Vikan - 06.08.1987, Page 47
Ný James Bond kvikmynd hefur nú Jitið dagsins
ljós. Mörgum er frumsýningin á íslandi enn
minnisstæð þar sem flytjendur titillagsins, hljóm-
sveitin A-ha, var viðstödd. Á ensku kallast myndin
The Living Daylights og var heimsfrumsýningin
haldin í London 29. júni síðastliðinn. Það helsta
sem frásagnarvert er við þessa mynd er að nýr
leikari hefur tekið við hlutverki James Bond.
Fræðumst nánar um þennan nýja leikara um leið
og,við lítum á sögu Bond myndanna.
Á þessu ári eru liðin 25 ár síðan fyrsta kvikmynd-
in um James Bond, byggð á sögu Ians Flemming,
var frumsýnd. Sú mynd heitir Dr. No. Sean Conn-
ery lék James Bond í þeirri mynd og var hann
fyrsti maðurinn sem túlkaði spæjarann á hvita
tjaldinu.
Bond númer tvö var George Lazenby en hann
lék aðeins í einni mynd sem gerð var árið 1969.
Hún heitir á frummálinu On Her Majesty’s Secret
Service. Þessi mynd misheppnaðist hrapallega og
Lazenby lék því ekki í fleiri myndum af þessu tagi.
Röðin er nú komin að þriðja leikaranum sem
leikið hefur spæjarann. Hann er enginn annar en
Roger Moore. Margir eiga sjálfsagt eftir að sakna
hans enda hefur hann leikið í mörgum myndum
um spæjarann. Roger Moore verður sextugur á
þessu ári, er því tímabært að yngri og sprækari
maður taki við hlutverkinu.
Loks komum við að hinum nýja Bond, Timothy
Dalton. Satt að segja tekur áhorfandinn lítið eftir
að skipt hafi verið um leikara þegar hann birtist
á hvíta tjaldinu. Útlitið hæfir hlutverkinu einstak-
lega vel. Timothy er piparsveinn eins og James
Bond en segist eiga fátt annað sameiginlegt með
honum. „Við erum báðir hrifnir af konum - en
ekki sömu konunum,“ segir Timothy og heldur
svo áfram: „James Bond er miskunnarlaus og
harðbrjósta. Aftur á móti hef ég alltaf litið á sjálf-
an mig sem frekar vinalegan náunga. Lífshættir
okkar eru lika afskaplega ólíkir. Einkaþotur eða
kampavín eru ekki á óskalista hjá mér. Hring'ða
skemmtanalífsins heillar mig heldur ekki. En í
þessu lifir og hrærist James Bond. Þegar ég kem
heim skil ég 007 eftir í vinnunni. Maður heyrir
alltaf um kvikmyndaleikara sem geta ekki hætt
að leika hlutverkið. Það gerist ekki hjá mér, rullan
þarf ekki að stjórna einkalífínu.“
Margir spyrja sennilega hvers vegna Timothy
Dalton hafi verið valinn í hlutverk James Bond.
Erfitt er að segja til um það. Hann hefur ekki
alltaf verið kvikmyndaleikari heldur varð hann
fyrst þekktur fyrir leik sinn í Shakespeareverkum
og öðrum klassískum leikritum á sviði en hefur
þó leikið í nokkrum kvikmyndum áður. Fyrir
fjórtán árum, þegar Sean Connery hætti leik sínum
í Bond myndunum, bauð Timothy sig fram til að
taka við hlutverkinu. Eins og allir vita sem fylgj-
ast með myndunum um spæjarann James Bond
þá hreppti Timothy ekki hlutverkið á þeim tíma.
Fyrir sjö árum endurtók hann prófið þar sem
Roger Moore hafði hótað að hætta. Um samdist
að Roger Moore léki í þrem myndum til við-
bótar. Nú hefur hann lokið þeirri skyldu og var
Timothy þá boðið hlutverkið eftir að víðtæk leit
um heim allan hafði farið fram til að finna rétta
manninn.
Timothy Dalton segir að það hafi lengi verið
draumur sinn að fá að leika Bond. Frá fimmtán
ára aldri hefur hann dreymt um að bregða sér i
gervi mannsins sem eltist við fallegt kvenfólk og
lúskrar á ribböldum og glæpamönnum. Hann hlær
að þessu og segir: „Þegar ég var fimmtán dreymdi
mig um þetta eins og alla aðra stráka. Nú, tuttugu
og fimm árum síðar, fæ ég greidda myndarlega
fúlgu fyrir þennan draum sem rættist. Eg get vel
hugsað mér að láta drauminn halda áfram ef
myndin gengur vel.“
Timothy Dalton segist ekki getað imyndað sér
að hann eigi eftir að verða kyntákn. „Það er hlægi-
legt að hugsa sér slíkt. Auðvitað er allt sem fólk
sér á hvíta tjaldinu tilbúningur. Fólk ætti bara að
sjá mig nývaknaðan. Þá myndi enginn tala um
mig sem slíkan. Mér finnst allt þetta tal um kyn-
tákn hallærislegt en það er víst óhjákvæmilegt að
verða stimplaður á þennan hátt. Eg sætti mig við
það að vissu marki. Að minnsta kosti hef ég ekki
enn verið umkringdur æpandi konum úti á götu.
Þá fer málið fyrst að verða alvarlegt," segir
Timothy.
32 TBL VIKAN 47