Vikan - 04.02.1988, Qupperneq 53
RÚV. SJÓNVARP
17.55 Ritmálsfréttir.
18.00 Nilli Hólmgeirs-
son.50. þáttur um þennan
skemmtilega prakkara.
Sögumaður er Örn Árna-
son.
18.25 Kaja og trúðurinn.
Barnamynd frá norska
sjónvarpinu.
18.50 Fréttaágrip og tákn-
málsfréttir.
19.00 Steinaldarmennirn-
ir. Teiknimynd um fjand-
vinina og nágrannana
Fred og Barney.
19.30 Staupasteinn. Tí-
undi þáttur af þessum
geysivinsæla bandaríska
gamanmyndaflokki um
starfsfólk og fastagesti á
bar í Boston.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og
dagskrá.
20.35 Þingsjá.
20.50 Annir og appelsín-
ur. I þetta sinn fáum við
að kynnast því hvað nem-
endur í Fjölbrautaskólan-
um í Garðabæ eyða
tímanum í. Umsjónarmað-
ur er Eiríkur Guðmunds-
son.
21.15 Mannaveiðar. Lög-
regluforinginn þýski held-
ur áfram að eltast við
glæpamenn með tilþrif-
um.
22.05 Næstur í röðinni.
The next Man. Bandarísk
bíómynd frá 1976. Aðal-
hlutverk: Sean Connery,
Cornelia Sharpe, Albert
Paulsen og Adolfo Celi.
Leikstjóri: Richard Sarafi-
an. Sean Connery leikur
hér ráðherra Arabaríkis
sem er næsti maður á
dauðalista hryðjuverka-
samtaka. Morðinginn er
Ríkissjónvarpið kl. 22.05. Næstur í röðinni. The Next Man. Hér tekst gamli
Bondarinn Sean Connery á við hlutverk þar sem hann leikur ráðherra arabaríkis
sem hryðjuverkasamtök ætla að myrða. Cornelia Sharpe leikur morðingjann
sem hrffst af fórnarlambinu og á í miklu sálarstríði um hvort hún eigi að hlýða
málstaðnum eða tilfinningum sínum.
kaldrifjaður og slægur
kvenmaður sem lendir í
innri átökum eftir því sem
hún kynnist fórnarlamb-
inu betur.
23.55 Útvarpsfréttir í dag-
skrárlok.
STÖÐ2
16.35 Glatt á hjalla (Stand
Up and Cheer). Iburðar-
mikil kvikmynd sem gerð
var á kreppuárunum í
Bandaríkjunum til þess að
létta mönnum lífið.
Aöalhlutverk: Shirley
Temple, John Boles,
Warner Baxter og Madge
Evans. Leikstjóri:
Hamilton McFadden.
17.50 Föstudagsbitinn.
Blandaður tónlistarþáttur
með viðtölum við hljóm-
listarfólk og ýmsum
uppákomum.
18.45 Valdstjórinn
(Captain Power). Leikin
barna- og unglingamynd.
19.19 19.19.
20.30 Bjartasta vonin
(The New Statesman).
Hver myndi samþykkja að
taka að sér að koma
heilum bílfarmi af kjarna-
úrgangi í lóg? Það gerir
þingmaðurinn okkar og
bjartasta vonin í þættin-
um í kvöld enda álitleg
hóknun í boði sem gerir
lonum kleift að klifra
hærra í metorðastiganum.
En þingmaðurinn reiknaði
ekki með þeim erfiðleik-
um sem því eru samfara
að hafa kjarnaúrgangs-
efni undir höndum.
21.00 Kærleikshjal
(Smooth Talk). Þrjár
unglingsstúlkur bíða
fullorðinsáranna með
óþreyju og halda að þar
með verði lífið dans á
rósum. Ein þeirra vaknar
upp við vondan draum
þegar hún þarf óvænt að
segja skilið við unglings-
árin og takast á við
vandamál hinna full-
orðnu. f bakgrunni mynd-
arinnar er lífleg tónlist
sem fólk á þessum aldri
kann vel að meta. Aðal-
hlutverk: Treat Williams
og Laura Dern. Leikstjóri:
Joyce Chobra.
22.30 Skemmdarverk
(Blechschaden). Svartur
bíll þýtur gegnum nótt-
ina. I honum er par á
heimleið eftir ánægjulega
helgi. Skyndilega birtist
hjólreiðamaður í Ijósgeisla
bílsins, en of seint. Sker-
andi hemlahljóð rýfur
kyrrð næturnnar, dynkur,
brothljóð og maðurinn
liggur í blóði sínu á
götunni. Ofsahræðsla
grípur parið, hvað er til
ráða? Ókumaðurinn
stígur bensínið í botn og
þau hverfa út í nóttina.
Aðalhlutverk: Klaus
Schwarzkopf og Götz
George.
00.20 Hættuspil (Roll-
over). Kauphallirnar laða
til sín auðuga ekkju og
kaupsýslumann. En ein-
hver fylgist með gerðum
þeirra.
02.15 Dagskrárlok.
Stöð 2 kl. 22.30.
Skemmdarverk.
Blechschaden. Þýsk mynd
með Klaus Schwarzko
og Götz George í aðalhlut
verkum. Myndin segir
pari sem keyrir á hjólreiða-
mann og stingur af frá
slysstað. En sögunni er
ekki aldeilis þar með lokið.
Stöð 2 kl. 21.00. Kærleikshjal.
Smooth Talk. Bandarísk sjón-
varpsmynd frá 1985 með Treat
Williams og Laura Dern f aðal-
hlutverkum. Leikstjóri er Joyce
Chobra. Myndin segir frá þremur
unglingsstúlkum sem dreymir um
að verða fullorðnar og ímynda
sér að þá verði lífið dans á
rósum. Ein þeirra kemst þó að þvf
að sú er ekki raunin þegar hún
þarf að takast á við alvöru Iffsins.
STILLTU Á STJÖRNUNA
Stjarnan er stillt á þig.
FM 102 og 104
Auglýsingasími 689910
VIKAN 53