Vikan - 29.09.1988, Síða 44
SMÁSAGA
Svona var það! Þegar við erum
heima, þá dreymir okkur um að fara
utan, og þegar við erum erlendis, þá
dreymir okkur um að fara heim.
Þetta þýddi þó ekki, að Tove nyti ekki
ferðar sinnar til Ítalíu, sem hún fór í fylgd
með roskinni konu, Önnu Mortensen að
nafhi. Foreldrunum hafði fundist þeir vera
fyllilega öruggir um hina ungu dóttur sína
í fylgd með þessari konu. Þau höfðu öll
lagst á eitt og varað Tove við hinu hætm-
lega fyrirbrigði, sem heitir ókunnir útlend-
ingar, sérstaklega hinum óáreiðanlegu
Suðurlandabúum, sem sækjast gjarnan eft-
ir ungum, ljóshærðum Norðurlandastúlk-
um. Nei, Tove naut hvers augnabliks þess-
arar fyrsm utanlandsferðar sinnar, en það
var eitthvað við troðfúllt þriðja farrýmið,
sem kom henni eins fyrir sjónir og hrað-
lestin, sem hún ferðaðist með á hverjum
morgni milli heimilis síns í Virum og vinn-
unnar í Kaupmannahöfh. Venjulega var
hún álíka troðfull.
Hún skemmti sér við að loka augunum
og ímynda sér, að hún sæti í lestinni
heima. Hún hafði eins og venjulega tekið
sér sæti við gluggann í lestinni, sem kom
frá Holte. Smám saman bættust fleiri far-
þegar við, og hún þekkti þá alla, — eins og
t.d. þá sem komu í lestina við Lyngby, mið-
aldra manninn með yfirvaraskeggið
og þessa eilífu regnhlíf... konuna með
framstæðu tennurnar... og unga manninn
með trefilinn. Hann var alltaf síðastur,
vegna þess að hann var svo kurteis að láta
alla aðra ganga á undan sér inn. Það hafði
hún séð gegnum gluggann. Fyrir bragðið
hafði henni geðjast mjög vel að honum. f
huganum kallaði hún hann alltaf manninn
með trefilinn, því að hann gekk með hann
allan ársins hring nema þegar mjög heitt
var í veðri, og það var nú ekki svo oft
heima í Danmörku. Hann fékk sjaldan sæti.
Hann stóð oftast í miðjum gangveginum og
hélt sér fast, rétt hjá, þar sem hún sat, og
ruggaði með vagninum. Stundum mættust
augu þeirra, og þá brosti hann, og hún
brosti á móti hálfkuldalega, því að hún var
feimin við hann. Hann var bráðókunnur
henni... alveg á sama hátt og allt fólkiði
Við vorum heppnar að fá sæti. Rödd frú
Mortensen vakti hana. Tove Ström frá
Virum, var að fara með ferðafélaga sínum,
sem leit út eins og hún væri að gagnrýna
þessa draumóra hennar um Danmörku — á
sjálfri Ítalíu. — Við erum að fara fram hjá
Ponte Ferroviario! Núna! tilkynnti frú
Mortensen, sem hafði aflað sér allra upp-
lýsinga fyrir ferðina, og bar því skynbragð
á allt. - Við hljótum að vera bráðum
komnar.
Tove kinkaði kolli og horfði á kyrrlátt
44 VIKAN
vatnið. Feneyjar! Hún sjálf, Tove Ström frá
Virum, var að fara til ævintýraborgarinnar,
sem hún hafði þráð að sjá, síðan hún sá
hina dásamlegu mynd með Catherine
Hepburn. Þetta var næstum óskiljanlegt,
og hjarta hennar barðist eins og fugl í búri,
.. .ef til vill vegna þess, að hún bjóst við að
verða fyrir vonbrigðum, að borgin sjálf
jafnaðist ekki á við drauminn. Þannig gat
það verið, vissi hún.
Stöðin, þar sem þær fóru úr lestinni, jók
á kvíða hennar. Ilún hefði næstum getað
verið hvar sem var í heiminum, en þegar
þær komu út úr henni, voru Feneyjar fyrir
utan með gömlum höllum, syndandi í
grænu vatninu, þar sem gondólarnir flutu
eins og svartir svanir og loftið kvað við af
hrópum:
— Gondola, signora, gondola, lady!
Gondola!
— Við skulum fara með vaporettoinum!
sagði frú Mortensen.
— Það er gufuskipið, sporvagn Feneyja.
Það er ódýrara.