Vikan - 06.08.1987, Blaðsíða 39
líka verið metnaður til að koma í veg fyrir
að eitthvert ástand skapist sem maður er á
móti.
Þá kem ég að þeim hlut sem er erfíður
fyrir þá sem styðja frelsið. Það er stundum
dyggð að láta fólk í friði, að koma í veg
þér. í raun og veru hugsa ég að þeir séu
miklu betri þingmenn sem koma í veg fyrir
að skattfé sé notað í minnisvarða ákveðinna
þingmanna en ýta frekar undir það að ein-
staklingarnir geti ráðstafað fjármagninu.
Það er eins og segir í gömlum kinverskum
veit að ég get snúið mér að öðru. Sá stjórn-
málamaður, sem er kominn úr tengslum við
atvinnulífið og er hræddur við að detta út
af Alþingi, fer að selja sálu sína. Hann fer
að haga gjörðum sínum með tilliti til þess
að geta fiotið áfram í pólitík. Stjórnmála-
fyrir að vitlausir hlutir séu gerðir. Það hefur
aldrei í mínum huga verið mælikvarði á
dugnað þingmanna að fiytja mikið af mál-
um. Oftast er það hið gagnstæða. Mér finnst
að þeir sem koma í veg fyrir að verið sé að
setja lög og reglur um alla skapaða hluti
ættu að fá rós í hnappagatið. Því miður virð-
ist minnisvarðapólitík vera innbyggð í
lýðræðinu; menn eru kosnir út á eitthvað sem
þeir hafa gert, sem sagt, eins og sagt var við
einn ungan þingmann: Þú skalt byggja brú
eða eitthvert stórhýsi á einhverjum áberandi
stað í kjördæminu því þá muna allir eftir
fræðum: Bestu stjórnendurnir eru þeir sem
enginn fmnur fyrir.
Eg hef engar áætlanir uppi um hversu lengi
ég held áfrarn í stjórnmálum. Starfstími
stjórnmálamanna er að styttast, sérstaklega
þeirra sem eru í forystu stjórnmálafiok-
kanna. Það er mér ekki keppikefii að vera
lengi í stjórnmálum. Ég get vel hugsað mér
í tímans rás að snúa mér að einhverju öðru
og vonandi geri ég það ekki of seint. Hver
og einn verður að þekkja sinn vitjunartíma.
Það að hafa starfað við atvinnurekstur á
sumrin gefur mér kjark vegna þess að ég
Sá stjórnmálamaður,
sem er kominn úr
tengslum við atvinnu-
lífið og er hrœddur við
að detta út af Al-
þingi,fer að selja sálu
sína.
maður verður alltaf að hafa kjark til að geta
stutt stefnu og framkvæmt hluti sem hann
trúir á þótt hann viti að þeir séu ekki vinsæl-
ir meðal almennings."
Friðrik er orðinn 43 ára og nýlega fráskil-
inn. Hann var giftur Helgu Jóakimsdóttur.
Friðrik er fimm barna faðir, auk þess sem
hann á einn stjúpson. Stjúpsonur hans á eins
árs son svo hann er orðinn afi. Ekki leikur
nokkur vafi á því að líf stjórnmálamanns
útheimtir sitt. Vinnan er krefjandi og ekki
mikill tími aflögu fyrir íjölskylduna. „Ég
býst við að stjórnmálaferillinn hafi átt sinn
þátt í hvernig fór. Hjónabandið þróaðist
þannig að við uxum hvort í sína áttina.
Helga hafði ekki áhuga á stjórnmálum og
ég hafði ekki áhuga á því sem hún var að
gera. Þá var um tvennt að ræða: að halda
áfram að vera gift, halda heimili en vera eins
og tveir óháðþr einstaklingar eða skilja og
það varð úr. Ég get ekkert nema gott um
hjónabandið sagt, leið vel í því í nítján ár.
Við erum góðir vinir þótt við séum skilin
og höfum verið samstíga í að gera þessi hjú-
skaparslit átakalaus."
- Þér er hælt fyrir geðprýði:
„Ég efast um að vinir mínir séu allir þeirr-
ar skoðunar. Reyndar spila ég fótbolta einu
sinni í viku inni í KR-heimilinu til að fá
útrás fyrir skapsmunina. Ég held þó að i
tímans rás hafi ég tiltölulega vel kunnað að
hemja skap mitt og ég er ekki langrækinn.
Ég held að það sé mjög erfitt fyrir menn að
vera í stjórnmálum ef þeir eru langræknir
því oft vill gusta um sali. Það væri óþolandi
að vera stjórnmálamaður ef ágreiningur
kostaði vinslit. Annars held ég að ég sé ósköp
venjulegur maður. Ef Alþingi á að vera speg-
ilmynd þjóðarinnar þarf einhver að vera
fulltrúi venjulegs fólks, skilja langanir þess
og þrár. Af hverju má það ekki eiga fulltrúa
á þingi? Ekki geta allir verið yfirburða-
menn.“
32 TBL VIKAN 39