Vikan - 26.02.1987, Qupperneq 61
Kristinn G. Harðarson.
kafi í að prófa allt, alla tækni
og aðferðir sem ég gat komist
í, til að mynda átta millímetra
kvikmyndagerð og perform-
anca. Tímann, sem ég dvaldi í
Haag, notaði ég vel, meðal
annars til að afla mér nýrra
hugmynda og til að skoða gall-
erí og söfn.“
Kristinn hefur sýnt víða er-
lendis við góðar undirtektir.
Hann hefur meðal annars sýnt
á Ítalíu, í Sviss, Hollandi, Nor-
egi og Svíþjóð. En hvernig stóð
á því að honum var boðið að
sýna á Ítalíu? „Ég dvaldi í Genf
í Sviss á vegum Borgarlista-
safnsins þar. Safnið útvegar
tveimur listamönnum í senn
vinnuaðstöðu tengda safninu.
Þarna dvaldi um leið og ég ít-
ali sem fannst verkin mín
áhugaverð og kom þeim á
framfæri við eigendur gallerís í
borginni Parma. Dæmið gekk
upp og mér var boðið að sýna.“
Parma er mikil menningar-
borg og þar er mikið af
gömlum byggingum. Tón-
skáldið góðkunna, Verdi, gerði
Parma fræga en hún er líka
fræg fyrir skinku og ost.
Texti:
Jóhanna Margrét Einarsdóttir
Myndir:
Valdís Úskarsdóttir
- Er mikill munur á því að
sýna erlendis og hér heima?
„Já, það er æði mikill munur
þar á. Ef maður er að sýna í
professjónal galleríi er manni
hjálpað miklu meira. Maður
þarf ekki að greiða kostnað af
sýningarhaldinu en galleríin
taka hins vegar prósentur af
sölunni. Fólkið, sem kemur á
sýningarnar, er líka öðruvísi.
Erlendis kemur almenningur í
takmörkuðum mæli á mynd-
listarsýningar heldur eru það
listfræðingar, safnarar, gagn-
rýnendur og listamenn sem
sækja þær. Hér á íslandi er al-
menningur hins vegar mjög
duglegur við að sækja mynd-
listarsýningar en fer minna á
söfn sem fólk erlendis gerir hins
vegar mikið að, eftir því sem
manni virðist.“
- Þú ert lítið fyrir að útskýra
myndirnar þínar, er ekki svo?
„Það er rétt og myndlistar-
menn eru það sennilega upp til
hópa, nema kannski pólitískir
listamenn, svo og þeir sem
mála sagnfræðileg verk, goð-
sögulegar verur og fleira í þeim
dúr. Það er alltaf spurning um
hvernig menn vinna. Ég vinn
út frá tilfinningu en þegar
lengra Iíður frá fer ég kannski
að spekúlera í verkunum.
Það er hægt að bera saman
myndlistarstarfsemi mína og
matarlöngun. Stundum langar
mig í sætindi og stundum Iangr
ar mig í hákarl. Annað kastið
langar mig að gera svona mynd
en ekki öðruvisi og ég veit ein-
faldlega ekki af hverju. Ég hef
tekið þá stefnu að gera það sem
mig langar til hveriu sinni.“
- Eru einhverjir einstakling-
ar sem hafa haft áhrif á þig
öðrum fremur?
„Fyrstu áhrifin, sem ég varð
fyrir, komu þegar ég hóf nám
við Myndlista- og handíða-
9. TBL VIKAN 61