Vikan - 09.03.1989, Qupperneq 56
KYMLIFIÐ
Góður elskhugi
Ef hann vekur strax hjá þér góðar kenndir, þá á hann
vœntanlega eftir að verða góður eiginmaður og elskhugi
Kynlífsfræðingar voru fsiending-
um vart kunnir nema af afspurn
þar til á síðasta ári þegar Jóna
Ingibjörg Jónsdóttir, fyrsti kynlífsffæð-
ingurinn okkar, tók til starfa. Eins og flestir
vita vöktu námskeið hennar mikið fjaðra-
foki í fyrstu og í viðtali í 27. tbl. Vikunnar
1988 kynntust lesendur viðhorfum henn-
ar og henni sjálfri nánar. Jóna Ingibjörg
nam fræðin í Bandaríkjunum en þar hafa
kynlífsfræðingar starfað í mörg ár og þykja
ekkert tiltökumál lengur. Einn sá fyrsti þar
í landi var Helen Singer Kaplan, en hún
hefur starfað við fagið síðustu tuttugu ár
og hefúr án efa kynnst flest öllu sem við-
kemur kynlífshegðun manna. Þar sem
þetta þykir alltaf forvitnilegt efhi fannst
okkur ekki úr vegi að þýða svör hennar
við nokkrum spurningum sem fyrir hana
voru lagðar í erlendu blaði, enda kemur
þar ffam að viðhorf og umræða um kynlíf
er ekki alveg sú sama og hér á landi þannig
að kannski má læra eitthvað eða sjá hvað
ber að forðast.
Starf Helenar hefúr verið að aðgreina
kynlífshegðun manna í löngunar-, ástríðu-
og fullnægjustig og er aðgreining hennar
höfð til viðmiðunar nú þegar kynlífsvanda-
mál eru skilgreind. Hún hefúr gefið út
margar fræðibækur en sú nýjasta, The Real
Truth about Womert and Aids (Sann-
leikurinn um konur og eyðni), er sú fýrsta
sem hún ætlar hinum almenna lesanda. Dr.
Kaplan hefur samt sem áður tíma til að
reka eigin stofú, sem gengur afar vel, auk
þess sem hún er móðir þriggja barna - og
eru tvö þeirra læknar. Viðtaíið fer ffam í
íbúð hennar í New York þar sem sér yfir
Central Park. íbúðin er full af dýrmætum
aldamótahúsgögnum frá Vín, sem er feð-
ingarstaður hennar.
— Er kynlífsbyltingin yflrstaðin?
„Fólk er hætt að sofa hjá hverjum sem
er, en kynlífsbyltingin átti aldrei að þýða
lauslæti," svarar Kaplan. „Hún þýddi að við
gætum losað okkur við sektarkenndina og
skömmina sem fylgja áttu lönguninni til
kynlífs. Þeim ávinningi höfúm við ekki
glatað.“
- Vegna eyðni og íhaldssemi
undanfarið er komið í tísku að halda
sig við sinn maka. Hefur þetta kannki
ekki reynst eins vel og ætla mætti
fyrir öll hjón?
„Þetta hefur komið sér vel fýrir hjón
sem hefðu kannski skilið án þess að hafa í
raun ástæðu til. Áður fýrr var svo auðvelt
að sofa hjá öðrum að mörg ágætis hjóna-
bönd fóru út um þúfur. Slíkt gerist ekki
svo auðveldlega lengur."
— Hvað er það sem fær sambönd til
að haldast, eða slitna?
„Því er auðvelt að svara; að hæfa hvort
öðru. Til dæmis ef báðir aðilar sinna starfi
sínu og frama af alúð, þá skilja þeir auð-
veldlega hvers vegna hinn er ekki til við-
tals um tíma vegna starfs síns og hæfa því
hvort öðru. Vilji annar aftur á móti að þau
tali saman og séu náin alla tíð, en hinn þarf
dálítinn tíma með sjálfúm sér og finnst
Helen Singer Kaplan var á
meðal fyrstu kynlífsfræð-
inga Bandaríkjanna. Hún
hefur unnið að því að
aðgreina kynlífshegðun
manna í löngunar-, ástríðu-
og fullnægingarstig og er
aðgreining hennar höfð til
viðmiðunar nú, þegar
kynlífsvandamál eru
skilgreind.
hinn þá alltaf vera að troða sér og sínu að,
þá hæfa þau illa hvort öðru.“
- Hversu mikilvægt er gott kynlíf í
hamingjusömu sambandi eða hjóna-
bandi?
„Kynlífið er ekki það sem skiptir mestu
máli; heldur hvort kynlífslöngun beggja sé
álíka. Ég hef hitt fólk sem er í mjög ham-
ingjusömu sambandi án þess að um nokk-
urt kynlíf sé að ræða. En í flestum tilfellum
þar sem annar reynir að koma sér undan
kynlífi eða á við annars konar kynlífs-
vanda að glíma, þá verður ástandið vana-
lega slæmt. Annar aðilinn dregur sig í hlé
og hinum finnst honum hafhað.
- Hvað er það auðveldasta eða aug-
ljósasta sem fólk getur gert, en gerir
oft ekki, til að gera kynlífið ánægju-
legra fyrir hinn aðilann?
,Áð skilja og vita af því sem hann langar
að gera. Þú getur aldrei orðið góður elsk-
andi ef þú skilur ekki óskir maka þíns;
þeim þarf að taka og síðan uppfýlla. Annað
atriði er að maður sjálfúr verður að vera
afslappaður gagnvart kynlífi. Enginn hefúr
ánægju af því að elska manneskju sem er
ein taugaflækja."
- Tala karlmenn minna um kynlíf
sitt en konur? Ef það er svo, hver er þá
ástæðan?
„Þeir eru ekkert feimnir við að gorta af
ímynduðum afrekum við félaga sína, en
sem hópur eru þeir ekki jafn viljugir að
ræða kynlíf á jafh opinskáan hátt og konur.
Sín á milli tala konur mikið um kynlíf í
smáatriðum." (Á þetta einnig við um ís-
Ienskar konur?)
- Konur nú hafa flestar kynnst
náið fleiri en einum karlmanni. Gerir
þetta karlmenn óstyrka?
„Stundum. Vegna þess að maður sem er
óöruggur með sjálfan sig fer að gera sér
grillur varðandi fyrri elskhuga konunnar
og velta sér upp úr hlutum eins og: ’Ég er
viss um að hún hefur séð hann stærri en á
mér’ eða ’Ég er viss um að hún hefúr sofið
hjá mönnum sem eru færari en ég og voru
betur vaxnir’. Hann heldur þá að konan sé
sífellt að bera hann saman við aðra menn,
en vanalega er þetta aðeins ímyndun
hans.“
- Eitt af stærstu vandamálunum er
að fólk virðist ekki geta talað hreint út
um hlutina sín á milli. Er til einhver
lausn á þessu samskiptavandamáli?
„Fólk verður að taka á honum stóra sín-
um og taka því að þetta verði óþægilegt —
gera sér grein fýrir því að jafnvel þótt hinn
aðilinn reiðist þá muni hann komast yfir
það. Margir leita til ráðgjafa til að brjóta
ísinn. Skortur á tjáskiptum þarf ekki að
orsaka kynlífsvandamál, en hann er örugg-
lega ekki til að bæta það.“
— Hefúrðu orðið vör við að pör
kvarti um kynlífsleiða?
„Við höfum orðið vör við 40% aukn-
ingu á þess konar kvörtunum hjá fólki seffl
hefúr verið gift í 12 ár eða lengur. Það sem
vanalega er að er að fólk byrgir reiði inni,
54 VIKAN 5. TBL. 1989