Vikan - 13.07.1989, Blaðsíða 37
5ÓLBRUMI
Sólbrúnkcm endist lengur
ef hún kemur hægt
ÁHRIF SÓLARINNAR Á HÚÐINA
Með hækkandi sól kemur tími
útiveru og ferðalaga. Fjölmarg-
ir fara út fyrir landsteinana, oft-
ast suður á bóginn, en aðrir gera sér far
um að kynnast okkar eigin fagra landi.
Alvarlegur fylgiflskur sólbaða og útiveru
getur verið sólbruni ef óvarlega er farið i
sólinni. Fólki er auðvitað mishætt við sól-
bruna en alla jafna er börnum og öðrum
þeim er hafa mjög viðkvæma húð hættast
við sólbruna.
Styrkur sólargeislanna og áhrif þeirra á
óvarða húð fer eftir því hversu þykkt lag af
andrúmslofti geislarnir fara í gegnum á
leið sinni til jarðarinnar. Því lengri sem
leiðin er því veikari verða geislar sólarinn-
ar. Geislar sólarinnar eru því sterkastir við
miðbaug um hádegi en veikust er sólin
þegar hún er „lágt á lofti“. Sólskinið er
einnig sterkara eftir því sem ofar dregur,
það er á Ijöllum, og einnig hefur endur-
speglun mikil áhrif á styrk sólargeislanna.
Þynning ósonlagsins
Síðustu árin hefúr víða orðið vart þynn-
ingar á ósonlaginu og því berast útfjólu-
bláir geislar sólarinnar í auknum mæli til
jarðarinnar. Þetta þýðir að sólin getur haft
meiri áhrif á húðina en áður.
Skaðleg áhrif útfjólublárra geisla á húð-
ina hafa verið rannsökuð um nokkurt
skeið og þá aðallega hlutdeild þeirra í
myndun húðkrabbameins og varðandi
ótímabæra öldrun húðarinnar, það er
hrukkumyndun vegna varanlegra
skemmda á húð af völdum sólbruna.
Almenningur hefúr í vaxandi mæli gert
sér grein fyrir þessum hættulegu áhrifum
sólarinnar og sala á sólvarnarkremum með
hærri varnarstuðlum hefur aukist veru-
lega.
Nýjungar á sviði sólvarna
Frá 1946 hefúr Greiter fyrirtækið í Sviss
rannsakað áhrif sólarljóss á húðina og
framleitt sólvarnarkrem undir nafninu Piz
Buin. Upphaf Piz Buin má rekja til sól-
bruna er ungur maður að nafni Frans
Greiter fékk á fjórða tug aldarinnar er
hann kleif hæsta fjall í Vorarlberg í vestur-
hluta Austurríkis, en það fjall heitir ein-
mitt Piz Buin. Greiter brann illa í sólinni
og það varð honum síðar hvatning til að
ffamleiða gott sólvarnarkrem. Síðan þetta
gerðist hefúr mikið vatn runnið til sjávar.
Prófessor Greiter öðlaðist heimsfrægð og
viðurkenningu sem vísindamaður.
Þær rannsóknir, sem Greiter fyrirtækið
hefur staðið að, hafa skilað af sér fjölmörg-
um nýjungum varðandi sólvarnir, til að
mynda var það fyrst með sólkrem með
varnarstuðlum og fyrst með vatnsþolin
sólvarnarkrem. Ein af nýjungum þaðan
þetta árið, og sú mikilvægasta, er „Micro-
pigments" sem er nýr sólvarnarfllter.
Þessi nýi „fllter" er notaður með öðrum
áður þekktum fllterum (chemical fllters)
til að tryggja hámarksvörn. Tilraunir með
„Micropigments" sýna að hann veitir góða
vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinn-
ar og veitir einnig vörn gegn skemmdum á
genum (DNA).
Dr. Hönigsmann, prófessor við háskóla-
sjúkrahúsið í Vín, telur að „Micropig-
ments“ marki tímamót á sviði sólvarna.
Góð ráð þegar farið
er í sólina
Þegar farið er í sólina er gott að hafa
eftirfarandi í huga:
— Ljós húð þolir aðeins um 10—30 mín-
útur í mjög sterkri sól án þess að brenna.
Ef ætlunin er að vera lengur í sólinni er
þörf á sólvarnarkremi.
- Sólvarnarstuðlarnir margfalda þann
tíma sem viðkomandi getur verið í sólinni.
Geti viðkomandi verið hálftíma í sólinni
án varnar getur hann verið í tvær stundir
með vörn númer 4 og þrjár stundir með 6
og svo ffamvegis.
— Fyrstu vikuna í sólinni þarf viðkom-
andi sólkrem með meiri vörn en eftir að
hann hefúr vanist sólinni. Á brunna bletti
þarf einnig sterkari vörn, til dæmis „Sun
Block“.
- Bestur árangur næst ef sólvarnar-
kremið er borið á hreina húð 30 mín. fyrir
sólbað.
— Ef verið er í sól og vatni til skiptis eru
vatnsþolin sólkrem nauðsynleg. Öll sól-
varnarkrem frá Piz Buin eru vatnsþolin í
að minnsta kosti 80 mínútur. Sólvarnar-
kremin nást þó auðveldlega af með
„shower gel“ eða sápu.
— Mikilvægt er að gera greinarmun á
sólvarnarkremum og kremum sem notuð
eru eftir sól. Krem, sem notuð eru eftir
sól, hafa enga vörn gegn geislum sólarinn-
ar heldur eru þau annars vegar notuð til
að kæla húðina og stöðva bruna og hins
vegar til að mýkja húðina og til að við-
halda eðlilegu rakastigi.
— Varast ber að nota ilmvötn eða svita-
lyktareyði í sólböðum. Slík efni geta
myndað flekki á húðinni.
— Varast ber notkun lyfja. Sum lyf geta
haft þannig áhrif á húðina að hún er við-
kvæmari gagnvart ofnæmi og sólbruna.
— Piz Buin sólvarnarkrem veita vörn
gegn bruna (UVB geislum) og gegn ótíma-
bærri öldrun húðarinnar (UVA geislum).
Rétt hegðun í sólinni tryggir fallegan húð-
lit og heilbrigða húð.
- Athuga ber að sólvarnarkrem koma
ekki í veg fyrir að húðin verði brún því
þau auka þann tíma sem viðkomandi getur
verið í sólinni án þess að brenna. Ef húðin
brennur eru miklar líkur á því að viðkom-
andi verði að sleppa því að vera í sólinni
daginn eftir. Brúnn litur sem kemur hægt
og á löngum tíma endist mun lengur og
verður jafnari og fallegri.
14. TBL. 1989 VIKAN 35