Vikan


Vikan - 29.09.1988, Side 61

Vikan - 29.09.1988, Side 61
Hjá hjónunum í fjöllunum þar sem gist var eftirminnilegan sólarhring. Svona hús sjást víða í fjöllunum. Við hylinn í Amazon þar sem ferðalang- arnir böðuðu sig ásamt innfæddum sem einnig stunduðu fiskveiðar þar. til La Paz. Vegurinn ffá Copacabana til La Paz var sá versti sem við höfðum kynnst til þessa, og töldum við okkur þó vera ýmsu vön. Þegar til La Paz var komið sáum við hóp af fólki í sérkennilegustu búningum, með grímur fyrir andlitunum, syngjandi og dansandi um göturnar. Fréttum við að þetta væri fyrsti dagurinn í árlegu þriggja daga „karnivali" Bólivíubúa. Ekki urðum við vör við neina dansara næsta dag, en fundum þeim mun meira fyrir vatnssprengjunum á göngu okkar um borgina. Eftir hádegi var farið í skoðunar- ferð til „Moon-valley,“ sem útleggst á ís- lensku Mánadalurinn. Nafhið er mjög vel við hæfi, því þetta er mjög einkennilegur staður og erfitt er að lýsa hinni sérstöku náttúrufegurð sem þar er. Síðan var geng- ið yfir í Cactusgarðinn. Við höfðum mjög góðan innfæddan leiðsögumann sem gat frætt okkur um nær allar þær jurtir sem þarna uxu, en mest megnis voru það kakt- usar. Seinasta dag „karnivalsins" var haldin heljarmikil veisla á hótelinu og var þar samankominn dágóður hópur innfæddra og gesta sem dansaði og söng af mikilli innlifún. Byrjaði fagnaðurinn um morgun- inn og stóð langt fram eftir nóttu. Lífinu var því tekið með ró daginn eftir og eytt í gönguferðir um miðborg La Paz. Um kvöldið fóru nokkur okkar þó á Pena Naira sem er þekkt fyrir mjög góðar sýningar, en þar koma bestu skemmtikraftar ffá ýmsum löndum Suður-Ameríku fram. Eftirminnileg lestarferð Um morguninn var haldið af stað til Puno, sömu leið og við komum, og þar gistum við um nóttina. Rafmagnslaust var mestan hluta kvöldsins og ekkert heitt vatn var hægt að fá. Við þurftum að bíða með að þvo okkur þar til í Cuzco. Þegar við vorum búin að koma okkur vel fyrir í lestinni og biðum eftir því að hún héldi af stað urðum við fýrir töluverðu áfalli. Lestarstjórinn var alls ekki viss um hvort hann væri að koma eða fara, því sjö sinn- um lögðum við að stað, fáeina metra í einu, og jafhoft til baka aftur. f áttunda skiptið var hann orðinn harðákveðinnn í að fara til Cuzco og skipti ekki um skoðun eftir það. Það var mikið fjör í lestinni, fólk kom inn að selja vörur, aðrir til að syngja og dansa og enn aðrir héldu þrumandi ræður - við misjafnar undirtektir. Svona uppákomur eru jafht í rútum sem lestum. Mikið hafði verið um skriðuföll á þess- um slóðum og fórum við ekki varhluta af þeim. Á stórum kafla höfðu brautartein- arnir sigið þó nokkuð og allt var á kafi í kring. Til Cuzco komumst við þó um Gömul Inka híbýli sem tilheyra Pisaq rústunum, en það tekur um klukkutíma að ganga um svæðið. Hjá Ollantaytambo rústunum. Það var vel þess virði að Ieggja á sig að ganga upp á topp því útsýnið var stórkostlegt. VIKAN ól

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.