Vikan - 09.03.1989, Síða 58
FERÐAL0C5
Sumarfrí
TEXTI:
BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR
Nýverið sendi þýska
ferðamálaráðið ffá
sér bækling yfir sum-
arleyfisstaði í Þýskalandi, þar
sem jafnframt er sagt frá öllum
þeim mismunandi bústöðum
sem hægt er að búa í á meðan
á sumarleyfi stendur. íslend-
ingar hafa ferðast mjög mikið
um Þýskaland á undanförnum
árum og sumir fara þangað
jafnvel ár eftir ár, enda hafa
margar ferðaskrifstofur hér
verið duglegar að bjóða upp á
ferðir til Þýskalands þar sem
dvalið er í sumarhúsum eða
íbúðum — og það gera einnig
mörg stéttarfélög.
Og núna þegar flestir eru
farnir að huga að sumarfríinu
og eru að reyna að ákveða
hvert á að fara í ár, þá skaðar
I
Þýskalandi
alla vega ekki að hafa meiri
upplýsingar en minni og í
bæklingnum, sem kallast „Self-
catering in Germany ’89/’90“,
eru upplýsingar um verð,
hvernig á að panta og í raun
flest allt annað sem ferðalang-
ar þurfa að vita. Til að fá bækl-
inginn sendan heim þarf ein-
faldlega að skrifa til: Tysk
Turist-Central, Vesterbrogade
6 D, DK-1620 Kpbenhavn,
Danmark eða hringja í síma
01127095. Eirinig er sniðugt
að biðja í leiðinni um bækling-
inn „Fortcoming events 1989“
því þar er sagt frá öllu því
helsta sem er að gerast á árinu,
s.s. hátíðahöldum fýrir börnin,
tónleikum, listasýningum,
flugeldasýningum, vínsmökk-
un og öllu mögulegu öðru. Til
gamans birtum við hér sýnis-
horn úr sumarleyfisbæklingn-
Gönguferðir gegnum fallegt skóglendi tilheyra sumarfiríum í
Þýskalandi, enda göngustigar alls staðar og auðvelt að komast
leiðar sinnar.
56 VIKAN 5. TBL. 1989