Vikan - 09.03.1989, Qupperneq 40
Svanhvít Valgeirsdóttir hálfnuð við að farða „rómversku styttuna" sína, sem færði henni
þriðju verðlaun.
á sviðið að nýju, en þá var
dómnefhdin tilbúin að til-
kynna úrslit keppninnar. Dóm-
nefhdin var skipuð þrem
snyrtifræðingum, þeim Ólöfú
Ingólfsdóttur, Ástu Hannes-
dóttur ogjóni Karli Helgasyni,
eina karlmanninum í Félagi
snyrtifræðinga.
Dómnefhdin hafði fylgst
vandlega með förðuninni frá
byrjun til enda og gaf einkunn-
ir með tilliti til hugmyndar,
hæfni og heildarmyndar. Gefa
þurfti stig fyrir útfærsfu, lita-
samsetningu og hversu vel
hinu fýrirfram ákveðna þema
væri fýlgt. Þá var fylgst með
vandvirkni keppenda, starfs-
hæfni og snyrtimennsku. Og
ekki skipti minna máli að
heildarmyndin væri í lagi, bún-
ingurinn, andlitsförðunin ann-
ars vegar og líkamsförðunin
hins vegar og svo vitaskuld
listræn heild verksins.
Þegar stigin fyrir hvert og
eitt atriði höfðu verið lögð
saman kom í ljós að í flokki
fagmanna hafði Lína Rut Karls-
dóttir borið sigur úr býtum, en
hún hafði málið eina karl-
manninn. Afar íburðarmikið
verk sem hún skilaði af sér
undir heitinu Himinn ogjörð.
I.ína Rut stundaði nám í mynd-
listarskóla í Englandi og víðar
auk þess sem hún hefur lært
förðun.
í öðru sæti hafnaði Jóna
Hallgrímsdóttir, sem nú starfar
á snyrtistofu Jónínu við Lauga-
veg, en hún hlaut starfsþjáffun
á hárgreiðslu- og snyrtistof-
unni Kristu. Jóna farðaði — og
Jóna Hallgrímsdóttir málar „undirfögru múmíuná'. Fyrir
þetta verk hlaut hún önnur verðlaun.
dagskrá á sviði og kynningu á
nýjungum á snyrtivörumark-
aðinum í hliðarsal. Meðal dag-
skráratriða var keppni í hug-
myndaförðun og tóku þátt í
henni sjö snyrtifræðingar og
átta nemar í faginu. Annars
vegar kepptu nemarnir sín á
milli og hins vegar fag-
mennirnir og var síðarnefnda
hópnum falið að vinna út frá
ákveðnu þema, „undrum ver-
aldar".
Margþætt
verðlaunareglugerð
Förðunin hófst klukkan eitt
eftir hádegi. Það var svo ekki
fýrr en um klukkan fimm sem
módelin voru tilbúin að ganga
ffarn á sviðið. Klukkutíma
síðar voru þau svo kölluð fram
vafði að hluta — unga stúlku og
gaf verkinu nafnið Undurfagra
múmían.
í þriðja sæti varð svo Svan-
hvít Valgeirsdóttir. Hún lærði
förðun í Englandi, en starfar
nú að förðun hjá Þjóðfeikhús-
inu. Hennar módel var einfald-
lega hvítt frá hvirfli til ilja enda
leikurinn til þess gerður að
módelið liti út eins og róm-
versk stytta. Þeim sem komu
þar að sem verið var að farða
módelin datt mörgum ekki
annað í hug í fyrstu en að
þarna á gólfinu stæði einfald-
lega stytta í fúllri líkamsstærð.
Sigurvegararnir í keppni
nema voru þær Anna María
Garðarsdóttir og Bára Björns-
dóttir með Kisulóru. í öðru
sæti voru Haustdagar Jónínu
Þorbergsdóttur og Maríu Þor-
bjarnardóttur og í þriðja sæti
Skógargyða Hjördísar Krist-
insdóttur.
Nám í förðun
Hafi einhverjir látið sér
detta í hug að förðun sé nokk-
uð sem menn gera að vinnu
sinni eftir það eitt að kaupa
slatta af farða og nokkra pensla
standa þeir í miklum misskiln-
ingi. Snyrtiffæðinámið spannar
25 námsgreinar og ekki er
óalgengt að þegar námi er lok-
ið hér á landi sé farið til ffam-
haldsnáms í faginu erlendis.
Nám í snyrtifræði fer nú
fram á snyrtibraut Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti, sem til-
heyrir heilbrigðissviði skólans.
Eins og allt annað iðnnám til-
heyrir það sveina- og meistar-
akerfi iðnffæðslulöggjafarinn-
ar. Nám til sveinsprófs er fimm
annir í skóla og 78 vikur í
starfsþjálfún á snyrtistofú. Að
loknu sveinsprófi þarf að vinna
tvö ár á snyrtistofú undir
handleiðslu meistara til að öðl-
ast meistararéttindi.
Fyrstu tvær annirnar í nám-
inu eru eingöngu bóklegar en
síðan bætist við verklegt og
fagbóklegt nám á síðustu þrem
önnum. Tveir hópar eru við
nám í einu, tólf nemendur í
hvorum hópi.
Talsverð ásókn hefur verið í
að komast til náms í snyrti-
fræði á undanförnum árum og
eru förðunarsnillingar með
framhaldsmenntun erlendis
frá orðnir allmargir. Það ætti
því að vera hægðarleikur fyrir
þig að verða þér úti um „fanta-
síuförðun" ef þú vilt vekja al-
mennilega athygli á næstu árs-
hátíð!
5HYRTIIK5
38 VIKAN 5. TBL. 1989