Vikan - 09.02.1989, Side 45
Varið ykkur! 20. febrúar
FULLT TUNGL
HJALTI JÓN SVEINSSON
SKRIFAR FRÁ V-ÞÝSKALANDI
A ður fyrr var talað um hina dular-
/m fullu krafta sem stöfuðu frá
tunglinu. Síðar komu vísinda-
^L, mennirnir — stjörnufræðingar,
eðlisfræðingar og stærðfræðingar. Þeir
hófu margs konar rannsóknir á áhrifum
tunglsins á jörðina. Á síðustu áratugum
hefur komið í ljós að fullt tungl virðist hafa
gífurleg áhrif á líf og líðan jarðarbúa. Fund-
ið hefur verið samhengi á milli fúlls tungls
og aukinnar tíðni innbrota og fjölgunar
fæðinga svo örfá dæmi séu nefhd.
Þýski dávaldurinn Claus Bick fúllyrðir
að fúllt tungl snúi hreinlega ötlu við í
höfði okkar — reglulega á 29 daga fresti. Af-
leiðingarnar eru meðal annars þunglyndi,
ofbeldishneigð og svefnleysi.
Tunglið hefúr mjög mikii áhrif á heil-
ann. Við fúllt tungl færist virkni hans ffá
hinu rólega skynsemiráðandi vinstra hveli
yfir í hið tilfinninganæma og viðkvæma
hægra hvel.
Claus Bick hefúr komist að þessari
niðurstöðu. Hann rekur rannsóknastöð á
þessu sviði og hefur dáleitt mikinn fjölda
fólks á undanförnum árum. Árið 1985
kveðst hann fyrst hafa farið að gruna þetta.
í ljós kom að sjúklingar, sem að öllu jöfnu
áttu auðvelt með að falla í dá, gátu það
ekki við fúllt tungl. Fram að þessu kvaðst
dávaldurinn hafa komist að þessari niður-
stöðu með því að rannsaka 624 sjúklinga.
„Ég skýri þetta þannig, að um sé að ræða
rafsegulmagnaðar truflanir í heilanum,
sem stafi frá tunglinu þegar það er fúllt.
Það er sem vinstra heilahvel hætti að
vinna með hinu hægra. Það hægra tekur
yfirhöndina, á meðan slokknar á því
vinstra. Mér hefur orðið ljóst hverju hægra
heilahvelið fær áorkað þegar því er ekki
stjórnað af hinu.
Það er sem mannfólkið verði við þetta
miklu tilfinninganæmara á ýmsan hátt.
Fram koma breytingar á hegðun - allt frá
þunglyndi til ofbeldishneigðar og svefn-
truflana.
Við höfúm löngum vitað að tunglið
stjórnar sjávarföllunum alls staðar á jörð-
inni — skiptir þeim á milli flóðs og fjöru á
reglulegan hátt, allt eftir því hver afstaða
þess er gagnvart jörðinni á hverjum tíma.
Þar eð mannslíkaminn hefúr í sér sömu
hlutföll og móðir jörð — tvo þriðju vatn og
einn þriðja fast efni — hlýtur tunglið einnig
að stjórna ákveðnum „sjávarföllum" í lík-
ama okkar.
Margs konar áhrif
á mannfólkið
Blákaldar og áþreifanlegar staðreyndir
feera okkur heim sanninn um hin margvís-
legu áhrif fúlls tungls á líf okkar mannanna
á jörðinni. Hér á eftir fara nokkur dæmi:
• Tunglið og tíðahringur kvenna.
Að meðaltali stendur tíðahringur
kvenna yfir í 29,5 daga. Því er hér um að
ræða tímabilið frá einu fullu tungli yfir í
það næsa — það er 29 daga, 12 klukku-
stundir og 44 mínútur. Rannsóknir hafa
leitt í ljós að hjá meirihluta kvenna hefjist
blæðingar við nýtt tungl eða fúllt. í nýlegri
könnun sem gerð var á meðal kvenna í
Frankfúrt varð niðurstaðan sú að þannig
var í pottinn búið hjá 60% þeirra.
• Tunglið og Érjósemi.
Vísindamenn hafa komist að því að sam-
hengi er á milli fúlls tungls og eggloss, sem
er tími getnaðar hjá konum.
Rafmagnið fór af allri austurströnd
Bandaríkjanna 9. nóvember 1965. Níu
mánuðum síðar varð algjör fæðingar-
sprengja á þeim slóðum. Ástæðan er ekki
bara sú að fólk hafi elskast þá nótt meira
en aðrar nætur til þess að halda á sér hita
og afbera myrkrið betur. — Þessa nótt var
nefnilega fullt tungl! Telja menn það hafa
haft sitt að segja.
• Tunglið og faeðingar.
í háskólabænum Freiburg í Þýskalandi
hefur staðið yfir rannsókn á þessu síðast-
liðin sjö ár og í dæminu eru 33.250 fæði-
ngar. Samkvæmt niðurstöðum er greini-
legt að fæðingar eru tíðari við nýtt tungl
eða fullt.
• Tunglið og sveÉntruflanir.
Lífefnaffæðingar segja að hugsanlegt sé
að fúllt tungl hafi áhrif á efnafræðilega
starfsemi í miðheilanum á þann hátt að
það trufli hinn fasta og heilbrigða svefh.
Ástæðan mun vera sú að jafnvægið raskast
á milli „svefnefnisins“ serotonin og „vöku-
efnisins" noradrenalin.
• Tunglið og höfuðverkjaköst.
Sænski efnaffæðingurinn Jöns Jakob
Berzelius var ffægur fýrir rannsóknir sínar
á ýmsum sviðum. Hann var sjálfúr sárþjáð-
ur af mígreni. Hann komst að því að köstin
helltust ætíð yfir hann við nýtt og fúllt
tungl.
• Tunglið og ofbeldi.
Rannsóknir á Englandi og í Bandaríkjun-
um hafa leitt í ljós að við fullt tungl fjölgar
jafnan afbrotum sem framin eru með of-
beldi.
• Tunglið og umferðaróhöpp.
Klaus Engels, helsti umferðarsérfræð-
ingur Þýskalands og prófessor við háskól-
ann í Köln, fúllyrðir að samkvæmt margra
ára könnunum sé fúllsannað að við fúllt
tungl fjölgi umferðarslysum. Hann segir að
þetta megi rekja til þess að sumt fólk eigi
erfiðara með að einbeita sér við aksturinn
þegar tungl er fúllt.
Eru „tunglrannsóknir"
ekki teknar alvarlega?
Dr. Hilmar Heckert, læknir í Berlín, hef-
ur rannsakað tungláhrif síðastliðin þrjátíu
ár. „Ég óttast," segir hann, „að innan fárra
ára verði enginn vísindamaður sem nenni
og hafi áhuga á að rannsaka þessi áhrif
tunglsins á mannlegt líf. Þeir trúa þessu
ekki og taka okkur hina ekki alvarlega.
Ekkl enn, en það kemur að því.“
Kenning dávaldsins Claus Bicks um
áhrif tungls á vinstra heilahvelið er á hinn
bóginn sannarlega allrar athygli verð.
Hafið þið, lesendur góðir, það ekki oft á
tilfinningunni að ykkur líði á einhvern hátt
öðruvísi þegar „máninn fullur fer um
stræti"?
3.TBL.1989 VIKAN 45