Vikan - 13.07.1989, Blaðsíða 54
POPP
Holly og sprengjan
Athyglisverð umfjöllun um Holly Johnson, fyrrum söngvara
Frankie Goes to Hollywood, vegna nýútkominnar sólóplötu hans
TEXTI:
BJARNI HAUKUR ÞÓRSSON
Hvar væri bresk
popptónlist í dag ef
Frankie Goes to
Hollywood hefði
ekki komið fram á sjónarsvið-
ið.
Þessa spurningu rakst ég á í
bresku popptímariti þar sem
„popppælari" velti fyrir sér
áhrifavöldum í bresku tónlist-
arlífi á síðustu árum. Þrátt fyrir
að Frankie hafl á sínum tíma
verið umdeild hljómsveit hvað
varðar starfsaðferðir og fram-
komu hefur hún skrifað nafh
sitt á spjöld sögunnar. Frankie
breytti mörgu, ekki nóg með
að tónlistarstíllinn var frá-
brugðinn heldur var boð-
skapurinn annar en gengur og
gerist hjá venjulegum dægur-
lagahljómsveitum. í Frankie
var ekki sungið um ástina —
heldur um stríð, samskipti
stórveldanna og gert grín að
öllu. Lög eins og RELAX —
TWO TRIBES og WAR vísa
beint til þeirra samskipta-
örðugleika sem stórveldin búa
við í dag. Um tíma var bannað
að sýna tónlistarmyndbönd
Frankies í USA vegna þess að í
einu þeirra var þáverandi for-
seta Bandaríkjanna, Ronald Re-
agan, stillt upp í hnefaleika-
hring ásamt aðalritara
kommúnistaflokksins í Sovét-
ríkjunum, Gorbatsjov, og þeir
látnir slást.
Holly Johnson (söngur) var
stofnandi Frankie Goes to
Hollywood. Hann sá draum
sinn rætast þegar Frankie varð
til. Hljómsveitin var barnið
hans Hollys.
Ferillinn
Holly Johnson fæddist í Rio
de Janeiro 2. september 1961
og er því 28 ára gamall. Hann
fluttist ásamt foreldrum sínum
fimm ára gamall til Liverpool í
Englandi. Tólf ára fór hann að
fá áhuga á tónlist og spilaði í
frístundum á kassagítar og
samdi lög. Áhrifavaldar á þess-
um árum voru Mark Bolan og
David Bowie. Sextán ára hætti
hann í skóla og gerðist bassa-
leikari í hljómsveitinni Big in
Japan. Ári síðar var hann rek-
inn úr hljómsveitinni, hljóm-
sveitarmeðlimir töldu hann of
heimskan. Á þessum árum var
hann farinn að vera öðruvísi,
hann segir sjálfur að hann hafi
ríka tilhneigingu til að
hneyksla og að vera öðruvísi.
Sautján ára hljóðritaði hann
sín fyrstu lög en ári síðar var
Frankie stofnuð. Hljómsveitin
æfði í þrjá mánuði en þá slitn-
aði upp úr samstarfinu. Það var
ekki fyrr en 1982, þegar m.a.
Mark O’Toole og Peter Gill
komu til liðs við Holly, að
Frankie Goes to Hollywood
fór að gera markverða hluti.
Hljómsveitin gerði plötu-
samning við ZTT sem síðar átti
eftir að draga dilk á eftir sér
fyrir Holly Johnson. Það var
svo í nóvember ’83 að fýrsta
smáskífulag Frankies kom út
og í janúar komst Relax í fyrsta
sæti breska vinsældalistans og
sat þar í fimm vikur. Seinna á
árinu kom út önnur smáskífa
Frankies, Two Tribes. Það lag
sat á toppnum í níu vikur á
meðan Relax var í öðru sæti.
Það var því strax orðið aug-
Ijóst að þessi nýja tónlistar-
stefna átti upp á pallborðið hjá
fólki.
Velgengni hljómsveitarinn-
ar var mikil á þessum árum og
platan sem kom í kjölfar þess-
ara vinsælda, Welcome to the
Plesuredome, seldist í milljón-
um eintaka víða um heim.
1986 kom út önnur breiðskífa
Frankies, Liverpool. Hún náði
ekki sömu vinsældum og fyrri
platan og það var svo í mars
1987 að Holly Johnson yfirgaf
barnið sitt, Frankie Goes to
Hollywood.
Málaferlin
Ástæðan fyrir brottför
Hollys J. úr Frankie fannst fólki
óskiljanleg. Hann sagði að það
væri orðið tímabært að hann
færi að gera eitthvað annað og
það kom á daginn að hann ætl-
aði að hefja sólóferil. Hann var
orðinn 26 ára gamall og fannst
að þáttaskil yrðu að eiga sér
stað í lífi sínu. Viss þreyta var
líka farin að gera vart við sig í
hljómsveitinni. Hann taldi sig
því lausan allra mála hjá
útgáfúfýrirtæki Frankies, ZTT,
með því að hætta. ZTT var
ekki á sama máli og taldi hann
samningsbundinn fyrirtækinu
þann tíma sem hljómsveitin
Holly Johnson - poppundur niunda áratugarins.
52 VIKAN 14. TBL.1989