Vikan


Vikan - 13.07.1989, Síða 46

Vikan - 13.07.1989, Síða 46
FATHAÐUR ALDARAFMÆU BRJOSTAHALDARANS 44 VIKAN i4. tbl 1989 Þannlg leit fyrsti brjóstahaldarinn út. Hann varð til fyrir hundrað árum. B Hann átti eitt hundrað ára afmaeli í júní — brjóstahaldarinn - en hann ber aldurinn vel. Með tilkomu hans má segja að fyrsta skrefið hafi verið stigið í kvenfrelsisbaráttunni. Anítjándu öld voru fjög- urra ára dætur betri Lborgara yfirleitt vafðar inn í lífctykki úr líni sem skorðað var með hvalbeins- eða stálteinum. Þegar búið var að móta þær í vel uppaldar ungar hefðardömur og gera þær í laginu eins og stundaglas voru innyfli þeirra og rifbein jafhframt oft orðin aflöguð. Það skyldi því engan furða þó litið hafi verið á kvenfólkið sem veikara kynið; sem roðn- aði eða leið yfir við minnsta Iíkamlegt erfiði. Svo gerðist það árið 1889 í París að Herminie Cadolle líf- stykkjagerðarkona kom til bjargar. Hún útbjó fyrirrenn- ara nútíma brjóstahaldarans, soutiengorge eins og hann kallast nú í Frakklandi. Hann var kynntur sem heilsubæt- andi og var fyrsti undirfatnað- urinn sem veitti brjóstunum stuðning án þess að herða að þindinni. Barna-barnabarn Herminie, Poupie Cadolle, for- stjóri nærfatafyrirtækis fjöl- skyldunnar, sem enn gengur mjög vel, endurgerði silki- og tjullflíkurnar fyrir myndatök- una og fór þá eftir upphaflegu teikningunum. „Loksins gátu konurnar andað,“ segir Poup- ie. „Ég held að Herminie hafi verið orðin þreytt á að horfa á þær þjást og það má segja að hún hafi farið snemma af stað í kvenfrelsisbaráttunni." Full ástæða er því til að halda upp á eitt hundrað ára afrnæli brjóstahaldarans. Núna er hann léttur sem fjöður, þjónar sínu hlutverki en er jafnframt kynæsandi. Því minni því betri, segja sumir, en því minni sem hann er því dýrari virðist hann vera. Hann er að því leyti ólíkur íþróttasokkun- um vinsælu að ein stærð passar alveg örugglega ekki á alla. Hann hefur átt sinn þátt í frama margra Hollywood- stjarna og má þar nefna Jane Russell, Lana Turner og Ma- donnu — að ógleymdum Dust- in Hoffman. í Bandaríkjunum Frh. á næstu opnu UNDIRFATNAÐUR FRÁ BLÁA FUGLINUM / LJÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON SJÁ BLS. 48

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.