Vikan - 09.02.1989, Qupperneq 17
þrjár verndarverur mínar og fannst mér
eins og þær væru að tala til mín. Þá fór ég
út úr líkamanum í fyrsta skipti og fékk ég
persónulega fullvissu um líf eftir dauðann
og að við hefðum verndara sem við gætum
ailtaf treyst á og ieitað ásjár hjá. Effir að ég
hafði náð góðu sambandi við geimverurur,
sem ég hef áður sagt frá, fékk ég fleiri
verndara í fyrra, sem veittu mér margvís-
lega hjálp og fór ég að fá frá þeim viss
verkefni til að leysa af hendi sem má telja
yfirskilvitleg. Eitt sinn var ég fenginn til að
hjálpa fjölskyldu sem átti í erfiðleikum
vegna þess að hún hélt að framliðinn faðir
þeirra væri að reyna að láta vita af sér.
Hann hafði líkiega ffamið sjálfsmorð. Þau
fúndu fyrir honum á þann hátt að hlutir
hreyfðust án þess að nokkur kæmi við þá.
Það kom í ljós að fjölskyldan var óskaplega
sorgmædd út af fráfalli hans. Ég fann að ég
fékk mikla aðstoð við að hughreysta fjöl-
skylduna og sannfera hana um að það væri
einhver æðri tilgangur sem réði því að
hann fór frá þó að það hafi verið með svip-
legum hætti.“
Einu sinni ienti ég í
nokkurskonar
draugaútrekstri
— Er það þín reynsla að ffamfiðnir viti af
eftirlifandi ættingjum og vinum?
„Ég hef lítið þurft á því að halda að velta
slíkum spurningum fyrir mér. Einu tilvikin
þar sem ég hef orðið var við famliðna, þá
hefur það verið í tenglsum við syrgjendur
út af sviplegu fráfalli ættingja þeirra. Mér
hefúr fundist, og reyndar fengið það stað-
fest af fólki sem er vel að sér um spírit-
isma, að þetta látna fólk losni ekki frá jarð-
sviðinu, eins og það sé fast við lifandi ætt-
ingja sína. Þróaðar verur líta svo á að lang-
varandi, hömlulaus sorg og sterk eftirsjá sé
eins konar eigingirni, því að syrgjendur
tefji framgang framlífsins hjá hinum látnu.“
— Hvernig eiga ættingjar þá að taka frá-
falli ástvina sinna?
„Það þarf enginn að blygðast sín fyrir til-
finningar sínar, en mönnum væri hollara
að gráta og tjá sorg sína þar til hinn fátni er
kominn undir moldu og sætta sig síðan við
orðinn hlut. Halda áfram að lifa lífinu og
finna sér eitthvað annað að gera. Hvort
sem menn trúa eða ekki þá geta menn litið
á að einhver tilgangur liggi á bak við
dauðsfallið þótt þeir þurfi að bregða sér til
framandi landa sem þeir geti síðan ferðast
til þegar þeir sjálfir eru ailir.
Ég fékk upp frá þessu margvísleg verk-
efhi sem tóku mikið á, eins og andlegar
lækningar. Einu sinni lenti ég t.d. í
nokkurskonar draugaútrekstri (Leifur hlær
við). Ég var í því eina dagstund að losa til-
tekið hús eða öllu heldur fjölskylduna við
einhvers konar óþægindi eða óhugnað
sem var í húsinu. Það má reyndar finna sál-
fræðilega skýringu á flestum ef ekki öllum
þannig yfirskilvitlegum fyrirbærum, sem
er einhvers konar undirrót þess sem á eftir
kemur. í þessu tilviki mátti finna að í huga
a.m.k. einnar manneskjunnár þarna bjó
undirliggjandi gremja og leiðindi í garð
annarrar manneskju í húsinu. Þar sem
þessi manneskja var mögnuð, þá geislaði
hún út firá sér eitruðum örvum sem löðuðu
að neikvaðar verur á „geðsveifluvakanum"
á sama hátt og fallegar og jákvæðar hugs-
anir laða að góðar og vinveittar verur og
hugsanir. Þessar óþrifaverur eru nokkurs
konar andlegar blóðsugur sem nærast á
neikvæðum orkusveiflum líkt og púkinn á
fjósbitanum í fjósi Sæmundar fróða. Vand-
inn var í raun og veru ekki þessar ógeðs-
legu verur á geðræna sviðinu heldur hug-
arfar mannsins sem kallaði ffam þennan
óhugnað. Það sem þurfti var að hreinsa
hugarfarið hjá viðkomandi manneskju sem
hreinsaði andrúmsloftið í húsinu í leið-
inni.
Samfara slíkum verkefnum sem ég hafði
með hendi, vann ég með sjálfan mig með
nuddi, hugrækt og fékkst við alls konar sál-
arvaxtarlærdóm, en samt sem áður tóku
þessi verkefni mikið á mig og settu á mig
sitt mark sem ég átti erfitt með að losa mig
við. Það virtist vera eitthvað sem ég þurfti
að ganga í gegnum. Sú þrautarganga end-
aði í ágúst í fyrra, en þá var eins og hvítt
tjald hefði verið dregið í kringum mig. Upp
ffá því hef ég haft miklu betri stjórn á því
sem ég finn og sé — og ég verð aðeins var
við það sem ég vil finna. Nú næ ég mér
mun fljótar á strik eftir átakamikla reynslu
og læt ég ekki eins auðveldlega draga mig
niður ef ég fer bara eftir því sem ég tel
vera rétt.“
Gat talað viðstöðulaust við
verndara mína í huganum
— Segðu mér frá landshornagöngu þinni
og hvers þú varst var?
„Ég var búinn að þrá þessa ferð í mörg
ár og var hún mjög mikilvægur reynslu-
tími fyrir mig. Ferðin tók 36 daga og gekk
ég frá Reyðarfirði og endaði við Snæfells-
jökul. Mér leist ekkert á blikuna til að
byrja með en óx ásmegin effir því sem á
leið. Þegar ég kom hjá Öskju og svæðinu í
kringum Herðubreið fór ég að finna fyrir
auknum næmleika. Þá fór ég að heyra
hófadyn sem ég gat ekki staðfært, þó út-
sýni og skyggni væri gott. Ég gat ekki var-
ist þeirri hugsun að hér væru kannski á
ferðinni útilegumenn við Ódáðahraun að
smala fé á laun eins og segir í kvæðinu. Ég
ályktaði að þetta hlyti að vera fortíðar-
skynjun því að hughrifin voru eins og aft-
an úr grárri forneskju. Þetta var eins og
háttsettir menn og undirsátar þeirra væru
að reka hesta yfir Ódáðahraunið nokkuð
norðan við mig. Seinna þegar ég bar þetta
undir gamlan leiðsögumann, sagði hann
mér að á þessum slóðum tíðkaðist að
biskupar færu á reið yfir í visitasíuferðum
í fyrndinni.
Eitt sinn villtist ég af leið og var ég að
verða úrkula vonar um að ég fýndi við-
komustað minn við Kistufell. Ég ætlaði að
leggjast fyrir þar sem ég var niðurkominn
eftir 20 tíma göngu. Þá fannst mér að vemd-
arar mínir væru að gefa mér einhverja
vísbendingu. Ég fýlgdi henni algjörlega og
fór upp á hraunhrygg sem var greinilega
úr leið fýrir mig. Þá rakst ég á spor sem ég
rakti og fann þar fýrir Þjóðverja sem höfðu
tjaldað þarna. Þeir urðu þmmu lostnir að
hitta mann sem var að spyrja til vegar eftir
allt það ómak sem þeir höfðu lagt á sig til
að komast sem lengst ffá mannabyggðum.
Þeir leiðréttu síðan kort mitt og allt gekk
vel eftir það. Þegar ég kom á Amarvatns-
heiði lenti ég í þoku og reyndi þá mikið á
innsæi mitt og verndara mína. Þegar ég var
á mótum Hnappadals- og Snæfellsnessýslu
fann ég að óhugnaleg áhrif sóttu á mig. Ég
vissi að þarna í Langavatnsdal og við Hít-
ardal hafði verið byggð og fólk látist á vov-
eiflegan hátt í slysfömm eða orðið úti. Ég
fann fyrir einhvers konar örvæntingarfúllri
ásókn, eins og einhverjar óhamingjusamar
og villuráfandi sálir væru að reyna að ná
sambandi við jarðlífið. Mér var bent á að
beina þeim annað þar sem þær gátu fundið
lausn og var kennd einhverskonar galdra-
þula (mantra) til þessara hluta sem ég gæti
trúað að sé komin frá einhverjum sær-
Frh. á bls. 29
3. TBL.1989 VIKAN 17