Vikan - 06.08.1987, Blaðsíða 6
Vatnið er mikiö notað til að iðka alls kyns íþróttir.
Lítil
saga
frá
Ziirich
Dag einn snemma sumars
lagði hópur manna og kvenna
upp frá Keflavíkurflugvelli og
var ákvörðunarstaðurinn
Zurich. Borgin er norðarlega í
Sviss og er stundum nefnd óop-
inber höfuðborg landsins.
Ferðin átti aðeins að standa yfir
í tæpan sólarhring og var farin
í tilefni fimm ára afmælis Arnar-
flugs á þessari flugleið. Hópur-
inn bjóst ekki við mörgum
ævintýrum og leit frekar á ferð-
ina sem sunnudagsbíltúr í lengra
lagi.
Á þessum tíma rigndi mikið í
Evrópu og fór Sviss ekki var-
hluta af regninu. Menn höfðu
séð í fjölmiðlum fréttir sem
sögðu eitthvað á þessa leið:
ALDREI RIGNT JAFN-
MIKIÐ í SVISS SÍÐAN
MÆLINGAR HÓFUST.
Samt sem áður gerðu þeir sér
vonir um að njóta sumarylsins
sem oftast vermir landann þegar
hann yfirgefur skerið. En nú
snerist dæmið við. Hópurinn
steig inn í vélina á íslandi í blíð-
skaparveðri en út úr henni i
Zúrich undir gráum, þung-
búnum himni. Allt var blautt,
greinilega nýlega stytt upp. En
þessi sólskinshópur’ frá Islandi
lét ekki bugast þótt ekki væri
Majorkaveður í Zúrich enda
voru áhyggjur óþarfar því ekki
rigndi meira þann daginn.
Flugstöðvarbyggingin vakti
strax athygli. Eftir alla umræð-
una um nýju íslensku flugstöð-
ina var óhjákvæmilegt að bera
þær tvær saman. Flugstöðin í
Zúrich er ekki siður haganlega
gerð en Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar. Meira að segja hafa
Zúrichbúar tvær agnarsmáar
flugvélar hangandi í loftinu á
sinni flugstöð en við höfum bara
eina Ögn. En það besta við flug-
stöðina var lestarstöðin undir
henni. Þangað geta flugfarþegar
farið og tekið lest hvert sem vill.
Við völdum miðbæinn sem
áfangastað og héldum á vit æv-
intýranna. Fæstir höfðu komið
til borgarinnar áður og enn færri
töluðu þýsku skammlaust.
Leiðin lá um aðalverslunar-
götuna, Bahnhofstrasse, og
Ferjan gengur um Zurichsee, vatniö sem borgin er byggð í kringum.
Um borð er hægt að borða góðan mat meðan útsýnisins er notið.
6 VIKAN 32. TBL