Vikan


Vikan - 13.07.1989, Blaðsíða 16

Vikan - 13.07.1989, Blaðsíða 16
50MC5LI5T kannski væri betra að segja vinur og list- ráðgjafi — Eugenia Ratti, sópran sem stóð á hátindinum á árunum frá 1950 til 1970 og kennir nú söng og leiklist í Piacenza (og stundum einnig í Reykjavík). Á þeirri stundu fannst mér tæknileg lýs- ing á sönghæfileikum Jóhönnu aðeins til að dauðhreinsa þessa ánægjulegu upplifun þannig að ég hætti við allt slíkt. Síðan hafa gefist ófá tækifæri til slíkrar greiningar — á æflngum og tónleikum — eftir að hafa hlustað á hana syngja ljóðasöng, bænir og ástarsöngva. Hún er sópran sem hefur til að bera mikla tækni og frábæra blöndu af blæ- brigðum, styrk og stjórn, sem leyflr af- bragðs breytileika raddarinnar. Hún held- ur tónunum á fyrirmyndar hátt og á sama hátt blæbrigðum þeirra. Þeir eru teknir með glæsibrag, rólegum útblæstri, leikni og öryggi, þá lengdir og auknir að því marki sem hún óskar. Hennar sterkasta hlið er miðsvið raddarinnar en þar hljóm- ar hún best; er fyllri, ljúf og rík af yfirtón- um. Hæstu tónar hennar eru afar, afar fallegir, þó þeir séu kannski ekki sindr- andi, og þar er ekki að heyra minnsta vott um óöryggi. Meðal þeirra tóna sem ég heyrði þarna í fyrsta skiptið voru hinir hættulegu F-tónar í „Söng næturdrottning- arinnar" úr „Töfraflautunni" sem hún söng af áhyggjulausu sjálfstrausti. Notar hvert tækifæri til að koma fram og syngja Eftir að hafa hlustað á hana syngja fjöl- breytta tónlist kemur í ljós að hún nýtur sín mjög vel sem sópran í óperutónlist, en hún er afar fjölhæf og nýtur sín því einnig vel í ljóðasöngvum Norðurlanda og Þýska- lands og ítölskum söngvum, sem og trúar- legri tónlist. Ekki síst komu sönghæíileikar Jóhanna hélt fyrirlestra í nokkrum skól- um á ítahu í fyrravor til að æska Ítalíu mættl kynnast íslandi örlítið. Svo vel tókst til að áfram var haldið með fyrir- lestrana um haustið. Á tónleikum í Parma í tilefhi af 175 ára fæðingarafmæli Verdis. Þama er hún með hinum vel þekkta „27 klúbbi" sem svo nefnist eftir höfðatölu meðlimanna sem em jafnmargir og ópemr Verdis. hennar í ljós á tónleikum þar sem henni tókst einkar vel upp þó rödd hennar væri ekki upp á það besta í það skiptið vegna kvefs. Og ekki má gleyma túlkun hennar á Bach. Hann gerir sannarlega kröfúr til þess að röddinni sé beitt af þeirri ögun og ná- kvæmni að helst mætti líkja við að leikið sé á hljóðfæri. Slíkt er í sjálfu sér fjarri þeirri ástríðu og hlýju sem einkennir söng Jóhönnu. Jóhanna flytur okkur Bach á þann hátt sem ef til vill mætti kalla óná- kvæman samkvæmt strangasta skilningi, eigi að síður Bach sem er hárnákvæmur í hljómfalli og einurð, en síður að því er varðar hrein, öguð blæbrigði. Hún túlkar Bach á þann hátt að það minnir mig per- sónulega á rómantíska túlkun Furtwang- ler-tímabilsins. Ef til vill er þessi túlkun ekki í tísku sem stendur en hún er eigi að síður afar hrífandi og ástríðufúll. Silfurverðlaun Þó hæflleikarnir séu óneitanlega fyrir hendi hafa þeir einir ekki nægt til að koma henni auðveldlega að í heimi ítalskrar tón- listar, þar sem strangar verndarreglur eru í gildi — að vísu ekki að 'nauðsynjalausu en oft mjög óréttlátar í garð útlendinga. Til að yflrstíga þessar hindranir notaði Jó- hanna hvert tækifæri sem gafst til að syngja og koma sér á framfæri og sýndi þá að hún hafði mikla þolinmæði til að bera. Eftir að hafa dvalið mörgum sinnum á ítalíu, um lengri og skemmri tíma, tókst þessari óperusöngkonu frá Reykjavík loks að uppskera eins og hún hefur sáð, þegar hún hélt nokkra athyglisverða tónleika síð- astliðið haust, aðallega í Parma og ná- grenni. Þeir hlutu mjög góða dóma ffá áheyrendum jafht sem gagnrýnendum, blöðum og sjónvarpi. Hún hlaut silfúrverðlaun fyrir söng (Art of Belcanto) sem viðurkenningu fyrir hæfileika sína. Þetta var á tónleikum sem haldnir voru til heiðurs hinum mikla bari- tónsöngvara Rolando Panerai í bænum Ta- biano Terme. Á eftir fylgdi hátíð í Parma í tilefni af 175 ára fæðingarafmæli Guiseppe Verdi, þar sem hluti af hátíðahöldunum var skipulagður af frægum óperusöngvara- samtökum, „27 klúbbnum" (tónskáldið samdi einmitt 27 óperur), í samvinnu við hinn álíka fræga Corale Verdi. Næst lá leið- in affur til Tabiano Terme á erflða söng- skemmtun þar sem flutt var tónlist ffá Norðurlöndunum ásamt ítalskri óperu- tónlist. Þessi dagskrá var síðan endurflutt í bænum Brescia í Lombardy-héraði, á góð- gerðartónleikum til styrktar krabbameins- rannsóknum, einnig í miðaldakastala í Noceto og í „Ridotto" (litla salnum) í 19. aldar leikhúsinu Magnani í Fidenza. Við lok tvennra síðasttöldu tónleikanna lofuðu borgarstjórar beggja borganna söng Jó- hönnu og létu í ljós þá von — sem er einnig von fjölmargra annarra sem hlýtt hafa á söng hennar — að hún kæmi sem fyrst aftur. Persónutöfrarnir Ekki má gleyma að auk sönghæfileik- anna hefur Jóhanna hæfileikann til að hrífa fólk með sér, ekki aðeins í söngnum held- ur og vegna þessa opinskáa persónuleika hennar. Glaðværð hennar og bjartsýni eru smitandi; bros hennar og glampi í augum hverfa aðeins þegar hún hugsar um ástvini sína svo fjarri og þá sérstaklega barnabörn- in, Hauk Þór, Birgi Hrafn og Arnar Má. Persónutöffar hennar hafa aflað henni fjöl- margra og ólíkra vina. Það virðist óhugs- andi að ókunnugri manneskju á göngu um götur Piacenza sé heilsað hvarvetna af vin- um og kunningjum en sú er þó raunin með Jóhönnu. Hún er nú heiðursborgari 16 VIKAN 14. TBL. 1989
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.