Vikan - 09.02.1989, Blaðsíða 66
SEINNI HLUTI:
Þannig er vatnsberi
Vatnsberinn og
hjónabandið
Hjónabandið er ekki auðvelt
fyrir vatnsberann, en hann þarf
þó íremur en nokkur annar á
skilningsríkum félaga að halda
sem skilur að hann vill fá að
vera sjálfstæður og vill ekki
láta eiga sig. Makinn verður að
skilja að vatnsberinn er öfga-
fullur og óútreiknanlegur og
verður að kunna á honum
lagið. Og hvað sem öllu öðru
líður verður makinn að sýna
skilning. Þegar vatnsberinn er
kominn í hjónaband lítur hann
á sambandið alvarlegum aug-
um og oft mun alvarlegar en
flestir aðrir.
Tilfinningalegar
efasemdir
Vatnsberinn er fordómalaus
en þó ekki í þess orðs venju-
legri merkingu og hann lætur
sem vind um eyrun þjóta það
sem aðrir gera. Hann hefur
einfaldlega gert upp við sig
hvað og hvernig hann vill
ffamkvæma hlutina og honum
stendur á sama hvernig aðrir
fara að. Honum er sama um
allt umtal og hefúr ósköp lít-
inn áhuga á að heyra sögur af
nágrönnunum.
Vatnsberinn finnur sig van-
máttugan á tilfmningasviðinu
en geri hann sér ljóst að hann
er jafhvel viðkvæmari en al-
mennt gerist um vatnsbera
verður það til þess að hann fær
skömm á sjálfúm sér og reynir
að breyta þessu. Hann má alls
ekki gráta og byggir um sig
múr til að koma í veg fyrir
slíkt. Vatnsberi sem grætur er
hlægilegur að hans mati.
Sjálfstæðisþörfin
Vatnsberinn verður að fá að
vera fúllkomlega sjálfstæður
og það gengur stundum svo
langt að hann á á hættu að
verða einmana. Sé vatnsberinn
ógiftur vill hann fremur búa í
lítilli íbúð, einn sér, heldur en
deila íbúð með öðrum. Neyð-
ist hann þó þrátt fyrir allt til
þess að búa með öðrum á
hann ekki auðvelt með að
blanda við þá geði. Afleiðingin
er sú að hann kemur því svo
fyrir að hann fær að vera einn í
eldhúsinu og gætir þess að fara
ekki þangað fyrr en allir hafa
lokið sér þar af. Vatnsberanum
líður best þegar hann er einn
og hann velur að fara einför-
um. Þrátt fyrir það geta aðrir
treyst honum og þurfa ekki að
biðja hann um hjálp, hann
finnur á sér þegar einhver er
hjálparþurfi.
örgeðja á stundum
Það sérkennilegasta við
vatnsberann er hvað hann er
sérvitur. Hann getur þó verið
svolítið hrífandi og stundum
skemmtilegur þótt örgeðja sé.
Hann er af og til svolítið öfga-
fúllur og skrýtinn svo við sjálft
liggur að hann sé eitthvað
óeðlilegur. Af þessu leiðir að
erfitt getur verið að eiga við
hann. Hann er alveg óútreikn-
anlegur. Það er aldrei hægt að
vita hvemig hann bregst við
hvort heldur er atburðum eða
ákvörðunum, sem aðrir hafa
tekið. Stundum er hann sam-
mála eða þá skoðanir hans em
svo fjarri því sem venjulegt má
teljast að áheyrendurnir em
fúrðu lostnir og vita hreint
ekki hvar þeir hafa hann. Af
þessu má draga þá ályktun að
hann geri sér grein fyrir sér-
visku sinni og sé jafnvel að
reyna að halda aftur af henni.
En það er síður en svo auðvelt,
því hann hefur gaman af þessu
innst inni, ekki síst þegar hann
hefur gengið algjörlega fram af
þeim sem nærstaddir em.
STJÖRNUSPÁIN
Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
Eitthvað, sem þú hefur
kviðið fyrir alllengi, dynur nú yfir
þig. Eigi að síður þarftu ekki að
kvarta, því þú hafðir möguleika
til að afstýra þessu. Þú færð afar
erfitt verkefni til úrlausnar en öll-
um til furðu, og þér sjálfum mest,
ferst þér það prýðisvel.
Nautið
20. apríl - 20. maí
Þú hefur samviskubit
vegna einhverrar ógoldinnar
skuldar. Þú ættir að keppa að því
að losa þig við hana. Þér hefur
borist bréf eða smágjöf sem hef-
ur komið þér í nokkurn vanda.
Heillatölur þessa viku eru 6, 14
og 37.
Krabbinn
22. júní - 22. júlí
Þú verður gagnrýndur að
ósekju fyrir eitthvað, sem þú hef-
ur framkvæmt í algjöru granda-
leysi. Til allrar hamingju verða
endalokin þér í hag. Síðari part
vikunnar færðu gest sem þér er
fremur hvimieiður.
Ljónið
23. júlí - 22. ágúst
Margir meðlimir þessa
merkis munu verða einstaklega
næmir fyrir umgangspestum og
liggja af þeim sökum ef til vill
nokkra daga rúmfastir. Fyrir þá
sem verða heilsuhraustir og í
fullu fjöri er laugardagurinn eink-
ar varasamur.
Vogin
23. sept. - 23. okt.
Þú verður mjög bjartsýnn
og lífsglaður þessa viku, enda
munu vonir þínar í sambandi við
atvinnu þína rætast. Ástvinur
þinn virðist nokkuð erfiður í
skapi og verðurðu að sýna hon-
um meiri tillitssemi og þolinmæði
en endranær.
Sporðdrekinn
24. okt. - 21. nóv.
Þér hættir til að beita
sjálfan þig of harðri gagnrýni,
þannig að þú verður kjarklaus og
hlédrægur. Þú færð óvænta og
gleðilega heimsókn gamals fé-
laga. Þér berst tilboð, sem þú
ættir að íhuga nákvæmlega.
, Tvíburarnir
21. maí - 21. júní
Það steðja að þér alls
kyns freistingar en yfirleitt muntu
maður til að standast þær -
nema eina. Það ber dálítið á tor-
tryggni hjá þér í garð félaga
þinna, en slíkt hugarfar bætir
hag þinn síst af öllu.
tMeyjan
24. ágúst - 23. sept.
Það hefur borið alltof
mikið á eigingirni í fari þínu
undanfarið, en vegna utanað-
komandi áhrifa breytist hugarfar
þitt og framkoma til batnaðar.
Vinur þinn, eldri maður, efnir heit
sitt, sem betur fer fyrir þig.
Bogmaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Vikan verður mjög
skemmtileg. Þú hefur nóg að
starfa og nógan félagsskap. Vin-
ur þinn dvelst fjarri þér um stund
og eftirlætur þér skemmtilegan
hlut til varðveislu. Fyrir ástfangna
skortir ekkert á rómantíkina.
Steingeitin
22. des. - 19. janúar
Þú munt eiga margar
ánægjustundir við nýtt áhuga-
mál. Náinn ættingi þinn kemur
þér á óvart með framkomu sinni
og gerðum. Þú ættir ekki að
leggja í neitt sem hefur í för með
sér fjárútlát í þessari viku.
Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar
Þessi vika verður nokkuð
með öðrum hætti en þú hafðir
gert ráð fyrir, en síst óskemmti-
legri. Þú hefur verið í mikilli
óvissu um nokkurn tíma, en nú
mjög bráðlega finnurðu lausnina
á þessu máli. Heillatölur eru 4,11
og 36.
Fiskarnir
19. febrúar - 20. mars
Gleymska þín á eftir að
koma sér nokkuð illa fyrir þig, en
þú veist að þú getur gert betur.
Varastu dökkhærðan mann sem
talar um viðskipti. Dveldu sem
mest með fjölskyldu þinni og
sinntu áhugamálum, sem þú átt
heimavið.
66 VIKAN 3. TBL. 1989