Vikan - 29.09.1988, Side 64
<y STUM 1 E.a/5 ÍLÚAT BEimR kUBi /UAL FRAM- rii'fl- HALD 5 TEM* R'A*J- O'bR. L'iK FJ'JTI /H EO T'ÓLCf TRÚA i ÉÍÍ Æmm
ÚR~ R&ÐifJ 1 m-L
m'al/m 'OLMS \/ *■ > . /
V UC.C,f\ FftOS/UA T AlA > z ► otfi
5® LU- HUSÍ f Y —V— T I sa- ö'bH /HAa/a/S- a/AFajÍ D'jRu'H
/?ÓA4l/. Jf\U\ ÚPP&Ki IJElTi' b'Ai v > STóRA
SKST- L&K- PtL- TíA/fl . / EÍ6.AP nc 3 k Lo&U 1/
7mil , / Cí-Hp TÍ/&7L /v\ MtJ V
“c; EK.K.I ► V —v— FftiÐ
Si/AR- DASfl /Wip > 6AT 5 TAF- /A/A * > (?5óö- ÍAJ V — (o
STRAUM- KASTi'Ð skeit- iö 5 •* > SKoíAR- ObJL- 'TO/J >
Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
Ekki skaltu búast við því
að vikan verði neitt svipuð því,
sem þú varst að vona, þótt ekki
verði hún samt neikvæð á neinn
hátt. Einhver breyting verður á
högum þínu, og líklega þá til
batfjaðar. Þú ferð í skemmtilegt
ferðalag í vikunni, og muntu um-
fram allt verða mjög upptekinn
af einum ferðafélaga þínum.
Nautid
20. apríl - 20. mái
Þú munt glíma við verk-
efnið, sem þú byrjaðir að reyna
við í seinustu viku, og nú verður
þér mun meira ágengt en í fyrri
viku. Þó verður líklega talsverð
bið á því að þú Ijúkir þessu verk-
efni, því að ýmislegt verður til
þess að glepja þig í þessari viku,
einkum seinni hluta dagsins. Vin-
kona þín sýnir þér nýja hlið á sér.
Tvíburamir
21. mal - 21. júní
Þetta verður dálftið
óvenjuleg vika, einkum hvað öll
samskipti þfn og kunningja þinna
snertir. Þú hafðir gert þér vonir
um sendingu f vikunni, en láttu
þig ekki dreyma um að fá hana,
fyrr en f fyrsta lagi í næstu viku.
Kona, sem nýlega hefur kynnst
þér, sýnir þér einhvern kulda, og
veist þú í fyrstu ekki af hverju
stafar.
Krabbinn
22. júní - 22. júlí
Þetta verður skemmtileg
vika í flesta staði, þótt eitt atvik
verði þó líklega til þess að varpa
einhverjum skugga á alla sæluna,
líklega rétt eftir helgina, en þú
ert að líkindum maður til þess að
láta það ekki á þig fá. Þú hefur
lifað heldur tilbreytingarlitlu lífi
undanfarið, en í þessari viku gef-
ast þér mörg tækifæri.
Ljónið
23. júlí - 22. ágúst
Einn kunningi þinn mun
koma óvenjumikið við sögu þína
þessa dagana. Þú villt allt gera til
að þóknast honum, en líklega
kanntu enn ekki almennilega á
honum lagið, svo að þér verður
lítið ágengt. Það hefur borið allt
of mikið á óþolinmæði í fari þínu
undanfarið, og verður þú að
venja þig af þessum fjára, heils-
unnar vegna.
Meyjan
24. ágúst - 23. sept.
Ekki skaltu halda að þessi
vika verði neitt svipuð því, sem
þú hafðir búist við - nei, hún
verður mun viðburðaríkari og
skemmtilegri, og ekki þá síst
helgin. Þú hafðir ferðalag á
prjónunum, og nú átt þú kost á
því að leggja upp í þetta ferða-
lag. Það skaltu umfram allt gera,
ef þú ert vel undir það búinn.
Heillatala 4.
Vogin
23. sept. - 23. okt.
Nú er hætt við því að fari
að bera of mikið á lesti einum í
fari þínu, og er það því að
kenna, að þú missir tiltrúna á
persónu, sem einhvern veginn
hafði bælt niður þennan löst í
fari þínu. Þó eru líkur á því að
einhver kunningi þinn verði til
þess að bjarga þessu við á ný.
Miðvikudagurinn er heilladagur
fyrir unga fólkið.
Sporðdrekinn
24. okt. - 21. nóv.
Undir helgina gerist
eitthvað, sem á eftir að breyta
áformum þínum varðandi nána
framtíð til mikilla muna. Vinur
þinn hverfur af sjónarsviðinu um
stundarsakir, og kemur það sér
illa fyrir þig, því að þú þarfnaðist
hans einmitt hvað mest þessa
dagana. Þú átt von á góðri send-
ingu, líklega á mánudag. Helgin
verður skemmtileg.
Bogmaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Þetta verður hin þægi-
legasta vika í alla staði. Þú munt
lifa áhyggjulausu lífi - og það er
eins og þú getir leyft þér beinlínis
að liggja í leti þessa dagana. Þú
verður fyrir dýrmætri lífsreynslu,
líklega um helgina, og verður
það atvik til þess að breyta við-
horfi þínu til vissrar persónu
mjög til batnaðar. Heillalitur
rautt.
Steingeitin
22. des. - 19. janúar
Þetta verður hin þaegi-
legasta vika, þótt ekki gerist enn
þeir stórviðburðir, sem þú áttir
hálfvegis von á. Þú metur mjög
vissan eiginleika í fari eins vinar
þíns - en ekki virðist samt bera á
þvi að þú gerir þér far um hið
sama - og þarftu þessa eiginleika
mjög með þessa dagana. Þú
verður fyrir óréttlátri gagnrýni.
Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar
Það er eins og þú sért
eitthvað utan við þig þessa dag-
ana, og þér verður óvenjulítið úr
verki. Það kemur þó til allrar
hamingju ekki að sök, því að þú
átt síður en svo annríkt. Þú skalt
ekki kaupa neitt, sem áður hefur
verið notað, í þessari viku, því að
það gæti aðeins reynst þér illa.
Heilladagur kvenna fimmtudag-
ur.
Fiskar
19. febrúar - 20. mars
Þetta verður dálítið
óvenjuleg vika, einkum hvað allt
félagslíf snertir. Þú munt um-
gangast félaga þína óvenjulítið,
en engu að síður verður þú oft
innan um margmenni, og þá
stundum hrókur alls fagnaðar.
Þú færð nýstárlegt og skemmti-
legt verkefni að glíma við í vik-
unni, og verður það til þess að
glæða áhuga þinn á slíku.
64 VIKAN