Vikan - 06.08.1987, Side 43
Pósturinn________
KÆRASTA BRÓÐUR MÍNS LEITAR Á MIG
Kæri póstur
Ég hef aldrei skrifað þér áður og finnst
hálfhallærislegt að lesa öll þessi bréf sem fjalla
um feita rassa og bólugrafin nef. Hvað er
fólk að pæla, því fer það ekki til læknis? Jæja,
hvað um það, þá er nú svo komið að ég verð
að fá að skæla upp við öxlina á þér. Svo er
mál með vexti að ég á bróður sem er fimm
árum eldri en ég. Hann er finn strákur og
allt það og á séns í allar stelpur. Undanfarna
þrjá mánuði er hann búinn að vera á föstu
með sömu stelpunni og er ferlega ánægður
með sambandið. Þetta er flott stelpa en ekki
öll þar sem hún er séð og þar stendur hnífur-
inn í kúnni. Þegar þau fara út að skemmta
sér og hún kemur með honum heint eftir böll
kemur hún alltaf yfir í herbergið mitt þegar
hann er sofnaður. Þegar hún kemur er hún
hress og skemmtileg, vill kjafta og hlusta á
plötur. Fyrst var þetta allt í lagi en upp á síð-
kastið er hún farin að reyna við mig. Daginn
eftir lætur hún eins og ekkert sé og lítur varla
HROSSABÚí
ÞÝSKALANDI
Elsku póstur
Ég hef oft skrifað þér áður en aldrci fengið
svör. Nú verður þú að reynast mér vel og
leysa úr spurningahnútnum hjá mér. Þannig
er að mig langar til Þýskalands að vinna á
hrossabúi. Ég er alvön hestum og öllum
sveitaverkum þannig að ég treysti mér alveg
til að umgangast þessar skepnur. Vandamálið
er að ég veit ekki hvert ég á að snúa mér með
upplýsingar. Á ég að fara í sendiráðið eða
eitthvað annað?
Ein með alvarlega hestadellu
Illt er að heyra aó þú Itafir fariö bórtleió til
búóar frá póstinum. Hér meö bætir pósturinn
úr því. Þaó sem þú getur gert er aó hafa sam-
band vió þýska sendiráöió. Þú getur annaðhvort
hringt eóa fariö á staðinn. Þar geta þeir vísað
þér á Itvaöa leióir eru heppilegastar til aó kom-
ast í samband við slík bú. Einnig getur þú haft
samband við hestamenn sem hafa verið erlendis
og þekkja til.
við mér, eins og ég sé ajgjört smábarn. Hvað
á ég að gera í þessu? Á ég að segja bróður
mínum frá þessum næturheimsóknum eða
byrja með henni? Er hún kannski bara að
leika sér að mér og hlær í laumi að vandræða-
ganginum í mér? Ekki stinga þessu bréfi undir
stól því ég get ekki talað við neinn um þessi
mál.
Einn í klípu
Hvaö er aö heyra þetta? Nú þykir mér skör-
in vera farin að fcerast upp í bekkinn ef tilvon-
andi mágkona þín leggur í vana sinn aö skríóa
upp í til þín. Heilrœðið, sem pósturinn getur
gefió þér, er aó láta hana koma aö lokuöum
dyrum hjá þér næst þegar þau skötuhjú bregóa
sér í betri fötin og fara á ball. Pósturinn Iteldur
satt best að segja að blessaóri stúlkunni sé eng-
in alvara meó þessu næturbrölti. Henni finnst
kannski spennandi aö ögra þér svolítið og sjá
PENNAVINIR
Krístina Marjamaa
Paasikivenk 1 B 46
15110 Laht 11
Finland
Kristina er þrettán ára gömul og hefur hug á
að komast í samband við íslenska pennavini.
Hún hefur áhuga á sundi og lestri bóka.
Natalia Konster
Salkokatv 42
11100 Riihimáki 10
Finland
Natalia er finnsk skólastelpa sem vill skrifast
á við íslenska krakka á aldrinum 12-15 ára.
Hún segist svara öllum bréfum.
Mary Ann Struthers
Ashuelot St.
Winchester, N.H.03470
U.S.A.
Mary Ann er um tvítugt. Hún hefur mjög
gaman af bréfaskriftum og óskar eftir penna-
vinum. Aldur eða kyn skiptir ekki máli og
lofar hún að svara öllum bréfum sem henni
kunna að berast.
hvernig litli bróðir bregst vió daórinu. En þaö
eru litlar likur á aó liún snúi bakinu við bróður
þínum og byrji með þér. Þaó er óþarft aö
svekkja bróður þinn með því aó segja honum
frá athæfi kærustunnar. Efhenni er þessi hegð-
un töm á hann eftir að sjá í gegnum það sjálfur
og heiUavœnlegra er upp á samband ykkar
bræðranna að þú komir því máli ekkert vió.
Þessir hlutir eru ákaflega viðkvæmir og hafa
með sjálfsvirðingu og álit að gera. Sárindi, sem
ættu með réttu aó beinast að stúlkunni, gætu
snúist í bróður þínum þannig að þú yrðir blóra-
böggullinn. Hinu er ekki að neita að þér líst
greinilega vel á kærustu bróður þíns og það
hvarjlar að póstinum aó áhugi hennar á þér
kitli hégómagirnd þína. Þú lœtur þess ekki get-
ið hvað þú ert gamall en mér virðist þú kominn
á þann aldur að hafa auga fyrir kvenfólki. Því
ekki að fara út meó kunningjunum og gleyma
þessum næturœvintýrum? Krókur á móti bragði
gæti verið að bjóða stelpu í bíó þannig að hin
sjái aó þú lælur liana ekki spila með þig.
Monika Bácher
Schlossbergstr. 11
8591 Friedenfels
Germany
Monika er sextán ára og hefur áhuga á sundi,
eldamennsku, gítarspili, köttum og lestri
bóka.
Conny Seidl
Nelkenstr. 26 A
8590 Marktredwitz
West Germany
Conny er sautján ára stelpa sem hefur gaman
af að hlusta á tónlist og lesa góðar bækur.
Þeir sem ætla að skrifa henni geta notað bæði
ensku og þýsku.
Helina Rimpinen
Skogsahgsgatan 2c
63357 Eskilstuna
Sverige
Helina er tuttugu og sjö ára sænsk stúlka.
Hún er dökkhærð, há og bláeyg, með margvís-
leg áhugamál. Kvikmyndir, bækur, bréfa-
skriftir, framandi lönd, tónlist og föt eru
aðeins lítið brot af þeim. Þeir sem skrifa Hel-
inu verða að kunna sænsku.
32 TBL VI KAN 43