Vikan - 09.03.1989, Síða 46
Viðbótarhár
sem situr fast
TEXTI: BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR
MYNDIR: GUNNLAUGUR RÖGNVALDSSON
í Vikunni hefur nokkrum sinnum
verið sagt frá hinum ýmsu hjálpar-
meðulum sem eiga að endurvekja og
auka hárvöxt SÉ HÁRRÓTIN EKKI
DAUÐ. Þegar ekkert dugar þá er ekki
nema um tvennt að ræða; að sætta sig
við hármissinn eða fá sér viðbótarhár.
Nýverið voru á ferðinni í Reykjavík
tveir Norðmenn, Metta Mellbostad og
Morten Holseth, sem voru að kynna það
sem þau vilja kalla viðbótarhár. Hár þetta
er unnið hjá Apollo fyrirtækinu í Banda-
ríkjunum, sem er eitt stærsta fyrirtækið
þar sem sérhæfir sig í þannig framleiðslu.
Þar hefiar fyrirtækið starfað í um 15 ár, en
útibú fyrir Apollo í Evrópu hefur verið í
Noregi í 4 ár. Á íslandi hefur Apollo hár
verið fáanlegt í um 2 ár en umboðsmaður
hér er Eiríkur Þorsteinsson í Greifanum á
Hringbraut i 19.
Hefur hár frá Apollo eitthvað ffam yfir
aðra sams konar vöru? spyrjum við Mettu
og Morten, en þau starfa hjá norska um-
boðsaðilanum og ferðast víða til að kynna
vöruna. Metta er hárskeri en Morten
módel. ,Jú, það er betra vegna þess að það
er fast á höfðinu og hægt að vera með það
allan sólarhringinn án þess að það haggist,
jafnvel þótt farið sé í sund, leikfimi eða
annað.“
Fólk horfði á höfuðið á mér
Morten er 22 ára og segist hafa farið að
missa hárið f8 ára. Hann sagði að það
hefði haft mikil áhrif á sálarlífið, þó hvorki
hann né flestir aðrir sem missa hárið vilji
viðurkenna slíkt. „Ég hugsaði varla um
annað allan daginn en hárið sem ég var
búinn að missa og ég tók eftir því að þegar
fólk talaði við mig þá horfði það ekki leng-
ur í augun á mér heldur á höfúðið. Ég
missti sjálfstraustið og leið ekki vel. Áður
en ég fékk hár frá Apollo hafði ég skoðað
allt sem fékkst á markaðnum, en leist síðan
best á Apollo af því það situr fast og engin
hætta á að einhver gárunginn rífi það af
manni. Nú man ég sjaldnast eftir því að ég
hafi í raun minna hár en flestir, enda sér
það enginn og sjálfstraustið er komið
aftur.“
Metta segir okkur að viðbótarhárið sé
ýmist algjörlega úr mannshári, blandað til
helminga með gervihári eða þá algjörlega
úr gervihári. Hver og einn kemur til um-
boðsmannsins og þar er höfúðið mælt og
litaprufa tekin úr hárinu sem fyrir er. Þetta
Morten, sem er 22 ára, var ekki nema 18 ára þegar hann fór að missa hárið og um leið
missti hann sjálfstraustið, sem hann segir þó að hafi komið aftur þegar hann fékk sér
viðbótarhár ffá Apollo. Á myndinni er Metta að setja það á hann, en hún er einnig
með viðbót við eigið hár sem gefur því meiri fyllingu.
er síðan sent til Bandaríkjanna þar sem
það tekur um 6 vikur að útbúa viðbótar-
hár fyrir hvern og einn. Konur geta einnig
misst hárið og fyrir þær er einnig hægt að
útbúa viðbótarhár sem kallast Diamond
Hair hjá Apollo. Þær ákveða þá fyrirfram
hvernig hárgreiðslu þær ætla að vera með
(sítt hár, stutt o.s.frv.) og svo er hárið fest
á mjög gisinn hárbotn sem lagður er yfir
þeirra eigið hár sem síðan er dregið í
gegnum götin á hárbotninum þannig að
hárið sem fyrir er og viðbótarhárið bland-
ast sv» vel að ekki er nokkur leið að sjá
muninn. Konur geta auðvitað einnig feng-
ið heila hárkollu og hvers konar viðbót-
arhár sem þær óska.
Á karlmenn er viðbótarhárið ýmist
saumað fast við hárið sem fyrir er eða að
smellur eru ofnar í hárið á höfðinu, síðan
eru smellur á viðbótarhárinu og þessu síð-
an smellt saman. Hjá Eiríki er þannig þjón-
usta að hægt er að koma með Apollo hárið
til hans í sérstaka gufumeðferð sem hressir
það við og gerir það gljáameira og er hæfi-
legt að gera það um leið og eigið hár — eða
Apollohárið — er klippt, svona á 6-8 vikna
fresti. Morten vildi að lokum segja við ís-
lenska jafnaldra sína, og aðra, að það væri
ekkert til að skammast sín fyrir að vera
með svona aukahár, því ef við hugsum um
það þá erum við alltaf að bæta einhverju á
okkur til að gera útlitið fallegra.
HÁR
44 VIKAN 5. TBL. 1989