Vikan - 13.07.1989, Page 44
HEIL5A
Birgitte Nielsen lét stækka á sér brjóstin til að þóknast Rambo-leikaranum Sylvester
Stallone er þau höfðu látið pússa sig saman í hjónaband.
fylgst hefur verið með konunum aðeins í
fimm ár, sem er kannski of stuttur tími.
Vegna þess að pokinn pressar saman
brjóstvefinn gerir það röntgenlæknum erf-
iðara fyrir að greina krabbamein ef um það
er að ræða í brjóstunum. Ein rannsókn
leiddi í ljós að í 65% tilfella, þar sem kon-
an hafði látið stækka brjóst sín og fengið
krabbamein, hafði meinvarp borist til ann-
arra vefja, á móti 28% hjá þeim sem ekki
höfðu fengið sílíkonpoka.
Minnkun (reduction mammoplasty):
Þar sem of stór brjóst geta valdið ýmsum
kvillum, til dæmis sársaukafiillum útbrot-
um undir brjóstunum, verk í stoðkerfi, svo
sem í baki eða hálsi, þá borga tryggingarn-
ar í flestum tilfellum þessar aðgerðir.
Viðkomandi kona er svæfð á venjulegan
hátt. Skurðlæknirinn fjarlægir umframfitu í
gegnum lóðréttan skurð sem liggur frá
geirvörtunni niður að fellingunni undir
brjóstinu, ásamt þeirri húð sem nauðsyn-
legt er að taka í burtu. Geirvörturnar eru
færðar á annan stað, eftir því sem ný lögun
brjóstanna krefst.
Saumarnir eru teknir eftir um tíu daga
og hægt er að Iifa eðlilegu lífi eftir nokkrar
vikur.
Aukaverkanir: Stórt varanlegt ör sést. Ef
geirvörturnar eru ekki settar á sína nýju
staði af vandvirkni geta brjóstin virst vera
í mismunandi hæð.
Minnkuð blóðrás og taugaerting getur
minnkað tilfinningu í geirvörtunum.
Vegna þess að sumar þessara aðgerða
hafa áhrif á mjólkurgöngin er brjóstagjöf
ekki möguleg á eftir. Hér á landi eru þó
framkvæmdar aðgerðir þar sem komist er
hjá þessari aukaverkun og konur geta gef-
ið brjóst jafnt sem áður.
Ný brjóst búin til
Þegar konur gangast undir aðgerð, þar
sem brjóstið er tekið (mastectomy), er oft
byrjað á því að móta nýtt í sömu aðgerð.
Þar sem aðeins brjóstvefur (ekki vöðvar
eða eitlar) hefur verið fjarlægður er pok-
anum aðeins komið fyrir undir húðinni.
Geirvörtur og svæðið í kring er endur-
skapað úr vef sem tekinn er frá skapa-
börmum og er það gert um sex vikum
seinna.
Eftir slíka aðgerð, þar sem aðeins
brjóstvefurinn hefur verið fjarlægður,
getur sú húð, sem eftir verður, verið það
naum að hún geti ekki hulið venjulegan
poka. Litlum poka, sem hægt er að blása
upp, er þá komið fyrir og fylltur jafnt og
þétt með saltupplausn til að strekkja á
húðinni. Þegar hún hefur svo gefið eftir,
eins og óskað er, er varanlegum poka
komið fýrir.
Samkvæmt rannsóknum, sem Alþjóða
heilbrigðisstofnunin gerði, hefur komið í
ljós að þær konur sem strax hefur verið
byrjað að móta nýtt brjóst á eru mun
minna kvíðnar og niðurdregnar í kjölfar
þess að brjóstið var tekið og eiga mun
sársaukaminni minningar um það en þær
sem ekki hefúr verið tekið til við að móta
nýtt brjóst á.
Brjóstalyfting (mastopexy)
Brjóstum, sem lafa mikið, er hægt að
lyfta og gefa unglegri útlínur með því að
fjarlægja teygða húð og skorða brjóstvef-
inn með þeirri húð sem eftir er. Brjóstum
er oft lyft um leið og þau eru stækkuð eða
minnkuð en það fer þó eftir því hvernig
eðlilegu brjóstin eru.
Að velja brjóstahaldara
Brjóstahaldarar koma í veg fyrir sig á
brjóstunum vegna þunga og geta þeir
einnig gefið barminum það útlit sem ósk-
að er hverju sinni. í dag eru þeir ávalir,
eðlilega útlítandi, oft er styrktarvír undir
brjóstunum, forma þau ekki, eru teygjan-
legir og hafa saumlausar skálar.
„Ef brjóstin lafa,“ segir eigandi undir-
fataverslunar, „þá getur toppur lyft þeim
upp og þau líta út fýrir að vera stinnari en
þau eru og ávalari. Konur halda að stuðn-
ingstoppa eigi aðeins að nota þegar þær
eru í einhverju flegnu eða gapandi
blússum. Það er alger misskilningur því
þeir eru mjög góðir undir bolum og peys-
um til að gefa fallegra og meira eggjandi
útlit."
Önnur kona á þessu sama sviði segir:
„Stuðningstoppar, sem lyfta brjóstunum,
eru sérstaklega áhrifaríkir fyrir konur sem
hafa frekar lítil brjóst. Lítill barmur hefur
meiri fyllingu fyrir neðan geirvörturnar og
minni fyrir ofan þannig að toppur gefúr
ávalara útlit undir fötum.
Hér eru nokkrar leiðbeiningar um val á
brjóstahaldara.
— Brjóstahaldari, sem á að fara vel, verð-
ur að hylja allt brjóstið. Ef hold bungar út
að ofan eða undir handleggnum er skálin
of lítil. Ef brjóstahaldarinn krumpast hins
vegar er hann of stór.
- Bak haldarans á að vera lárétt, fari
það hins vegar upp er hann of víður í
kringum bolinn.
— Brjóstahaldari á að passa án þess að
hann sé strekktur óþægilega mikið. Með
því að strekkja á hlýrunum lyftast brjóstin
ekki heldur lyftist botn skálarinnar. Notið
þetta strekkingarpróf: Slakið á öðrum hlýr-
anurn og ef stuðningur haldarans hverfur á
þeirri hlið er hann ekki af réttri stærð.
Þær konur, sem misst hafa brjóst vegna
krabbameins og ekki hefur verið mótað
nýtt brjóst á, geta fengið sérstaka brjósta-
haldara ásamt gervibrjósti (-um) sem
kemur í stað þess sem tekið var.
Aðrar ráðleggingar
Það getur verið að þú þurfir ekki að fara
til lýtalæknis í aðgerð en þú vilt fá sem
mest út úr þeim barmi sem þér var gefinn.
Hér eru nokkur ráð lækna og snyrti-
fræðinga.
- Hugið að líkamsbeitingu. „Hang-
andi axlir gera lítinn barm að engu og
stóran að lafandi og höfuðið lútir einnig
óeðlilega mikið. Setjið axlirnar aftur og
brjóstkassann út,“ segja bæklunarlæknarn-
ir. „Einbeitið ykkur einfaldlega að því að
hafa höfúðið uppreist og mjaðmirnar
beint undir líkamanum en ekki einhvers
staðar útundan honum. Þá munuð þið
bera ykkur vel.“
— Notíð farða. Sé klæðnaðurinn mjög
fleginn er gott að nota púður eða „meik“
sem er dekkra en húðin til þess að gefa
skugga á milli brjóstanna. Berið ljóst
púður, „highlighter", á brjóstabungurnar
til þess að vega á móti skyggingunni.
Sumar konur vilja breyta útlitinu á geir-
vörtum sínum. „Creme rough“ gerir þær
rósrauðari. Litlaust „varagloss“ gefur þeim
dulúðugan blæ.
— Klæðist rétt. Fyrir barmstórar konur
kemur ekkert í staðinn fýrir peysu eða bol
sem undirstrikar línurnar vel. V-hálsmál,
flegið hálsmál og slæðukragar eru það sem
undirstrikar skálínur brjóstanna og er
mjög aðlaðandi fyrir barmstórar konur.
Konum með lítinn barm fer betur að
vera í víðum blússum. Verið ekki í að-
skornum fötum. Kaupið blússur og peysur
með einhverju framan á, svo sem felling-
um, mynstri, slaufúm, bindum, pífum,
pallíettum eða öðru skrauti.
Þegar kaupa á dragt ættu grannar, barm-
litlar konur að kaupa föt með toppstykk-
inu skiptu í tvennt. Þær sem eru of brjósta-
42 VIKAN 14. TBL. 1989