Vikan - 29.09.1988, Qupperneq 10
til þess að við snerum
okkur að þorskeldi eða lúð-
ueldi svo ekki sé nú talað um
ef okkur hefði borið gæfa til
að fara út í markvissa ræktun
regnbogasilungs eins og Skúli
á Laxalóni ætlaði að gera á
sínum tíma. Nú eða þá að fara
út í álarækt. Við vorum nokkrir
sem stofnuðum félag um slíka
ræktun fyrir nokkrum árum
en það var drepið niður þar
sem ekki fékkst leyfi til að
flytja inn glerál svo unnt væri
að hefja starfsemina."
Daglegur
óvinafagnaður
Árni segir að ástandið í
peningamálum brenni mun
heitar á landsbyggðarfólki en
Reykvíkingum. Hann bendir á
að fólk úti á landi sem flytji í
þéttbýlið verði að selja eigur
sínar lágu verði. Fyrir góða
bújörð fáist ekki meira en sem
nægi fyrir kjallaraholu í
Reykjavík. Ævilangt strit
hjóna sem þurfi að bregða búi
skili nánast engu þegar upp er
staðið. Launafólk sé sífellt að
verða fátækara á sama tíma og
fjármagnseigendur safni
stöðugt meiri auðæfum.
„Mér finnst sem við kratar
höfúm fjarlægst uppruna
flokksins í augum almennings.
Okkur er kennt um svonefnd-
an matarskatt og sagt að við
höfúm gengið harðast ffam í
vaxtafárinu, sem fólk er að
kikna undan. Það voru hörmu-
leg mistök þegar gengisfell-
ingarleiðin var farin. Þá
hækkaði lánskjaravísitalan um
8% á tveimur mánuðum sem
þýðir að einnar milljónar
króna skuld hækkaði um 80
þúsund í einu vetfangi. Ef ekki
tekst að draga úr verðbólgunni
þá á Alþýðuflokkurinn ekki
mikið erindi í þessari ríkis-
stjórn. Sundrung vinstriaflanna
er sorgarsaga íslenskra stjórn-
mála. Þar fer daglega fram
óvinafagnaður í stað samvinnu
eða samruna. Foringjarnir
geta aldrei lagt fortíðina til
hliðar. Gylfi Þ. Gíslason átti á
sínum tíma í alvarlegum
viðræðum við menn úr
öðrum flokkum um stofnun
nýs flokks, Jafúaðarmanna-
flokks íslands. Því miður varð
sú flokksstofúun ekki að
veruleika. Nú, þegar menn
hafa fengið reynslu af nýfrjáls-
hyggjunni, eru skilyrði til að
sameina vinstriflokkana. Það
væri til góðs fýrir íslenskt
þjóðfélag og ég vil benda á að
í kosningunum 1978 fengu
A-flokkarnir tæp 50% atkvæða.
Hluti af miklu fylgi Kvennalist-
ans í skoðanakönnunum eru
mótmæli gegn þessu þrefi
vinstri flokkanna sín á milli.
Kjósendum finnst sem þeir
finni valkost í Kvennalistanum
og það eru ósköp eðlileg
viðbrögð."
Hjólparstofnun
kirkjunnar
Enn ræðum við pólitíkina
um stund. Síðan vendum við
okkar kvæði í kross. Fyrir
nokkrum árum var mikil
þörf fyrir hjálp og aðstoð.
í þau tvö ár sem Árni hefúr
verið stjórnarformaður Hjálp-
arstofúunarinnar hefúr hún
rétt hlut sinn mjög og öðlast
traust þjóðarinnar á nýjan
leik. En hvernig gekk að snúa
dæminu við?
„Fyrsta verkið var að taka
allar samþykktir til endur-
skoðunar og gera breytingar
með mjög harðri eftirlits-
skyldu með öllum
mannkyns er framundan,
Afríkusprengingin. Þar er
gífúrleg fólksfjölgun á sama
tíma og stórlega dregur úr
matvælaframleiðslu og meiri
neyð en dæmi eru til um áður
blasir við.“
- En er ekki íslenska ríkið
með umtalsverð fjárframlög
til hjálpar vanþróuðum
löndum?
„Sannleikurinn er nú sá að
þrátt fyrir það að við séum
með tekjuhæstu þjóðum
heims, þá er sú þróunaraðstoð
sem við veitum skammarlega
lítil. íslendingar eru í hópi
þeirra þjóða sem hafa skrifað
undir sáttmála Sameinuðu
þjóðanna þess efnis að stefnt
skuli að því að veita sem
nemur einu prósenti af vergri
þjóðarffamleiðslu í þróunarað-
stoð. Svíar og Norðmenn hafa
náð þessu marki, en margar
þjóðir hafa ákveðið framlag
sitt 0,7% og það mark hefur
Alþingi íslendinga samþykkt.
Efúdirnar eru hins vegar á
þann veg, að á þessu ári
nemur framlag okkar 0,06%.
Svo kyrfilega hefur þessi
samþykkt verið svikin og
þetta er okkur til háborinnar
skammar. Þróunarstofúun
íslands er í fjárhagssvelti og
það eina sem hún hefúr getað
gert er að aðstoða íbúa
Grænhöfðaeyja. Það sem
hefúr bjargað andliti fslands
út á við er starf Hjálparstofú-
unar kirkjunnar og Rauða
krossins. Við virðumst ekki
skilja hvað það er okkur
mikils virði að komast í tengsl
við þessar þjóðir. Enda erum
við svolítið sturluð þjóð. í
æðislegu kapphlaupi við að
eyða samstundis öllu sem við
öflum í eitthvað sem við
höldum að færi okkur sanna
hamingju.“
Nú truflaði síminn okkur og
þetta símtal dróst svo á
langinn að það batt enda á
viðtalið, enda-varð einhvers
staðar að setja punktinn. Af
orðum Árna í símann heyri ég
að hinum megin á línunni er
forsvarsmaður einhvers
fýrirtækis fyrir norðan sem á í
baráttu við kerfið og það er
greinilegt að Árni ætlar að
gera hvað hann getur til
að greiða úr vandræðunum.
Það er komið langt ffam á
kvöld. Stundum er talað um
að þingmenn hafi góð laun
þótt þau þættu eflaust ekki há
í einkageiranum. En ég er
hræddur um að tímakaup
þingmanna sé ekki hátt þegar
allt er talið, alla vega ekki hjá
landsbyggðarþingmönnum
eins og Árna Gunnarssyni. Cv/
Kötturinn Keli kominn í fang Áma. Þetta er afar gamall köttur.
Miðað við mannsaldur er hann orðinn 98 ára gamall. Keli hef-
ur lent í ýmsu stórbrotnu um ævina. M.a. fallið út um glugga
á áttundu hæð, 111 sinnum sína eigin hæð, og skollið á 76 km
hraða á malbikinu fyrir neðan. Seigur sá gamli.
umræða um starfsemi Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar og kom
ffam gagnrýni á ýmsa þætti
starfseminnar. Fór svo að
stjórn Hjálparstofnunarinnar
sagði af sér sem og fram-
kvæmdastjórinn. Álit stofnun-
arinnar setti talsvert ofan og
lfamtíð hjálparstarfsins var
undir því komin að þar tæki
maður við stjórnartaumunum
sem flestir bæru traust til.
Leitað var til Árna Gunnars-
sonar um að verða formaður
nýrrar stjórnar. Árni varð við
þeirri beiðni. Hann hafði þá
sjálfur farið til hungursvæða í
Afríku og dvalist þar mánuð-
um saman við hjálparstörf.
Horft á sveltandi og deyjandi
börn og fullorðna, séð þessa
gífurlegu neyð með eigin
augum og þessa brennandi
rekstrinum. Ráðinn var nýr
framkvæmdastjóri, Sigríður
Guðmundsdóttir, sem er
ákaflega hæf og hefur mjög
góða þekkingu á þessum
málum. Við finnum fyrir
trausti meðal almennings og
frábær árangur jólasöíúunar-
innar í fyrra sannar það best.
Við höfum líka sýnt og sannað
að við erum verðug þessa
trausts því hver króna sem
safnast kemst til skila til þess
verkefúis sem safúað er fýrir
hverju sinni utan þeirra 8%
sem fara í rekstrarkostnað. En
það er ekki nóg að safna. Við
höfum ákveðið að fara út í
mikið fræðslustarf til að
upplýsa fólk um þörfina og
hvernig ástandið er víða. Um
80% mannkyns líða skort af
einhverju tagi. Mesta skelfing
10 VIKAN