Vikan - 09.03.1989, Blaðsíða 16
DULFRÆÐI
Ljósmynd af orkustreymi frá lofnm huglæknis þegar hann er að heila. Myndin
er tekin með svokallaðri kiirlian ljósmyndaaðferð, sem gerir kleift að greina
orkulikama mannsins og allra annarra lífvera. Á kiirlian ljósmynd er hægt að
greina likamlega og andlega heilsu mannsins áður en sjálf einkennin greinast
í líkamanum.
og fegurð eða skort á hvoru tveggja. Þegar
við breytum djúpt undirliggjandi hugar-
farsafstöðu breytist líkamlegt sjálf okkar
sem því nemur. Líkaminn er í sífelldri
breytingu, endurnýjun og endurbyggingu
á hverju augnabliki og hann hefur enga
aðra leið til að fara eftir en þá sem hugur-
inn leggur fyrir hann.
Því meir sem við ferum vitundina í
samstillingu við æðstu andlega birtingu
hugans, því meir mun líkaminn tjá ein-
staklingsbundna fullkomnun okkar.
Ef við þjáumst líkamlega á einhvern hátt
getum við þvr dregið þá ályktun að þján-
ingarnar séu skilaboð um að eitthvað sé að
innra með okkur sem þörf sé á að líta á,
kannast við og breyta.
Oft eru skilaboð sjúkdóma á þá leið að
nú sé tími kominn til að hægja á sér og
verja nokkrum tíma til að vera í sambandi
við innra sjálfið til endurnæringar og
hressingar.
Heilunin kemur alltaf innan ffá. Þegar
við leyfúm okkur að komast í kyrrlátt
innra samband reglulega þuríúm við ekki
að veikjast til að innra sjálfið fái athygli
okkar. Stundum erum við fær um að anna
þessu heilunarferli sjálf en stundum þurf-
um við aðstoð ráðgjafa, vinar eða læknis
til halds og trausts.
Skapandi sefjunarmáttur ímyndunarafls-
ins kemur að kjarna vandamálsins — þinnar
eigin sjálfsímyndar og hugarfarsafstöðu.
Þekkt er að ímyndunaraflið sé svo sterkt
að sjúklingar hafa læknast af sykurpillum,
hafi þeim áður verið talin trú um að þær
séu óbrigðult læknislyf! Heilunin byggist á
því að komast í róandi og kyrrlátt sfök-
unarástand. Síðan sér maður og skynjar í
huganum sjúkdómana læknaða og sig sjálf-
an geislandi af heilbrigði og hreysti.
Huglækningar
Sestu eða leggstu niður, andaðu djúpt
niður í kviðinn, hægt og reglulega og
segðu hverjum líkamshluta fyrir sig að
slaka á og losa um alla spennu; tám, fótum,
16 VIKAN 5. TBL. 1989