góð fyrirheit
um feita framtíð... Þetta var nám-
skeið í gerð alls kyns eftirrétta: ís
og sorbet í ólíklegasta formi, tert-
ur, kransakaka, fyUtar pönnukök-
ur, ávextir, ávaxtasósur, marsipan-
og sykurskreytingar og fleira. Út-
færsla og skreytingar voru ægi-
fagrar. Nemendumir voru
matreiðslumeistarar og kennarinn
danskur „konditor", Gert Soren-
sen, sem hefur sérhæft sig í eftir-
og milliréttum.
Hilmar B. Jónsson, forseti
klúbbsins, sagði þetta fyrsta skiptið
sem svona námskeið væri haldið
hérlendis og tími til kominn. Það
hefði mikið vantað upp á að eftir-
réttum væri gert nógu hátt undir
höfði hér og ríkt hefði andleysi á
þvi sviði. En nú verður reynt að
gera bragarbót í þessu máli og þvi
fylgt eftir með fleiri námskeiðum.
Matreiðslumeistaramir áttu ekki
nógu sterk orð til að lýsa snilld
kennara sins og fannst ómetanlegt
að hafa átt þess kost að njóta til-
sagnar hans.
Gert Sorensen er þekktastur í
sinni grein á Norðurlöndum og
hefur fengið fjölmargar viðurkenn-
ingar. Hann var kennari í hótel-
og veitingaskólanum í Kaup-
mannahöfn í tuttugu ár en rekur
nú eigin skóla þar sem áhersla er
lögð á eftirrétti og skreytingar.
Hann á einnig hið rómaða kondi-
torí í Tívolí í Kaupmannahöfn og
þar stjómar konan hans, Elin. Það
var einmitt Gert sem hafði yfirum-
sjón með hinni 64 hæða og 11
metra háu brúðartertu Simonar og
Janni Spies hér um árið.
Gert sagðist mjög ánægður með
árangurinn af námskeiðinu. Nem-
endumir, sem hann þekkti marga
frá fyrri tíð, væm allir mjög færir
matreiðslumenn sem áreiðanlega
notfærðu sér það sem þeir hefðu
nú lært. Hann kvaðst sannfærður
um að þetta námskeið yrði til þess
Glæsileg sykurskreyting. Brjóstsykunnn þart
móta hratt viö ákveðið hitastig.
Snillingurinn Gert Scrensen og kona hans, Elin.
Ráðist til atlögu aö smakka á góðgætinu.
6 VIKAN 9. TBL