Vikan - 29.09.1988, Síða 53
Feitt hár
Einnig getur orðið vandamál með hár
sem fitnar fljótt. Upptökin eru í fitukirtli
sem er utan á hárslíðrinu. Á gelgjuskeið-
inu, við rangt mataræði, stress og af fleiri
orsökum fer kirtillinn að pumpa mikla
fltu. Oft kemur að því að olían fyllir hár-
slíðrið og stíflar það. Hárið dettur út. Næsta
hár sem ætlar að komast upp í staðinn
kemst ekki út vegna stíflunnar. Gerist
þetta á stóru svæði kemur ffam skalli. Á
konum verður hárið yfirleitt þunnt án
þess að um beinan skallablett sé að ræða
og kemur kvenhormónið þar til aðstoð-
ar. Sú aðstoð verður augljós á meðgöngu-
tímanum, þegar oestrogen er framleitt í
miklum mæli og hárið virðist heilbrigðara
en ella. Oestrogen eykur vaxtartímabil hár-
anna. Á breytingaskeiðinu hættir oestrog-
en að vernda konuna fyrir hárlosi, og
stundum verður þá vart við hárþynningu
hjá konum. Karlhormínið nær þá að örva
fitumyndun fitukirtilsins og þá minnkar
ummál slíðursins vegna fitulags, svo að-
eins fínni hár komast í gegn. Hjá karl-
mönnum kemur erfðaþátturinn inn í dæm-
ið til viðbótar við starfsemi androgens,
karlhormónsins. Starfsemi þvagblöðrunn-
ar og gallblöðrunnar spila inn í dæmið
einnig samkvæmt upplýsingum frá eigend-
um Orkugeislans.
Orkugeislinn
Orkugeislinn er í húsi Framtíðarinnar.
Fyrirtækið sérhæfir sig í að fá hárið á höfð-
inu til þess að vaxa. Bæði karlar og konur
geta notið góðs af meðferð til þess að bæta
úr miklu hárlosi og skallablettum, svo
framarlega sem hárrótin er virk ennþá. Sé
hún dauð getur ekkert lífgað hana við.
Kínverjar hafa kennt okkur á Vestur-
löndum aldagamla tækni sína sem við köll-
um nálastunguaðferðina. Jafnvel þeir, sem
ekki nota nálar, geta notfært sér þekkingu
á orkupunktum og miðlínum líkamans.
Þannig er svæðameðferð miðuð við þessa
punkta og línur. Eigendur Orkugeislans,
Sigurbjörg Olsen, Sigríður Gunnarsdóttir
og Yvonne Nielsen nota þekkingu sína á
orkupunktunum til þess að ná árangri í
endurnýjuðum hárvexti hjá viðskiptavin-
um sínum. Þær örva orkupunktana sem
tengjast hárvexti.
Þær stöllur brugðu sér tvisvar sinnum
til Hollands á fjögur námskeið hjá fyrirtæk-
inu sem ffamleiðir leysitæki sem þær nota.
Á „lasersun" tæki þessu,sem viðurkennt er
t.d. í Noregi, er punktaleitartæki, raförv-
unartæki og leysigeislatæki. Leysi (laser)
geisli er ljósgeisli. Við meðferðina er not-
aður kaldur geisli (helium-neon), sem
leiddur er um glerþræði. Á námskeiðinu
fengu þær að auki bækur um orkulínurnar
og punktana.
Meðferðin felst í því að þær nota tæki,
sem gefur vægan rafstraum og örvar
punktana á höndum, höfði og aftan á
hálsi, í stað nálanna, sem notaðar eru
nálastungumeðferð. Síðan er rúllað yfir
höfúðið með rúllu sem gefur vægan
straum og örvar blóðrásina í höfuðleðrinu.
Ári síðar er greinilegt að hárvöxtur
hefur örvast töluvert.
Að lokum er notaður leysigeisli á höfuðið.
Leysigeislinn örvar blóðstreymi og endur-
nýjun fruma. Hann eykur rakann í hár-
botninum, sem þornar upp þegar hárfram-
leiðslan hefur stöðvast.
Þess má einnig geta að svipuð þjónusta
fer fram hjá fyrirtækinu Heilsuvali.
Manex
Auk þessarar meðferðar mælir starfsfólk
Orkugeislans með Manex vökva, sem get-
ið hefur verið áður í Vikunni. Hann er
gerður úr 22 amínósýrum. Uppbygging
hans eru svipuð eins og í hárinu sjálfu. Móle-
kúlin í Manex eru svo lítil að þau smjúga
inn í hárslíðrið og losa um fitustífluna og
hreinsa upp, og svo nær vökvinn niður í
hárbotninn. Fólk ber vökvann á sig einu
sinni til fimm sinnum í viku, eftir því
hversu mikil lokunin hefur orðið á hár-
slíðrinu. Þegar Manex vökvinn er notaður
er ekki notuð raförvunin, heldur ein-
göngu leysitækið.
Einstaklingsbundið
Húð og hár fólks eru afskaplega mis-
munandi og einstaklingsbundin. Þess
vegna tekur meðferð mislangan tíma.
Sumir sjá mun eftir eitt skipti, aðrir verða
að sýna meiri þolinmæði. Ekki skiptir ald-
ur einstaklingsins máli í þessu sambandi.
Yngsti viðskiptavinur þeirra er 16 ára
gamall, en elsti um sjötugt. En vegna kven-
hormónsins gengur hraðar að bæta ástand-
ið hjá konum. Hárkúrinn er 10 meðferðir
sem vara í 45 mínútur í senn. Ef valin er
Manex meðferð, þá tekur hún aðeins um
hálftíma í senn.
Við töluðum við 41 árs gamlan mann,
sem hafði farið að missa hárið fyrir tveim-
ur árum. Hann vildi ekki láta nafhs síns
getið, þar sem hann kvað skalla vera mikið
viðkvæmnismál. Hann vildi allt til vinna að
fá hárvöxt að nýju. Hann hafði séð auglýst
sérstakt sjampó sem átti að auka hár-
vöxt. Þegar það var borið á roðnaði höfuð-
leðrið, en notkun sjampósins hafði ekkert
að segja. Viðmælandi okkar las síðan grein
í dagblaði þar sem talað var um leysimeð-
ferð. Hann tók tíu tíma kúrinn hjá Orku-
geislanum, og fann strax mun eftir 3 tíma.
Þegar hann renndi höndunum yfir skalla-
blettinn var eins og komið væri við nagla-
bursta. Þar var komið um millimetra langt
hár. Viðmælandi okkar hefur alltaf látið
klippa sig á hárgreiðsiustofunni Tinnu.
Hann bað Ólöfu Einarsdóttur hárgreiðslu-
konu að fylgjast með hárvextinum sem hlut-
laus aðili. í samtali við Vikuna staðfesti
hún að hár hefði vaxið aftur á blettinum,
þótt ekki væri hárið komið í eðlilega
lengd. Meðferð þessi hófst í apríl 1987,
með 10 tíma kúrnum. Síðan stoppaði hann
í 1-2 mánuði og kom aftur. Hann kemur
við hjá Orkugeislanum í meðferð svona
meira til að viðhalda hlutunum, eins og
hann segir. Þegar hann var spurður hvort
skalli væri í ættinni svaraði hann því til að
afi hans hefði verið sköllóttur. Að tilhlutan
eigenda orkugeislans er hann nýbyrjaður á,
Manex vitamínkúr. '/
Ama Edström með bók sína um hárið
og meðferð þess.
Þessi mynd er tekin fyrir u.þ.b. ári,
þegar meðferð var að hefjast.
L
VIKAN 53