Vikan


Vikan - 13.07.1989, Blaðsíða 32

Vikan - 13.07.1989, Blaðsíða 32
DULFRÆÐI LHa dýr eftír daudann? ~y rnsum þeirra sem eitthvað hafa % / kynnt sér af skoðunum þess sem W þetta hripar er löngu orðið ljóst að JL sá sem hér talar þykist löngu sann- færður um að hvað manninn snertir sé það löngu ljóst orðið að líf sé okkur öllum búið að þessu loknu. Samkvæmt könnun- um líf að þessu loknu. Ef við komumst að er mikill meirihluti íslendinga sannfærður um ltf að þessu loknu. Ef við komust að þessari niðurstöðu, hvað framtíð okkar sjálfra snertir, þá er ekki ólíklegt að að ein- hverjum geti einnig hvarflað önnur hugsun. Já, kann að vera. "En hvað þá um dýrin? Ekki síst gæti slík hugsun hvarflað að þeim sem unna dýrum einhverrar teg- undar, það er dýravinunum. Sem betur fer eru þeir margir í öllum löndum. Mörg dýr, sem alist hafa upp á heimilum manna, hafa orðið heimilisfólki mjög kær og hafa þann- ig átt sinn þátt í uppeldi margra barna með því að auka kærleiksþáttinn í eðli þeirra. Og hvað er okkur nauðsynlegra í uppeld- inu en sterkur kærleiksþáttur? Hann skipt- ir mestu máli fyrir vellíðan og þroska okk- ar allra. Ein afleiðing þessarar væntum- þykju milli manna og dýra er líka oft óhjá- kvæmilega sú sorg sem dauði slíks dýrs getur valdið, einkum ef hann verður óvænt fyrir slys eða aðra svokallaða tilvilj- un. Margar sannar frásagnir eru til dæmis til um það hve sterkt samúðar- og kær- leiksband getur orðið milli hunds og manns. Og þess vegna hvílík sorg það get- ur verið fýrir mann að glata slíkum vini óvænt, eins og hér að framan var minnst á. Og væri það ekki mikili léttir fyrir mann- inn að geta jafhvel lifað í von um að geta séð þennan kæra vin einhvern tíma aftur á lífi? Vitanlega, mundi hver dýravinur segja. En hver getur alið með sér slíka von? Ég tel að slík von sé engan veginn nein fá- sinna ef betur er að gáð. Og skal ég nú reyna að útskýra þessa skoðun örlítið nánar. Síðustu ár hafa sannar frásagnir af sam- bandi við látna færst mjög í vöxt. Víða í slíkum frásögnum um hið nýja líf fyrir handan hefúr komið í ljós, öllum sem hafa unnað dýrum til mikillar gleði, að þeir sem hafa á jörðinni notið vináttu og jafn- vel kærleiks dýra fmna þau margir sér til ólýsanlegrar gleði þegar þeir deyja. í hin- um nýju heimkynnum er, auk ástvina og kunningja, einnig að flnna gamla og góða vini úr dýraríkinu. Til dæmis um þetta ætla ég að rekja hér ffásögn sem kom fram á miðilsfúndi frægra amerískra miðla og sagt er frá í bók sem út kom í Bretlandi árið 1975 og ber naínið LIFE AFTER DEATH eða Líf að þessu loknu. í þessari bók er sagt frá fátækum manni sem eftir dauðann tókst að skýra nokkuð ffá því sem við tók hjá honum eftir dauð- ann. Ekki hafði nú starf hans verið talið merkilegt meðan hann var hér á jörðinni. Hann átti gamlan vagnhest og ómerkilega kerru og í þetta safnaði hann hvers konar dóti sem fólk vildi gjarnan losna við, svo sem gömlum fatnaði og fleira þess háttar. Síðan reyndi hann að selja eitthvað af þessu fátæku fólki sem alltaf er nóg af í öll- um stórborgum. Þótt starf þetta væri ef til vill ekki sérlega gróðavænlegt tókst hon- um að halda sér á lífi með afrakstrinum þangað til einn daginn að gamla merin hans, hún Jenny, gafst upp og hneig niður örend fyrir framan kerruna hans. Hann tók þetta mjög nærri sér því honum þótti alltaf innilega vænt um gömlu Jenny sem hafði verið honum svo trú og trygg gegnum árin. Hún var svo sem ekki merkileg að vallarsýn en hún átti samt hug og hjarta eiganda síns sem alla tíð var henni góður og hugulsamur. Jæja, ég ætlaði að segja ykkur dálítið ffá því hvernig þetta var effir að ég sjálfúr dó. Sjáið þið til. Ég vaknaði í einhvers kon- ar haga. Ég virtist sitja eða liggja undir ein- hvers konar tré. Þar vaknaði ég. En þá sá ég hross koma í áttina til mín og það var þá engin önnur en mín gamla Jenny sem þar var komin. Hún var að vísu miklu ung- legri en þegar við unnum saman á jörð- inni. En henni leið svo vel, var svo upp- numin og hamingjusöm að maður komst ekki hjá því að finna það. Þó ég geti ekki útskýrt hvernig á því stóð. Það var engu líkara en hún væri að tala við mig. Þetta var sótundarlegt. Ég heyrði enga rödd enda býst enginn við því að heyra hest tala. Þetta hlýtur því að hafa verið ein- hvern veginn huglægt. Nú er mér orðið ljóst að það var engu líkara en þessi gamla vinkona mín væri að bjóða mig velkominn. Hún kom fast upp að mér og sleikti á mér andlitið. Þessu get ég aldrei gleymt. Það var stórkostlegt. Ég varð yfir mig hrifinn af þessu og klappaði henni og kjassaði á alla lund. En þá gerðist það að mér fannst ég heyra mannsrödd fyrir aftan mig. Ég sneri mér við og þarna stóð þá þessi stórmyndarlegi ungi maður. Hann virtist yfir sex fet á hæð, ungur og ljóshærður. Og hann sagði: „Ég kom til þess að líta effir þér.“ „Komst til að líta eftir mér?“ sagði ég. „Hvað í ósköpunum áttu við?“ ,Já, þetta er rétt. Mér var falið að sjá um Þ‘g“ „Hvað meinarðu með að „sjá um mig“? Ég hef alltaf verið fær um að sjá um mig sjálfur. Reyndar orðið að gera það.“ „Þú skilur þetta ekki,“ sagði hann. „Veistu að þú ert dauður?" Mér brá fýrst dálítið við þetta. En svo fór eitthvað að renna upp fýrir mér. Vitanlega voru rnörg ár síðan Jenny mín dó og ég hafði fengið mér aðra bikkju eftir það. Það var að vísu ágætt hross en jafnaðist vitanlega ekki á við Jenny. Þá segir hann: „Þú ert dauður." ,Jæja,“ hugsaði ég. „Ekki veit ég hvort ég get tekið mark á þessum náunga." Þá fannst mér eins og hann gæti sýnt mér eitthvað. Ég veit ekki hvort hann gerði það en sennilega. Ég sá nefnilega sjálfan mig í rúmi, stífan og hreyfingarlaus- an, og þetta var eins og ég væri að horfa á minn eigin líkama. Og samt var ég ekki þarna. Ég sá einhverja menn setja mig á börur og aka mér burt. Ég fór á eftir þess- um líkama, sem var ekið út, og svo hvarf þetta allt saman og ég var aftur hjá þessum náunga. „Ég heiti Mikael," sagði hann. ,Jæja?“ „Gerirðu þér nú ljóst að þú ert látinn?" ,Ja, satt að segja veit ég ekki hvað ég á að halda." „Þér var sýnt í sýn hvar líkami þinn lá. Og þú veist að þú lést á þessu sjúkrahúsi." ,Já, ég man það nú að ég var fárveikur á sjúkrahúsi, en hvernig get ég verið dauður úr því ég er hérna að tala við þig og búinn að fá Jenny aftur?“ ,Já, er Jenny ekki vottur um það að þú ert látinn?" ,Já, þetta virðist allt mjög skrítið. En sé ég á himnum þá gerir maður nú ekki ráð fyrir því að finna hross þar. Þau hafa enga sál, er það?“ ,Ja, svo er þér sagt á jörðinni,“ sagði hann, „að slík dýr eigi ekkert annað líf fyrir höndum en hið efnislega, eins og það er kallað. En um þessa hryssu er það að segja að sökum þess hvað hún var þér nákomin og að þú sýndir henni ást og umhyggju þá öðlaðist Jenny eitthvað sem gat lengt ævi hennar." 32 VIKAN 14. TBL. 1989
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.