Vikan


Vikan - 06.08.1987, Blaðsíða 43

Vikan - 06.08.1987, Blaðsíða 43
Pósturinn________ KÆRASTA BRÓÐUR MÍNS LEITAR Á MIG Kæri póstur Ég hef aldrei skrifað þér áður og finnst hálfhallærislegt að lesa öll þessi bréf sem fjalla um feita rassa og bólugrafin nef. Hvað er fólk að pæla, því fer það ekki til læknis? Jæja, hvað um það, þá er nú svo komið að ég verð að fá að skæla upp við öxlina á þér. Svo er mál með vexti að ég á bróður sem er fimm árum eldri en ég. Hann er finn strákur og allt það og á séns í allar stelpur. Undanfarna þrjá mánuði er hann búinn að vera á föstu með sömu stelpunni og er ferlega ánægður með sambandið. Þetta er flott stelpa en ekki öll þar sem hún er séð og þar stendur hnífur- inn í kúnni. Þegar þau fara út að skemmta sér og hún kemur með honum heint eftir böll kemur hún alltaf yfir í herbergið mitt þegar hann er sofnaður. Þegar hún kemur er hún hress og skemmtileg, vill kjafta og hlusta á plötur. Fyrst var þetta allt í lagi en upp á síð- kastið er hún farin að reyna við mig. Daginn eftir lætur hún eins og ekkert sé og lítur varla HROSSABÚí ÞÝSKALANDI Elsku póstur Ég hef oft skrifað þér áður en aldrci fengið svör. Nú verður þú að reynast mér vel og leysa úr spurningahnútnum hjá mér. Þannig er að mig langar til Þýskalands að vinna á hrossabúi. Ég er alvön hestum og öllum sveitaverkum þannig að ég treysti mér alveg til að umgangast þessar skepnur. Vandamálið er að ég veit ekki hvert ég á að snúa mér með upplýsingar. Á ég að fara í sendiráðið eða eitthvað annað? Ein með alvarlega hestadellu Illt er að heyra aó þú Itafir fariö bórtleió til búóar frá póstinum. Hér meö bætir pósturinn úr því. Þaó sem þú getur gert er aó hafa sam- band vió þýska sendiráöió. Þú getur annaðhvort hringt eóa fariö á staðinn. Þar geta þeir vísað þér á Itvaöa leióir eru heppilegastar til aó kom- ast í samband við slík bú. Einnig getur þú haft samband við hestamenn sem hafa verið erlendis og þekkja til. við mér, eins og ég sé ajgjört smábarn. Hvað á ég að gera í þessu? Á ég að segja bróður mínum frá þessum næturheimsóknum eða byrja með henni? Er hún kannski bara að leika sér að mér og hlær í laumi að vandræða- ganginum í mér? Ekki stinga þessu bréfi undir stól því ég get ekki talað við neinn um þessi mál. Einn í klípu Hvaö er aö heyra þetta? Nú þykir mér skör- in vera farin að fcerast upp í bekkinn ef tilvon- andi mágkona þín leggur í vana sinn aö skríóa upp í til þín. Heilrœðið, sem pósturinn getur gefió þér, er aó láta hana koma aö lokuöum dyrum hjá þér næst þegar þau skötuhjú bregóa sér í betri fötin og fara á ball. Pósturinn Iteldur satt best að segja að blessaóri stúlkunni sé eng- in alvara meó þessu næturbrölti. Henni finnst kannski spennandi aö ögra þér svolítið og sjá PENNAVINIR Krístina Marjamaa Paasikivenk 1 B 46 15110 Laht 11 Finland Kristina er þrettán ára gömul og hefur hug á að komast í samband við íslenska pennavini. Hún hefur áhuga á sundi og lestri bóka. Natalia Konster Salkokatv 42 11100 Riihimáki 10 Finland Natalia er finnsk skólastelpa sem vill skrifast á við íslenska krakka á aldrinum 12-15 ára. Hún segist svara öllum bréfum. Mary Ann Struthers Ashuelot St. Winchester, N.H.03470 U.S.A. Mary Ann er um tvítugt. Hún hefur mjög gaman af bréfaskriftum og óskar eftir penna- vinum. Aldur eða kyn skiptir ekki máli og lofar hún að svara öllum bréfum sem henni kunna að berast. hvernig litli bróðir bregst vió daórinu. En þaö eru litlar likur á aó liún snúi bakinu við bróður þínum og byrji með þér. Þaó er óþarft aö svekkja bróður þinn með því aó segja honum frá athæfi kærustunnar. Efhenni er þessi hegð- un töm á hann eftir að sjá í gegnum það sjálfur og heiUavœnlegra er upp á samband ykkar bræðranna að þú komir því máli ekkert vió. Þessir hlutir eru ákaflega viðkvæmir og hafa með sjálfsvirðingu og álit að gera. Sárindi, sem ættu með réttu aó beinast að stúlkunni, gætu snúist í bróður þínum þannig að þú yrðir blóra- böggullinn. Hinu er ekki að neita að þér líst greinilega vel á kærustu bróður þíns og það hvarjlar að póstinum aó áhugi hennar á þér kitli hégómagirnd þína. Þú lœtur þess ekki get- ið hvað þú ert gamall en mér virðist þú kominn á þann aldur að hafa auga fyrir kvenfólki. Því ekki að fara út meó kunningjunum og gleyma þessum næturœvintýrum? Krókur á móti bragði gæti verið að bjóða stelpu í bíó þannig að hin sjái aó þú lælur liana ekki spila með þig. Monika Bácher Schlossbergstr. 11 8591 Friedenfels Germany Monika er sextán ára og hefur áhuga á sundi, eldamennsku, gítarspili, köttum og lestri bóka. Conny Seidl Nelkenstr. 26 A 8590 Marktredwitz West Germany Conny er sautján ára stelpa sem hefur gaman af að hlusta á tónlist og lesa góðar bækur. Þeir sem ætla að skrifa henni geta notað bæði ensku og þýsku. Helina Rimpinen Skogsahgsgatan 2c 63357 Eskilstuna Sverige Helina er tuttugu og sjö ára sænsk stúlka. Hún er dökkhærð, há og bláeyg, með margvís- leg áhugamál. Kvikmyndir, bækur, bréfa- skriftir, framandi lönd, tónlist og föt eru aðeins lítið brot af þeim. Þeir sem skrifa Hel- inu verða að kunna sænsku. 32 TBL VI KAN 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.