Vikan - 29.09.1988, Page 49
I LOFTINU
„Þetta er fullt starf og meira en það,“ segir Helgi Rúnar, sem hefur verið með þátt á
Stjömunni á virkum dögum frá klukkan 13 til 16 og sinnt að auki ýmsum
innanhússmálum.
Helgi Rúnar Óskarsson dagskrórgerðamnaður
Ég er ákveðinn
og ráðríkur
TEXTI: SVALA JÓNSDÓTTIR
LJÓSM.: PÁLL KJARTANSSON
Helgi Rúnar Óskarsson er dag-
skrárgerðarmaður á Stjörn-
unni og hefiir starfað þar frá
upphafi. Helgi Rúnar er
Reykvíkingur í húð og hár, nánar tiltekið
úr Austurbænum og upplýsti að hann væri
21 árs gamall. Hann hefúr starfað við dag-
skrárgerð í útvarpi í tvö ár, fyrst á Bylgj-
unni samfara námi í MS og síðan á Stjörn-
unni.
„Ég var lengi búinn að velta þessu fyrir
mér. aðalástæðan fyrir því að ég hafði
áhuga á að vinna við útvarp var gífúrlegur
áhugi minn á tónlist. Þetta er mjög krefj-
andi starf en líka mjög skemmtilegt."
- Hvernig var fyrsta útsendingin?
„Hún var nokkuð söguleg. Mér til að-
stoðar var Páll Þorsteinsson sem tækni-
maður og í þessum klukkutíma langa þætti
setti hann tvisvar plötur á vitlausan hraða.
Það kom afdrei ffam að hann hefði verið
tæknimaður, þannig að allir héldu að þetta
væru mín mistök. Að öðru leyti gekk sam-
starf okkar alltaf vel. Ekki þar með sagt að
ég hafi aldrei gert mistök síðan, en þetta
hefur verið að mestu leyti stórslysalaust."
Kvikmyndir og
veggjatennis
Helgi Rúnar hefúr verið með þátt á virk-
um dögum frá 13-16 á Stjörnunni frá upp-
hafi auk þess sem hann sá um næturvakt,
en er nú einnig með breska vinsældalist-
ann á þriðjudögum. Að auki sinnir hann
ýmsum innanhússmálum á Stjörnunni,
eins og hann orðar það. „Þetta er fullt starf
og meira en það. Þegar ég tók að mér þátt-
inn sem ég er með á virkum dögum reyndi
ég að gera mér grein fyrir hvað fólk vildi
hlusta á þegar meirihluti þjóðarinnar er að
vinna, annað hvort úti á vinnumarkaðin-
um eða heima. Niðurstaðan varð sú að
hafa minna tal og meiri tónlist, eins fjöl-
breytta tónlist og kostur er á. Það er líka
mjög mikilvægt að halda góðu sambandi
við hlustendur og passa sig á því að lokast
ekki inni í eigin hugarheimi. Það er hætt
við því þegar maður er einn með sjálfúm
sér í stúdíó í þrjá tíma hvern dag.“
Aðspurður um áhugamál fyrir utan
vinnuna segist hann hafa mikinn áhuga á
handbolta. „Ég spilaði með Víking frá því
ég var smástrákur, en hætti í fyrravetur. Ég
læt mér nægja að spila veggjatennis núna
en fylgist hins vegar stöðugt með því sem
er að gerast í handboltanum. Að öðru leyti
er ég áhugamaður um góðar breskar og
bandarískar myndir, en horfi lítið á
sjónvarp. Mér hefúr alltaf fundist það hálf-
gerð tímasóun að horfa á sjónvarp þó það
sé ágætt í hófi, ég vil frekar eyða tímanum
í að ræða málin við kunningjana, enda á
ég ekkert sjónvarp."
Hann segist vera mjög nýjungagjarn,
fylgist með því sem er að gerast hverju
sinni. „Ég hlusta helst á þá tónlist sem er
vinsælust hverju sinni og hef yfirleitt mik-
inn áhuga á öllu nýju, til dæmis nýrri
tækni. Það gildir það sama um bíómyndir,
vinsældaformúlan höfðar ágætlega til
mín. Ætli ég sé ekki bara þessi dæmigerði
meðalmaður sem reynt er að höfða til,
formúlumaðurinn!"
Sœkist ekki eftir frœgð
Helgi Rúnar er í sambúð og heitir unn-
usta hans Ásdís Ósk Erlingsdóttir. Þau
kynntust í MS þar sem þau voru bæði við
nám. Hann segist stefna á framhaldsnám í
nánustu framtíð og hefúr mikinn áhuga á
námi erlendis. „Það er ýmislegt í deigl-
unni, þar á meðal nám í stjórnun, en það
er ekkert komið á hreint ennþá. Ég stefndi
á verkfræðina í menntaskóla, en langir og
strangir eðlisffæðitímar drógu úr áhugan-
um hjá mér eins og mörgum öðrum bekkj-
arfélögum mínum í eðlisfræðideildinni."
- En hver er maðurinn á bak við rödd-
ina? Hvernig er Helgi Rúnar?
„Ég hef gaman af að taka áhættu, þó inn-
an skynsamlegra marka. Ég er mjög félags-
iyndur og hef gaman af því að vera innan
um fólk, að skemmta sér í góðum kunn-
ingjahóp er eitt það skemmtilegasta sem ég
geri. Ég er ákveðinn og ráðríkur, vil fá
mínu ffamgengt, en ég hef ekki mikinn
áhuga á því að láta á mér bera.“
— Þannig að þú ert ekki í útvarpi til að
verða þekkt nafn?
„Nei, alls ekki. Það þurfa allir að fá útrás
einhvers staðar og ég fre útrás í þessu
starfi. En ég sækist ekki eftir frægð, síður
en svo. Þess vegna hef ég ekki áhuga á því
að starfa við sjónvarp, ég kæri mig ekki um
að vera þekkt andlit. Mér finnst sumt fjöl-
miðlafólk alveg búið að selja sjálff sig, það
vilja sumir en aðrir ekki. Þegar ég fer á bíó
veit enginn hver ég er, ég get bara verið
ég sjálfúr og það er mjög þægilegt. Ég yil
hafa mitt einkalíf í ffiði.“
VIKAN 49