Vikan


Vikan - 09.02.1989, Page 30

Vikan - 09.02.1989, Page 30
KAFFISOPINN HÉLT í ÞEIM U'FINU - úr atvinnusögu íslenskra kvenna TEXTI: BJÖRG K. JÓNSDÓTTIR / GUÐRÚN E. AÐALSTEINSDÓTTIR / ÞORGERÐUR M. GYLFADÓTTIR A llt frá þeim degi þegar konur fæðast, /% gangast þær undir ótal reglur og /"» hefðir sem ákveða hvernig líf -J- JL. þeirra sem fullorðinna kvenna lítur út svo framarlega sem ekki er spyrnt við fótum og sagt: „Eru aðrir möguleikar til?“ Að gera sér þetta ljóst, að vakna til vit- undar um kvenímynd sína og skilja að það að vera kona, móðir, eiginkona og vinnu- afl, allt í senn, krefst forgangsröðunar, þess að velja og hafna, og vilja til að hafa áhrif á eigin aðstæður í lífinu. Þetta á einnig við um karlmenn. En hver hefur forgang gagnvart hverjum? Karlmenn hafa allt til þessa dags haft forréttindi í hlutverkum sínum sem karlmenn, feður, eiginmenn og vinnuafl. Hvers vegna? Vegna þess að þeir hafa átt þess kost að vera þjónað bæði í einkalífi og atvinnulífi, og þeir hafa nánast fengið viðurkennt að ekki sé hægt að sinna öllum hlutum samtímis svo vel fari. Hefðir og venjur umhverfisins styðja þá í þessu og gera þeim kleift að velja og hafna. Ekki síst vegna þess að margar kon- ur gera lífið léttara fyrir margan karlmann- inn á leið til frama eða góðrar menntunar, með því einfaldlega að leysa þá af á heimil- inu og bæta þeirra vinnu á sig. Samtímis er ýtt undir viðhorf vinnumarkaðarins gagn- vart karlmönnum, að þeir séu sveigjanleg- ir og áhugasamir í starfi. Hluti sannleikans er hins vegar sá, að sá sveigjanleiki og áhugi getur einungis þrif- ist með því móti að einhverjar aðrar manneskjur geri litlar kröflir og sætti sig við sitt hlutskipti. Það kemur greinilegar í Ijós að margar konur vilja nú einnig eiga hlut í forréttindunum. Þær vilja vinna við hlið karlmannanna í góðum störfum og þar sem ráðum er ráðið, en einnig á verk- stæðisgólfinu og heimilinu. Konur vilja ekki lengur vera varavinnu- afl og láta sér ekki nægja einhæf, slítandi og þreytandi störf. Stjórnendur, framleiðendur og uppfræðsla Verkaskipting hefur ríkt frá örófi alda. í fornöld var talið að mannfólkið skiptist í þrjár stéttir eftir uppruna sínum: þrælaætt- ir, bændaættir og jarlaættir. í Rígsþulu, einu af Eddukvæðunum er stéttaskiptingin augljós og fastmótuð. Sérhver verður að vera þar í stétt sem hann er fieddur, hvort sem er stétt erfiðismanna, eða höfðingja. Er verkaskipting milli karla og kvenna mjög greinileg þegar húsbændur eiga í hlut, auk þess sem vinna þeirra er í sam- ræmi við efnahag og stétt. Aftur á móti er verkaskiptingin óljósari milli dætra og sona í hverri stétt, enda virðist aðallega vera átt við synina þegar sagt er frá hvað afkomendurnir höfðust að. Sú mynd sem Rígsþula dregur upp er án efa mjög í sam- ræmi við verkaskiptingu karla og kvenna jafht ríkra sem fátækra á miðöldum og lengi fram eftir öldum. 30 VIKAN 3. TBL. 1989

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.