Vikan - 06.08.1987, Síða 22
Vikan — kvikmyndir/myndbönd
Verjandinn, Dannenberg (James Coburn), ráðfærir sig við skjólstæðing sinn, Leonski (Reb Brown).
Ný kvikmynd - Death of a Soldier
Áströlsk
únalsmynd
Philippe Mora er leikstjóri
sem hefur verið starfandi síð-
an á sjöunda áratugnum.
Mora, sem er fæddur í Frakk-
landi, en fluttist tveggja ára
til Ástralíu, hefur starfað
jöfnum höndum í heimalandi
sínu og í Bandaríkjunum.
Hann byrjaði feril sinn sem
leikstjóri við gerð heimildar-
mynda. Þeirra þekktust er
Swastika, heimildarmynd um
nasisía. Nokkrar leiknar
myndir liggja eftir hann. Má
nefna Mad Dog Morgan, sem
gerð var í Ástralíu 1976 með
Dennis Hooper í aðalhlut-
verki, og A Breed apart, gerð
í Bandaríkjunum 1984, með
Kathleen Turner og Rutger
Hauer í aðalhlutverkum.
Engin mynda hans hefur
þó vakið jafnmikla athygli og
nýjasta mynd hans, Death of
a Soldier. Þótt ekki hafi hún
notið mikilla vinsælda er hér
um úrvalsmynd að ræða sem
byggð er á sönnum atburðum
er áttu sér stað í Ástralíu á
stríðsárunum, nánar tiltekið i
Melbourneárið 1942.
Myndin fjallar um banda-
Leikstjórinn, Philippe Mora.
ríska hermanninn Edward
Leonski sem sakaður er um
að hafa kyrkt konur í Mel-
bourne. Vöktu morð þessi
mikinn óhug. Gerði lögreglan
mikla leit að morðingjanum.
Fer nokkur hluti myndarinn-
ar fram í réttarsal, enda um
nokkuð sérstök réttarhöld að
ræða. Mora sem ólst upp í
Melbourne, þekkir vel til
staðhátta og morðin ogeftir-
leikurinn eru íbúum borgar-
innar enn í fersku minni.
Umsjórr. Hilmar Karisson
22 VIKAN 32. TBL
Leonski tekinn fastur fyrir morð
á ungum konum.
EINKARANNSÓKNIN ★ ★
Leiks'jóri: Nigel Dick.
Aðalleikarar: Clayton Rohner, Ray Sharkey og Paul Le Mat.
Sýningartími: 97 mín. - Útgefandi: Laugarásbíó.
Einkarannsóknin (Private Investigation) fjallar að hluta til um rannsókn-
arblaðamennsku sem virðist fara út í öfgar þótt réttlætið nái að sigra.
Ritstjóri einn hefur komist yfir upplýsingar er tengja lögreglumenn kókaín-
smygli. Óvænt flækist sonur ritstjórans í málið og verður fyrir ýmsum
skakkaföllum en kemst á snoðir um að lögreglumennirnir ætla að veita
föður hans fyrirsát þegar hann ætlar að fá afhentar sannanir fyrir sekt lög-
reglumannanna. Einkarannsóknin er að mörgu leyti ágætur þriller en
byrjendabragurinn er stundum of mikill. Þess má geta að framleiðandi
myndarinnar er íslenskur, Sigurjón Sighvatsson. Aðalhlutverkin eru í hönd-
um óþekktra leikara en í aukahlutverkum eru ágætis leikarar á borð við
Anthony Zerbe, Martin Balsham og Paul Le Mat.
THESECRETSUNDAY ★ ★
Leikstjóri: Richard Colla.
Aðalleikarar: James Farentino og Parker Stevenson.
Sýningartími: 92 mín. - Útgefandi Steinar hf.
Efnislega er The Secret Sunday nokkuð lík ofangreindri mynd. Aftur eru
það óheiðarlegir lögreglumenn sem reyna að komast fram hjá réttvísinni
og enn eru það rannsóknarblaðamenn sem koma upp um þá. í þessu til-
felli eru fjórir lögreglumenn saman að skemmta sér í veiðitúr. Á vegi þeirra
verða tvær unglingsstúlkur sem þeir gamna sér við. Önnur stúlkan deyr
vegna ofnotkunar eiturlyfja og til að þagga niður í hinni drepa þeir hana.
Tveir lögreglumannanna fá samviskubit og eru harðsnúnum blaðamönnum
auðveld bráð. Einn þeirra er of bráður á sér og birtir órökstudda frétt án
þess að starfsfélagar hans viti og þar með hefur málinu verið klúðrað og
enginn stendur uppi sem sigurvegari í lokin. The Secret Sunday er sérstak-
lega gerð fyrir sjónvarp og er sem slík ágæt afþreying, hröð og spennandi,
þótt söguþráðurinn sé nokkuð losaralegur og endar nái ekki saman.
Þegar Leonski var hand-
tekinn og víst þótti að hann
var morðinginn risu upp deil-
ur rnilli Bandaríkjamanna og
Ástrala um hvernig haga
skyldi réttarhöldunum. Varð
það úr að farið skyldi með
réttíirhöldin sem mál hersins
og til að halda áhrifum sínum
í Ástralíu voru Bandaríkja-
menn tilbúnir að lífláta
sakborninginn og höguðu
réttarhöldunum samkvæmt
því
Umræður hafa orðið um
þessi réttarhöld öðru hverju
og hafa þau alla tíð verið
umdeild. Þykir Mora hafa
náð vel að sýna fram á það
andrúmsloft sem heimsstyrj-
öldin skapaði og gerði þessi
réttarhöld því nokkuð óeðli-
leg.
Það eru tveir bandarískir
leikarar í aðalhlutverkum.
James Coburn leikur verj-
anda Leonski, Dannenberg
majór, og Reb Brown leikur
Leonski. Aðrir leikarar eru
ástralskir.
The Most Shocking
OfThem All.
Norman Bates
is back to normal
But Mother's off her
rocker again
PSYCHO III ★ ★
Leikstjóri: Anthony Perkins.
Aðalhlutverk: Anthony Perkins og Diana Scarwid.
Sýningartími: 90 mín. - Útgefandi: Laugarásbíó.
Physco II er þriðja kvikmyndin um Norman Bates, eina frægustu söguper-
sónu kvikmyndanna, sem Alfred Hitchcock gerði ódauðlegan á sínum tíma.
Það er nokkuð sérkennilegt við Psycho III að það er eins og mynd númer
tvö, sem stóð ágætlega fyrir sínu, hafi aldrei verið gerð. Anthony Perkins,
sem leikstýrir einnig, lætur myndina gerast tuttugu árum eftir að Bates var
lokaður inni á hæli. Hann er sloppinn út og tekinn til við fyrri iðju, jafnógn-
vænlegur og áður. Hann talar við móður sína á nóttunni og myrðir í gervi
hennar. Mikið er reynt að ná hinu rafmagnaða andrúmslofti er einkenndi
fyrstu myndina, meðal annars með því að líkja eftir frægasta atriði henn-
ar, sturtusenunni, en það tekst ekki. Bates er jafnógnvekjandi og áðuren
Perkins er enginn Hitchcock. Þrátt fyrir að einstaka atriði séu nokkuð vel
gerð er Psycho III ekkert annað en miðlungseftiröpun á meistaraverki.
SWAMPTHING ★
Leikstjóri: Wes Craven.
Aðalleikarar: Louis Jourdan og Adrienne Barbeau.
Sýningartimi: 89 mín. - Útgefandi Tefli hf.
Wes Craven er er ábyrgur fyrir Nightmare on Elm Street, myndunum
þremur, og því skapari hins óhugnanlega Freddys Krueger. Þar hitti hann
í mark. Það gerir hann ekki í Swamp Thing. Fjallar myndin um vísinda-
menn í fenjum Suðurríkjanna sem gera tilraunir með kemísk efni. Þegar
hópur glæpamanna gerir árás á búðir þeirra fer allt úr skorðum og óvart
breytist vísindamaðurinn dr. Holland í góðhjartaðan risa sem hjálpar elsk-
unni sinni þegar sótt er að henni úr öllum áttum. Foringi glæpamannanna,
sem er vísindamaður, nær formúlunni sem breytti kollega hans og gerir til-
raun á sjálfum sér með þeim afleiðingum að hann bieytist í illvíga skepnu.
Swamp Thing er gamaldags og minnir helst á myndir er gerðar voru í
fjöldaframleiðslu á sjötta áratugnum þegar öll skrímsli komu upp úr sjónum
- myndir sem voru ódýra; og gleymdust fljótt.
32 TBL VI KAN 23