Vikan


Vikan - 29.09.1988, Blaðsíða 23

Vikan - 29.09.1988, Blaðsíða 23
■160 erlendir ■ blaðamenn runnu á ilminn TEXTl: BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR MYNDIR: PÁLL KJARTANSSON -------------------- Iseptember var kynntur 1 fyrsta sinn nýr herrailm- ur frá Dior, en slíkar kynningar eru vanalega mikill viðburður í tísku- og snyrtivöruheiminum. Að þessu sinni varð ísland fyrir valinu sem staðurinn til að opinbera þessa nýjung og ilminum fylgdu yfir 160 erlendir blaða- menn og ljósmyndarar víðs vegar að úr heiminum. Erlendu gestirnir notuðu um leið tækifærið til að kynn- ast íslandi aðeins nánar og skoðuðu sig því um og kynnt- ust því helsta. Sjaldan eru hér staddir í einu jafh margir blaðamenn og Ijósmyndarar og voru að þessu sinni, enda greip iðnaðarráðuneytið þetta góða tækifæri til að kynna enn frekar það sem landið hefur upp á að bjóða. Erlendum og innlendum gestum var boðið til veislu í Súlnasal Eiótel Sögu, þar sem hægt var að smakka ís- lenskan alþýðumat s.s. súrsað slátur, harðfisk og hákarl og auðvitað ákavíti eða Icy vodka með. Þeir sem ekki voru jafn alþýðlegir — eða vildu eitthvað léttara — fengu sér snittur og kampavín. Tískusýning á ís- lenskum ullarvörum er fastur liður á samkomum sem þess- Vert’ekki að horfa. . . Gylltur, fleginn og eins að- skorinn kjóll og hugsast getur og sú sem honum klæðist getur verið viss um að eftir henni sé tekið. um og ekki annað að sjá en gestum líkaði vel sú sem þarna var haldin . Blaðamaður Vikunnar og ljósmyndari mættu í boðið og voru sammála um að það skemmtilegasta sem fyrir aug- un bar væri klæðnaður kvenn- anna, enda ekki á hverjum degi sem tækifæri gefst til að sjá hvernig heimskonur klæð- ast í boðum. Frú Vigdís Finnbogadóttir kom í boðið, erlendu blaða- wönnunum og öðrum gestum til mikillar ánægju. Hér skálar hún í kampavíni við Maurice Roger, yfirmann ilm- efnaframleiðslu Dior og Friðrik Sophusson iðnaðarráð- herra — og eins og sjá má á hún athygli herranna óskipta. Flestar kvennanna voru í svörtum sparikjólum. Þessi kom frá franska tímaritinu Marie Claire. Þennan leist okkur vel á - svo vel að við báðum stúlk- una að snúa sér við og Ieyfa okltur að mynda hann að framan lílta. Það var auðsótt mál og við fengum síðan að vita að hún væri frá Spáni. Púff, rósir og slaufúr. Þessi glaðlegi sparikjóll var í skærum litum og úr fallegu glansandi efni. Svört slaufa á hliðinni setti punktinn yfir i-ið. ■ ( Baksvipurinn skiptir einn- ig miklu máli - jafhvel megin máli. Fyrir ofan rykkingarkantinn á jakkan- um kom marglitt silkirósa- beð. VIKAN 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.