Vikan - 26.01.1989, Qupperneq 21
Þorramaturinn frá Múlakaffl hefúr notíð mikilla vinsælda í áraraðir.
áreiðanlega fest í málinu með vísu sem
Helgi Sæmundsson orti að beiðni
Halldórs. Hún er svona:
Inni á Nausti aldrei þverr
ánægjunnar sjóður.
Þorramatur þykir mér,
þjóðlegur og góður.
En það var margt til að gleðja menn í
Naustinu yfir þorramatnum. Meðal annars
var efnt þar til átkeppni. Útbúin voru verð-
launatrog með 3 kg af þorramat. Áttu
menn að ljúka úr troginu og fengu í verð-
laun ævagamalt brennivín. Ýmsum tókst
að torga fullu trogi af þorramat, meira að
segja einni reykvískri frú, en svo upphófst
neikvæð umræða um þessa keppni svo
hún var látin niður falla að sögn Halldórs.
En hvað sem öðru líður tókst að vekja
áhuga fólks á þessum gamla og þjóðlega ís-
lenska mat, sem á líklega tæpast sinn líka,
nema þá ósúrt íslenskt slátur í skosku pyls-
unni - haggis. □
Burns’ Supper
og íslendingar
í janúar ár hvert er haldið upp á
afmæli skáldsins Burns með
Burns’ Supper í Skotlandi og ekki
síður hjá Skotum og Skotavinum í
öðrum löndum. Hér á landi eru
starfandi tvö félög fyrrverandi
námsmanna i Skotlandi, Edin-
borgarfélagið og Lúkas, sem er
félag þeirra sem stunduðu nám í
háskólunum í St. Andrews og
Dundee. Bæði þessi félög eru vön
að minnast afmælis Burns og
borða þá gjarnan haggis innflutt-
an frá Skotlandi. Haggisinn er
borinn inn undir sekkjapípu-
blæstri og óður Burns tii haggis-
ins er fluttur.
Löng hefð mun vera fyrir því að
halda Burns’Supper en þar fyrir
utan má geta þess að haggis er
dagleg fæða Skota og þykir mesti
herramannsmatur. Islendingar
sem ég hef rætt við sem stunduðu
nám í Glasgow fyrr á árum minn-
ast þess að ekki hafi maturinn
alltaf verið góður í stúdentamötu-
neytunum þar, en þegar haggis
var á borðum voru allir ánægðir.
iuiarv Barbour
ÁVÖXTUR
omy hafði glatað hjarta
sínu til Karls Remmer
þegar á þeirri stundu er
hann gekk inn í skurðstofu stóra
sjúkrahússins í Glasgow en þar
starfaði hún sem hjúkrunarkona.
í byrjun hafði hún alis ekki gert
sér grein fýrír þessu. En hann
virkaði svo unglegur, svo ein-
beittur og ömggur og hann sökkti
sér svo niður í verkefni sín. Hann
hafði þegar unnið sér mikið álit
sem skurðlæknir. Þrátt fyrír
þetta var ertthvað svo drengjalegt
við hann og bjarminn í augunum
fékk hverja og eina af hjúkranar-
konunum til að falla fyrír
honum ... allar nema Morny,
hétt hún sjálf. En svo þegar það
rann upp fyrír henni að þrátt fyrír
mótstöðu hennar var hún mjög
svo ástfangin af honum og þess
vegna varð uppgjöf hennar miklu
meiri.
BÓKAUTGÁFAN
RAUDSKINNA
Rauðskinna
Sími: 651099
2. tbl. 1989 VIKAN 21