Vikan


Vikan - 09.02.1989, Síða 33

Vikan - 09.02.1989, Síða 33
með sig sjálfar, skulu hafa kosningarétt, þegar kjósa á í hreppsnefnd, sýslunefnd, bæjarstjórn og á safnaðarfundum, ef þær eru 25 ára og að öðru leyti fullnægja þeim skilyrðum, sem lög ákveða fyrir þessum réttindum.“ 9> Það var tveimur árum seinna að sauma- kona á ísafirði notfærði sér kosningarétt- inn. Árið 1885 var flutt frumvarp um kosn- ingarétt til Alþingis fyrir ekkjur og ógiftar konur. Frumvarpinu var vísað írá. Skúli Thoroddsen var mikill baráttu- maður fyrir kosningarétti og kjörgengi kvenna. í blaði sínu Þjóðviljanum birti hann margar greinar um kvenréttindamál. Ýmsar þeirra eru undirritaðar dulnefninu Gerður og ætla má að margar hafi verið samdar af Theódóru konu hans. í fyrsta tölublaði, 30. október 1886, segir: „Rétt fírrnst oss, að karlar og konur séu jafht sett að lögum.“w> Nú fóru konur að gera sér grein fyrir að jafnrétti fengist ekki nema þær sjálfar gengju í fárarbroddi. í lok árs 1887 auglýsti kona og flutti fyrsta opinberan fyrirlestur kverma hérlendis. Þetta var Bríet Bjarn- héðinsdóttir. Fyrirlesturinn var um hag og réttindi kvenna og mæltist vel fyrir, og var hann gefinn út á prenti ári síðar. Bríet var brautryðjandi kvenréttinda- baráttunnar á íslandi. Hún var ágætur blaðamaður og í skrifúm sínum fjallar hún um pólitísk réttindi kvenna, afskipti þeirra af opinberum málum og menntamálum. Hún vakti máls á skóla fyrir vinnukonur en á þessum tíma voru þær fjölmenn stétt og taldi hún fulla þörf á því að þær stofnuðu með sér samtök til að gæta hagsmuna sinna en réttindaleysi vinnukvenna var algjört. Máttu hengja kjólinn i skáp frúarinnar Á mörgum efnameiri heimilum var al- gengt að fastráða þrjár vinnukonur. Þær báru mismunandi starfsheiti; eldhússtúlka, stofustúlka og barnfóstra. Haft er eftir Elínu A.R. Jónsdóttur sem var í vist í Reykjavík í byrjun 20. aldar: „Flestar vinnustúlkur sváfu í stofunni og fengu að geyma koffortin sín í geymstunni. Sumar fengu að hengja sparikjólinn sinn í skáp húsfreyjunnar og fór það eftir ríki- dæmi þeirrar síðarnefndu: Þeim mun mirma sem þar var, þeim mun meiri líkur voru á því að kjólinn fengi að hanga í skápnum.“n> Annað dæmi um réttindaleysi vinnu- kvenna er getið um í bók Jóhönnu Egils- dóttur 99 ár: „Ég þekkti unga stúlku, sem Quttist til Reykjavíkur utan aflandi. Þá var erfítt að fá virmu. Hún réðist sem vinnukona til verk- stjóra nokkurs. Hann réði hana síðan í aðra vinnu. Þar tókhún á móti fjórtíu og tveim- ur krónum og fór með þær til húsbónda síns — í lok hverrar einustu viku. Hins veg- ar greiddi hann henni umsamið kaup, fjörtíu og fímm krónur — fyrir mánuðinn! Þessi stúlka fór til vinnu sinnar um rismál á hverjum degi. í hádeginu þurfti hún að kaupa til heimilisins, þvo upp — og þjóta síðan í Gskvinnuna. Á kvöldin sótti hún vatn í bæirm, skúraði gólf og tók til.“I2> Erfiðust var lífebarátta ekkna með mörg börn. Þær fóru á fætur fyrir dögun hvern morgun, sinntu heimilisstörfúm, útbjuggu bita fyrir börnin og héldu síðan til vinnu sinnar. í bók Jóhönnu 99 ár, segir frá ekkju einni er neyðst hafði til að þiggja hjálp af bænum um skamman tíma. „Litlu seinna voru kosningar, og þegar hún ætlaði að kjósa, var henni vísað frá. Hún kom til mín og sagði mér frá þessu. Hún var miður sín af heift — enda mikil skapkona. Þá skildi ég, hvað það var, sem ég hafði lesið um í íslendingasögunum, að hagl hafði hrotið af auga. Það var ekki tár, sem hrundi af auga hennar. Það var hagl.“l}> Hin lélegu kjör vinnustúlkna breyttust lítið til batnaðar. Mikið vinnuálag og frí- tími af skornum skammti. En Kvenrétt- indafélag íslands tók málið upp á lands- fúndi félagsins 1938. Fundurinn sam- þykkti tillögu um að vinnustúlkur ættu rétt á að fá sumarfrí eins og annað launa- fólk. „5. landsfundur kverma álítur réttlátt, að stúlkur þær, sem ráðnar eru í ársvist eigi rétt á 7 daga sumarfríi.“'4> ■ í lok árs 1887 auglýsti kona og flutti fyrsta opinberan fyrirlestur kvenna hérlendis. Þetta var Bríet Bjarnhéðinsdóttir. ■ Nú á tímum er kennarastéttin að miklu leyti kvennastarf og veldur það erfiðleikum í launabaráttu stéttarinnar. Með frelsisanda og þjóðernisboðskap lýðveldisáranna beinist athyglin meira að stöðu konunnar. Ugla Falsdóttir söguhetja Atómstöðvar Halldórs Laxness, er ekki eingöngu fulltrúi íslenskrar alþýðu hún er líka fúlltrúi kvenna sem heimta sinn rétt: „Og hvað ætlist þér fyrir? Ég vil verða maður. Maður, hvemig? Hvorki kauplaus ambátt einsog konur þeirra fátæku né keypt maddama einsog konur þeirra ríku; þaðanaf síður launuð hjákona; og ekki heldur fangi þess barns sem mannfélagið hefur svarið fyrir. Maður með mönnum;“15> Þannig hljómaði ádeilan í verki Halldórs Laxness. Átti að vinna kauplaust! Ein af elstu iðngreinum kvenna er saumaskapur. Öldum saman saumuðu þær föt á börn sín, sjálfar sig og eiginmenn sína og oft á annað heimilisfólk. Stúlkur komu oft með talsverða peninga til baka úr kaupavinnu eða síld að þeim fannst. Þær sem ekki vildu fara í vetrarvist við heim- ilisstörf, leigðu herbergi með aðgang að eldhúsi, síðan voru þær „sjálfrar sín“ með- an sumarkaupið entist. Sumar vildu þó gjarna afla sér menntun- ar til munns eða handa. í frásögn Steinunn- ar Þórarinsdóttur segir: og hvað gat það annað verið en saumaskapur? Ég fór því til Andersen & Lauth og falaðist eftir plássi. Fékk ég það með þeim skilyrðum, að ég ynni kaup- laust." 13) Nýjar stéttir taka við af þeim gömlu. í stað vinnukvenna koma verkakonur í fisk- vinnu, þjónustustúlkur hjá hinum ýmsu stofnunum og einkafyrirtækjum og iðn- verkakonur við margvíslegan iðnað. Rjómabústýrurnar voru arftakar sel- kvenna og síðar konurnar í mjólkurbúðun- um. Vefltonur og þær sem ullina unnu og aðrar þær sem máttu hafa ljós við vinnu sína finna eftirmenn sína í ullarverksmiðj- unum og í hópi listvefara og prjóna- kvenna. En ullariðnaður og sauðfjárrækt voru aðal tekjulindir landsmanna. Fóstrur og fóstrar eru fyrirrennarar barnakennara- og fóstrustéttanna. Áður en Flensborgarskólinn í Hafnarfirði og Kennaraskólinn fóru að útskrifa kennara árið 1893 og 1909 var algengt að konur með kvennaskólamenntun væru kennarar við barna- og kvennaskóla. Þar fengu þær lægra kaup en karlar. Úti í sveitunum höfðu konur oft kennslu heima fyrir, voru þá börnin í heimavist. Nú á tímum er kennarastéttin að miklu leyti kvennastarf og veldur það erfiðleik- um í launabaráttu stéttarinnar. Fyrsta menntaða stétt kvenna á íslandi Ljósmæður eða yfirsetukonur, eins og ljósmæður voru fyrrum kallaðar, eru fýrsta stétt kvenna á íslandi sem fær menntun og laun á vegum þess opinbera. „YRrsetukonur verða fyrsta opinbera launastétt kvenna: Konungsbréf 20. júní 1766 ákveður allra mildilegast, að 100 ríkisdölum skuli skipt milli yfírsetukvenna í landinu. 1760 var landlækni gert skylt að veita ljósmæðrum „tilhlýðilega fræðslu í ljósmóðurlist og vísindum.““ 17> Áttu ljósmæður áður að fá „sanngjarn- lega“ greitt fýrir ómak sitt en fátækum hjálpa fýrir guðs sakir. Þó er það ekki fyrr en árið 1919 að ljósmæður stofna með sér félag. Árið 1907 birtist grein í Skírni um réttarstöðu ógiftra mæðra og barna þeirra á íslandi og á Norðurlöndum. f ffamhaldi af því var flutt tillaga um réttindi þeirra á fúndi í júnímánuði. Þetta sama ár hafði Bríet forgöngu um stofnun Kvenréttindafélags íslands. Markmið þess var að konur fengju fúllt stjómmálajafnrétti við karlmenn þ.e. kosn- ingar, kjörgengi svo og rétt til embætta og atvinnu með sömu réttindum og þeir. í nóvember 1907 fengu konur í Reykja- vík og Hafnarfirði með lögum kosninga- rétt og kjörgengi til bæjarstjórnarkosinga með sömu skilyrðum og karlmenn. f janúar 1908 varð mikill pólitískur sig- ur íslenskra kvenna er þær buðu fram sér- stakan kvennalista með fjórum konum til 3. TBL.1989 VIKAN 33

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.