Vikan


Vikan - 09.03.1989, Page 19

Vikan - 09.03.1989, Page 19
DULFRÆÐI Frh. af bls. 17 snyrtisérffæðings og árangurinn verður eftir því. Til dæmis þegar þú ferð í bað eða sturtu skaltu ímynda þér að heita vatnið hafl ró- andi, mildandi og heilandi áhrif á þig. Sjáðu fyrir þér sérhverja meinsemd bráðna burt eða skolast af þér og þú stand- ir eftir skínandi tær og hrein/n ytra sem innra. Notir þú líkamsolíu skaltu nudda húð þína ástúðlega og staðhæfa í huganum að húð þín verði stöðugt mýkri og fallegri. Þegar þú þværð hárið einbeittu þér að at- höfhinni og staðhæfðu að hárið verði þykkara, meira glansandi og heilbrigðara en nokkru sinni fyr. Þegar þú burstar tenn- urnar staðhæfðu að þær verði sterkari, heilbrigðari og fallegri og svo ffamvegis. Matarsiðir og venjur Margt fólk hefur neikvæða afstöðu til matar. Við óttumst oft að maturinn sé fit- andi og heilsuspillandi. Samt höfúm við ár- áttu til að eta einmitt þann mat sem við óttumst og sköpum jafnffamt innri tog- streitu og spennu og köflum að endingu ffam þau áhrif sem við óttumst — fitu og veikindi. Einnig er margt fólk ekki með hugann við matinn þegar það er að borða. Við erum svo önnum kafin við að tala og hugsa um aðra hluti að okkur bregst að stilla inn á gómsætt bragðið og næringargildi feð- unnar. Fæðutaka er eiginlega töffaathöfn þar sem mismunandi orkustraumar alheimsins umbreytast í líkamsorku og gerð. Það sem við hugsum á meðan er hluti þessarar „gullgerðarlistar". Hér er helgiborðsiðahald sem þú getur gert a.m.k. einu sinni á dag án tillits til þess sem þú ert að borða: Sestu niður með matinn fyrir ffaman þig. Lokaðu augunum smástund og slak- aðu á, andaðu djúpt. Þakkaðu í hljóði for- sjóninni fyrir fæðuna og öllum þeim ver- um sem sáu fyrir henni, að meðtöldum plöntunum og dýrunum og fólkinu sem ræktaði fæðuna og útbjó hana. Opnaðu augun og virtu matinn gaum- gæfilega fyrir þér. Finndu hvernig hann lyktar. Á meðan þú matast skaltu tala við sjálfa/n þig í huganum og segðu sjálfum/ sjálfri þér að þessari fæðu hafi verið um- breytt í lífsorku til þinna nota. Segðu sjálf- um/sjálfri þér að líkami þinn noti allt sem hann þarfnast og haftii auðveldlega því sem hann noti ekki. Sjáðu þig verða heil- brigðari og fallegri við hvað sem þú borðar. Gerðu þetta án tillits til hvaða skoðanir þú hefúr áður haft á gæðum fæð- unnar sem þú borðar. Borðaðu hægt og dokaðu við smástund eftir að þú hefur lokið máltíðinni til að njóta vellíðaninnar sem kemur þegar mag- inn er sæll og ánægður. Því oftar sem þú gerir þessa athöfn því betur nýtur þú matarins ásamt bættri heilsu og útliti. Hér er önnur helgisiðaathöfh sem er enn einfaldari. Áður en þú ferð að sofa, þegar þú vaknar eða hvenær sem þú ert þyrst/ur skaltu fá þér glas af vatni. Sestu niður, slakaðu á og drekktu það hægt. Þeg- ar þú drekkur skaltu segja sjálfum/sjálfri þér að þetta vatn sé ódáinsveig (heilsu- drykkur) og uppspretta eilífrar æsku. ímyndaðu þér að hann þvoi burt öll óhreinindi og feri þér orku, fjör, fegurð og heilsu. Offita Hér eru ráðleggingar til þeirra sem eiga við offituvandamál að stríða: Slakaðu á. Finndu og ímyndaðu þér alla þá kosti fýrir því að vera grannur/grönn og spengileg/ ur. Notaðu öll skynfæri eins og: a) Sjón og heyrn: Finndu mynd af þér eins og þú varst upp á þitt besta eða af ein- hverjum öðrum sem þú vilt líkjast. Sjáðu þig fýrir þér granna/n og spengilega/n eins og á myndinni. Sjáðu síðan og heyrðu aðra dást að þér og hrósa þér fýrir hve þú lítur vel út. b) Snerting: ímyndaðu þér þegar þú ert orðin/n grönn/grannur hversu sléttir og stinnir handleggir þínir, læri og magi munu vera. c) Bragð og lykt: Sjá æfinguna um mat- arvenjur hér að ofan. d) Tilfinningar. Finndu vellíðanina hríslast um þig þegar þú ert grönn/grann- ur og hvernig lifhar yfir allri tilverunni. Finndu fögnuðinn og sjálfstraustið sem geislar frá þér grannri/grönnm og vel 1 byggðri/byggðum. Finndu hvað þú ert létt/ur í spori og liðug/ur, fara í fötin sem eru orðin of þröng á þig, fara í sundföt í laugunum o.s.frv. Að sjálfsögðu er góð hreyfing og frískt loft eitt það mikilvægasta af öllu. Það er betra að léttast hægt og sígandi heldur en missa mörg kíló á einni viku, því líkaminn þarf að venjast breyttum aðstæðum. Þér er líka miklu hættara við að þyngjast aftur ef þú léttist of ört! Hér eru nokkrar staðhæfingar sem eru góðar fyrir heilsu og fegurð: ■ Með hverjum degi geisla ég frá mér meiri fegurð og frískleika. ■ Allt sem ég borða færir mér aukna heilsu, fegurð og aðlaðandi spengileika. ■ Éger góð/ur við líkama minn og lík- ami minn er góður við mig. ■ Ég verð sterkari og öflugri með hverj- um degi. ■ Ég mun hér eftir borða aðeins það sem mér er jyrir bestu hverju sinni. ■ Pví meir sem ég elska og virði migþví fegurri verð ég. ■ Ég er ómótstœðilega aðlaðandi fyrir menn (eða konur). Heimildir: 1) Gawain, Shakti: Creative Visualization, Millvalley California, USA, 1983. 2) Silva, José & Mile Philip: Silva Mind Control, NY, NY, USA, 1978. 3) Ostrander, S. & Schroeder, L.: Superlearning, GB, 1979. Teikningamar sýna samsvömn á staðsetningu sálrænu orkustöðvanna í líkam- anum annars vegar og innkirtlakerfinu hins vegar. 1) Krónuorkustöð (sahasrara) og heilaköngull (pineal) 2) Ennisorkustöð (ajina) og heiladingull (pituitary) 3) Hálsorkustöð (vishuddha) og skjaldkirtill (thyroid) / kalkkirtill (parathyroid) 4) Hjartaorkustöð (anahata) og hóstarkirtill (thymus) 5) Magagróforkustöð (manipura) og nýrnahettur (adrenals) 6) Kviðarorkustöð (svadhisthan) og bris (pancreas) 7) Kynorkustöð (muladhara) og kynkirtlar - eggleg/eistu (ovaries, testes) Samband orkustöðva og kirtla 5. TBL.1989 VIKAN 19

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.