Vikan - 09.02.1989, Blaðsíða 51
tveimur metrum fyrir aftan hana. Hún
fylgdi bendingu hans með augunum og sá,
að hún var stödd beint fyrir framan stein-
garðinn. En hún sá samtímis Ijá, sem hékk
í neðstu greininni á visnu plómutré rétt
hjá, 'ög hún stökk samstundis þangað,
greip ljáinn og sveiflaði honum kringum
sig í örvæntingu.
— Komið, ef þér þorið, hvæsti hún milli
samanbitinna tanna. — Komið bara. — Sú
hugsun, að hún væri ekki aðeins að berjast
fyrir eigin lífl, heldur einnig fyrir framtíð
og hamingju Önnu litlu, gaf henni aukinn
þrótt. Eftir tíu eða fimmtán ár, þegar Anna
þarfhaðist umhyggju hennar og ástar ekki
lengur, mátti dauðinn koma til hennar, og
þá mundi hún hlýðin beygja sig undir
kröfu hans, — en ekki núna, — ekki núna.
Dauðanum, hinni háu, þöglu veru, var
brugðið , þegar hann sá glampa á egg Ijás-
ins í fölu tunglskininu, og hann hörfaði
aftur á bak. Úr andliti hans skein sama
hræðslan sem einmitt hafði hrakið hana
gegnum garðinn og hingað. Hann stóð
þegjandi um stund. Svo tók hann eitt skref
fram á við.
— Frú, sagði hann í viðvörunartón, — eft-
ir tíu sekúndur slasið þér yður á þessum
ljá, og eftir fimmtán sekúndur beygi ég
mig yfir yður og slekk á kerti lífe yðar. Eina
leiðin til að bjarga lífi yðar er að sleppa
ljánum strax.
En hún kreppti hendurnar enn fastar
um ljáinn.
Hann lýgur, hugsaði hún. Hann lýgur. Á
sama augnabliki og ég sleppi ljánum er aft-
ur á móti úti um mig. Ljáinn, einmitt ljáinn
hræðist hann, tákn hans um vald og
miskunnarleysi um margar aldir.
Hún lagði sig alla fram við að valda og
sveifla hinum þunga ljá, og hún fýlltist
hamslausri gleði og stolti, þegar hún sá að
dauðinn hopaði.
Þegar þessar fimmtán sekúndur voru
liðnar og hún stóð enn í sinni þrjóskufullu
baráttu með Ijáinn á lofti, leit Dauðinn á úr
sitt, vafði möttlinum um sig og kveikti sér
í vindlingi. Hann mælti ekki orð af vörum,
en af hinum bitru, hörðu dráttum sem
léku um bleikar, blóðlausar varir hans,
mátti sjá, að honum var skapraunað, þar
sem hann varð að viðurkenna, að hann
hafði eytt dýrmætum tíma sínum til einsk-
is. En hún sá, að hann kunni að taka ósigr-
inum. Hann brosti íbygginn út í annað
munnvikið, um leið og hann lyfti hattinum
og bjóst til að fara.
— Allt í lagi, frú. Við eigum eftir að sjást
síðar. Það var mjög ffóðlegt að fá að kynn-
ast yður. — Hann stansaði og sneri sér við.
— Mér þykir það leitt, en áætlun mín fyrir
næstu ár er svo aðkallandi, að það líður
víst langur tími, þangað til við sjáumst
aftur. Lifið heil þangað til, ffú. — Því næst
hvarf hann út í dimma nóttina.
Þegar hún gekk reikulum skrefum að
húsinu, kom Markús bóndi hlaupandi á
móti henni. — Hvað hefur eiginlega komið
fýrir, ffú Dóra? Af hverju æptuð þér? Hinn
dauðskelkaði maður snarstansaði, þegar
hann sá ljáinn í höndum hennar, og saup
hveljur. — Einn enn, hugsaði hún, sem
heldur, að ég sé gengin af göflunum.
Hún hætti við að skýra út fýrir honum,
hvað gerst hafði, rétti aðeins bóndanum,
sem stóð eins og þvara, Ijáinn og hélt leið
sinni áfram upp að húsinu til þess að spyrj-
ast fýrir um líðan barns síns.
- Anna kemst yfir þetta heilu og höldnu,
firú, sagði læknirinn, þegar hann kom kort-
éri síðar út frá barninu. — Hún sefur núna.
— Ungi læknirinn þrýsti hönd hennar blíð-
lega. — Og nú ættuð þér að sofna sjálf, ffú,
og hvíla þreyttar taugar yðar.
Þegar hún var lögst fyrir og hafði tekið
töflurnar inn, sem læknirinn hafði geflð
henni, lét hann ofan í töskur sínar og bjóst
til farar. — Góða nótt, frú. Ég kem aftur á
morgun. — Hann þrýsti útréttar hendur
hennar hughreystandi.
— Og verið þér nú ekki óróleg, þótt
taugarnar hafl gert yður svolítinn grikk í
kvöld. Svona nokkuð kemur stundum
fýrir þegar válegir atburðir gerast. Þér get-
ið verið allsendis róleg. Þetta kemur varla
fýrir aftur, því að það er engin ástæða til að
óttast lengur um líðan Önnu litlu.
— Þakka yður fýrir, læknir. Hún brosti
fjarrænu brosi, meðan svefhinn var að yfir-
buga hana, hamingjusama og fullkomlega
rólega.
SÚ LÉTTARI
ík r \ t\ f. Á\íc AJí fr í) / /á'at oaa/s 5iöA/L TfLHi OFaJA FREK- du. Fí/)Ti CtTTEKT CELT ftF- MjÚKft KUEM- 1/ftRC.i í A Ék
Mflr- fi'ftK 1
WGA DREiF/ ' > ./
stía/g, SOKC. ÍT'i A/'j'ÍjLU t/ ./ Z > ./
/ 0 DÆúAsr GRÖM STOFIÁ SóhÐLi BÖRMiÁ T KCl
Goux AP AusrRí V SftTA- þyKKT <y TOaJaJ HftTfuiL
l/ÉÁA RuatA * > \f ~ t f T/fEG5 KayR H'QT'iÐ MuaiAJ/i >
OR&A Tv'iflL-J. <— . / > > KwBM- AJ Pi PaJ SufJD >
o P AJhRR- A/l 1 3 > y /M/9L/W ífíAAiT- STftFiK. V
LAÖÖ5 ík$x. > EFsJÍ \JERK- SM/6ÖR 5* >
/ L> UODÍÐ ó'R 9.
3.TBL. 1989 VIKAN 51